Fréttablaðið - 20.09.2014, Blaðsíða 100
20. september 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 60
Draumkennt og dáleiðandi í Hörpunni
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds lauk tónleikaferð sinni í Norðurljósasal Hörpunnar í gær. Ferðalagið hófst fyrir einu og hálfu ári á
sama stað og fannst honum viðeigandi að ljúka ferðinni hér heima. Í upphafi tónleikanna bað hann tónleikagesti um að syngja einn
tón fyrir sig sem hann notaði síðan sem undirspil í fyrsta laginu. Tónleikarnir heppnuðust vel, Ólafur var klappaður upp í lokin og
endaði á fallegu og tilfi nningaríku lagi sem hann samdi um ömmu sína sálugu.
FJÖLDI
ERLENDRA
GESTA Anni
Savolanien og
Henni Eronen
komu til að
hlýða á Ólaf.
GLÆSILEGAR Leikkonan Guðrún Ásmundsdóttir
og Rakel Mjöll Leifsdóttir.
FLOTT PAR Dagmar Una Ólafsdóttir og Eyþór
Arnalds létu sig ekki vanta.
FLOTTIR
FÉLAGAR
Gömlu
MA-ingarnir
Guðni Líndal
Benediktsson
og leikarinn
Ævar Þór
Benediktsson
skemmtu sér
konunglega.
SKEMMTU SÉR VEL Vinkonurnar Unnur Edda og Rakel Íris.
„Ég lít svo mikið upp til hans og
vona að guð og gæfan leyfi það
að ég geti enn verið að troða upp
á níræðisaldri,“
segir tónlistar-
maðurinn Páll
Óskar Hjálm-
týsson, en hann
er meðal þeirra
gestasöngvara
sem koma fram
á afmælistón-
leikum Ragnars
Bjarnasonar í Hörpu í kvöld.
Palli og Raggi hafa sungið
saman í fjölda ára og hefur í
gegnum árin myndast mikil og
góð vinátta þeirra á milli. „Við
Raggi sungum fyrst saman árið
2001 með Milljónamæringunum
og erum enn að syngja saman
í dag. Þegar ég fylgdist með
honum á sviðinu með Millunum
hugsaði ég, mig langar að verða
svona þegar ég verð stór. Ég
held að fólk átti sig ekki alveg á
því hversu mikil goðsögn mað-
urinn er,“ segir Páll.
Ásamt því að koma fram á
tvennum afmælistónleikum í
Hörpu kemur Palli einnig fram
á Spot síðar um kvöldið. „Ég
hleyp frá Hörpu yfir á Spot
en tek reyndar eitt brúðkaup
á milli. Mér reiknast svo til
að ef það verður uppselt á alla
þessa viðburði þá er ég að fara
að troða upp fyrir sirka 4.500
manns í kvöld,“ bætir Palli við.
- glp
Syngur stoltur
með vini sínum
Það var mikið um
að vera hjá fræga
fólkinu í Hollywood
þessa vikuna eins
og oft áður. Hér eru
þær fréttir sem bar
hæst.
Slúðurmolar vikunnar Það var ekki lognmolla í Hollywood þessa vikuna.
RAPPARINN
KANYE
WEST
skartaði nýrri
hárgreiðslu
á stefnumóti
með eigin-
konunni, Kim
Kardashian,
en hann
lét raka
örvamunstur
í hárið á sér.
MEINTA
PARIÐ Chris
Martin og
Jennifer
Lawrence eru
sögð halda sig
frá sviðsljósinu
af virðingu
við börn hans
og Gwyneth
Paltrow, fyrrver-
andi eiginkonu
hans.
SÖGUR UM
að söng-
konan Avril
Lavigne og
Nickelback-
maðurinn
Chad Kroeger
væru að skilja
voru háværar
í vikunni, en
þær hafa ekki
enn verið
staðfestar.
KOURTNEY
KARDASH-
IAN tilkynnti
að þriðja
barn hennar
og Scotts
Disick væri
stúlka, en
fyrir eiga
þau soninn
Mason og
dótturina
Penelope.
LÍFIÐ
20. september 2014 LAUGARDAGUR