Fréttablaðið - 20.09.2014, Blaðsíða 104
20. september 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 64
Maður hefur heyrt
af því að það sé mikið af
peningum í boði þar.
Maður veit aldrei hvað
maður gerir.
Viðar Örn Kjartansson.
úlpudagar
Láttu veðrið ekki stöðva þig
util if. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Kuldafatnaður frá:
SPORT
FÓTBOLTI „Ef ég væri örlítið yngri
þá væri ég örugglega ekki að
höndla þetta svona vel. Ég er líka
orðinn vanur þessu áreiti og er
því alveg pollrólegur,“ segir lang-
markahæsti leikmaður norsku
úrvalsdeildarinnar, Viðar Örn
Kjartansson, en hann fær ekki
stundarfrið frá fjölmiðlum þessa
dagana.
Skal engan undra því hann
hefur raðað inn mörkum nánast að
vild fyrir Vålerenga á tímabilinu
og er þegar búinn að slá nokkur
met. 24 mörk í 22 leikjum en metið
í Noregi er 30 mörk og það var sett
árið 1968 af Odd Iversen. Viðar
Örn hefur sjö leiki til þess að skora
mörkin sex sem upp á vantar.
Möguleikinn er góður
„Það eru talsvert fleiri fjölmiðlar
hér en heima og það er mikið verið
að kynna sér mig og mitt líf. Þetta
er allt hluti af boltanum og ég
kippi mér ekkert upp við alla þessa
athygli og að þurfa að koma í mörg
viðtöl. Ég var ekkert mjög vanur
þessari athygli fyrst þegar ég kom
en ég hef fengið mikla athygli nán-
ast frá upphafi og þetta venst vel.“
Selfyssingurinn marksækni fer
ekkert leynt með að markmið hans
er að jafna og helst slá markamet-
ið. Hann telur sig eiga góða mögu-
leika á því.
„Það er búið að ganga vel og
hefur verið stöðugleiki í mínum
leik. Ég hef skorað tvær þrennur
upp á síðkastið og ég er því líkleg-
ur til alls. Ég er nánast að skora
í hverjum leik þannig að þetta er
góður möguleiki,“ segir Viðar en
lið hans hefur skorað næstflest
mörk allra liða í deildinni eða
marki minna en topplið Molde sem
Viðar og félagar mæta í dag.
Vörnin hefur aftur á móti ekki
verið eins öflug og því er liðið í
sjötta sæti deildarinnar.
„Ef hún væri betri þá værum við
í efstu þremur sætunum. Við kom-
umst 5-2 yfir í leik um daginn en
hitt liðið jafnaði í 5-5 á fimmtán
mínútum. Fólk er í það minnsta að
fá vel fyrir peninginn er það horf-
ir á okkur spila,“ segir Viðar og
hlær við.
Hætti að hugsa um þetta
Spilamennska hans í Noregi hefur
ekki farið fram hjá útsendurum
um alla Evrópu og er líklegra en
ekki að hann yfirgefi Vålerenga í
janúar.
„Ég hef alveg fundið fyrir áhug-
anum en er ekkert að velta mér of
mikið upp úr því. Ef eitthvað ger-
ist þá gerist það líklega hratt. Það
mun samt líklegast ekkert gerast
fyrr en í janúar. Ég pældi mikið
í þessu í sumar en þá skoraði ég
ekki í þremur leikjum í röð. Þá
hætti ég að hugsa um þessa hluti
og þá fór aftur að ganga of vel.
Ég vil því ekki vera að skipta mér
mikið af þessu en ég veit að ef ég
stend mig vel þá verður eitthvað
spennandi í boði.“
Félög víða í Evrópu hafa gert til-
boð í Viðar en það sem færri vita
er að það kom áhugavert tilboð í
hann frá liði í Kína.
„Ég vissi af þeim áhuga en
ég veit ekki hvar það stendur.
Það yrði skrítið að fara þangað
en örugglega spennandi,“ segir
Viðar en samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins myndi Viðar fá í
það minnsta helmingi betri samn-
ing þar en ef hann semdi við lið í
Evrópu.
Skoða allt með opnum huga
„Maður hefur heyrt af því að það
sé mikið af peningum í boði þar.
Maður veit aldrei hvað maður
gerir. Ég skoða allt sem er spenn-
andi með opnum huga.“
Framherjinn er orðinn 24 ára
gamall og hann segir líka skipta
máli að velja rétt.
„Ef maður tekur rangt skref
þá getur það eyðilagt ýmislegt.
Ég er samt ekki það gamall að
ég ætti kannski möguleika á að
koma aftur inn einhvers staðar.
Ég myndi samt skoða Kína eins og
hvað annað. Maður veit aldrei.“
henry@frettabladid.is
Skoðar freistandi tilboð frá Kína
Markahæsti leikmaðurinn í Noregi, Viðar Örn Kjartansson, mun líklega söðla um á nýju ári. Hann er eft irsóttur og er meðal annars með
tilboð frá Kína. Sjálfur einbeitir hann sér að boltanum enda á hann möguleika á því að endurskrifa norska knattspyrnusögu.
MARKAHRÓKUR Viðar Örn Kjartansson hefur farið á kostum í norsku úrvals-
deildinni. Hann er á góðri leið með að bæta markametið þar. MYND/HEIMASÍÐA VÅLERENGA
„Þetta kom óvænt upp og var allt miklu stærra en ég hélt. Þetta var frekar
fyndið en mjög skemmtilegt,“ segir Viðar Örn, en hann er farinn að auglýsa
heita potta í Noregi.
Ekki bara það heldur hefur hann fengið pott með sínu eigin nafni. Potturinn
heitir Örn eins og margir kalla hann í Noregi.
„Það er íslenskt þema yfir þessum pottum. Það þarf að nota eld eða eitt-
hvað. Þetta er mjög skemmtilegt og flott. Þeir vildu endilega fá mig til þess að
auglýsa þetta fyrir sig og ég sagði af hverju ekki?“
Viðar Örn segist hafa fengið ágætlega greitt fyrir viðvikið en fékk hann líka
pott? Einn Örn?
„Ég fékk einn og ég læt senda hann heim til Íslands. Mamma mín fær hann
og á von á Erninum. Hún getur látið fara vel um sig þar. Það er alltaf gaman að
gleðja mömmu sína.“
Mamma Viðars fær heitan pott