Fréttablaðið - 20.09.2014, Blaðsíða 2
20. september 2014 LAUGARDAGUR
ÁLAG Í HÆSTARÉTTI Níu dómarar starfa við efsta dómstig landsins. Alls bárust Hæstarétti 826 ný mál í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ég fann ekki vel fyrr en
eftir að ég hætti störfum
mínum fyrir réttinn hve
álagið hafði verið mikið.
Það tók mig þá allt að því
hálft ár að ná jafnvægi í sál
og líkama.
Úr bók Jóns Steinars Gunnlaugssonar,
fyrrverandi hæstaréttardómara.
FIMM Í FRÉTTUM REKTOR Á FÖRUM OG ÓSÁTTUR ÞINGFORSETI
Jón Óttar Ólafsson, fyrr-
verandi rannsóknarlögreglu-
maður hjá Sérstökum sak-
sóknara, sagði frá sinni sýn á
starf embættisins í helgarblaði
Fréttablaðsins.
Hildur Sigurðardóttir
bóndi varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að
tveir dýrbítar réðust á lömbin
hennar og drápu.
Einar K. Guðfi nnsson, forseti Al-
þingis, segir mögulegt að setja sérlög
um vegarlagningu um Teigsskóg og
er ósáttur við niðurstöðu Skipulags-
stofnunar sem vill ekki heimila slíka
vegarlagningu.
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir, oddviti
framsóknarmanna í borgar-
stjórn, segir að verulega
skorti á að Reykjavíkurborg
uppfylli skyldur sínar varð-
andi félagslegt húsnæði.
➜ Kristín Ing-
ólfsdóttir, rektor
Háskóla Íslands,
greindi starfsfólki
sínu formlega frá
því á þriðjudag að
hún myndi hætta
í vor.
DÓMSTÓLAR Álagið á dómurum Hæstaréttar
hefur ekki minnkað frá því tekin var ákvörð-
un um að fækka þeim, eftir að þeim var fjölg-
að í kjölfar hrunsins. Dómurum við Hæstarétt
var fjölgað um þrjá árið 2011 og voru þá tólf,
en hefur nú aftur verið fækkað niður í níu.
Samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini A.
Jónssyni, skrifstofustjóra Hæstaréttar, voru
skráð mál sem lágu fyrir réttinum í júlí 453
talsins en árið 2009 voru þau 369. Þannig er
ljóst að álagið hefur ekki minnkað frá því
ákvörðun var tekin um að fækka dómurum
við réttinn. Alls bárust Hæstarétti 826 ný
mál í fyrra á móti 672 árið 2007. Það jafngild-
ir fjölgun upp á 23 prósent.
Í nýrri bók Jóns Steinars Gunnlaugssonar,
fyrrverandi hæstaréttardómara, sem vænt-
anleg er í október kemur fram að málafjöldi
einstakra dómara sé ótækur. Hann greinir frá
því að árið 2010 hafi hann dæmt í 336 málum
og efast um að unnt sé að finna annað dæmi
sem slái því við. „Ég fann ekki vel fyrr en
eftir að ég hætti störfum mínum fyrir rétt-
inn hve álagið hafði verið mikið. Það tók mig
þá allt að því hálft ár að ná jafnvægi í sál og
líkama,“ segir Jón Steinar í bók sinni.
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar
kemur fram að ekki er gert ráð fyrir fleiri
dómurum við Hæstarétt á komandi ári. Þann-
ig er gert ráð fyrir að Hæstiréttur fái alls
180,3 milljónir króna sem er hækkun frá því
í fyrra. Skýrist hækkunin annars vegar af
framlagi vegna uppfærslu á heimasíðu emb-
ættisins og hins vegar af ráðningu nýs aðstoð-
armanns dómara.
Þorsteinn vildi ekki tjá sig um það að svo
stöddu hvort álagið væri viðunandi og viðráð-
anlegt með þeim fjölda dómara sem nú starfar
við réttinn eða hvort fækkun dómaranna hefði
verið tímabær.
Innanríkisráðherra hefur boðað nýtt frum-
varp um millidómstig sem kemur til með að
létta álaginu af Hæstarétti töluvert og að dóm-
urum fækki í kjölfarið. Nefnd sem falið var
að fjalla um að koma slíku dómstigi á lagg-
irnar hefur ekki skilað af sér en von er á nið-
urstöðu hennar í haust. Þá mun vinna hefjast
við samningu frumvarps um millidómstigið
sem síðan á eftir að fá þinglega meðferð. Ljóst
er að verði það samþykkt mun samt sem áður
nokkur tími líða áður en því verður komið á
laggirnar. Ekki er gert ráð fyrir neinum fram-
lögum þess efnis í fjárlagafrumvarpi næsta
árs. fanney@frettabladid.is
Var hálft ár að jafna sig
eftir starfið í Hæstarétti
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, dæmdi í 336 málum á einu ári.
Dómurum við Hæstarétt var fækkað þrátt fyrir að málafjöldi aukist enn. Millidómstig er ekki í
augsýn. Ekki er gert ráð fyrir fleiri dómurum í fjárlagafrumvarpi Bjarna Benediktssonar.
EFNAHAGSMÁL Skilyrði til þess
að stíga næstu skref í losun fjár-
magnshafta hafa batnað frá því í
mars. Þetta kemur fram í skýrslu
fjármála- og efnahagsráðuneytis-
ins um stöðu hafta. Þar segir að
aðgengi ríkissjóðs að erlendum
lánamörkuðum sé gott um þess-
ar mundir eins og útgáfa evru-
skuldabréfa ríkisins í júlí hafi
staðfest og fjármögnunarkjör
hafi haldið áfram að batna eftir
því sem hefur liðið á árið.
Þá segir að reglubundin gjald-
eyriskaup Seðlabankans hafi
gengið vel á árinu og verið aukin
enn frekar á sumarmánuðum.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
á dögunum hefur aflandsgengi
krónunnar lækkað verulega að
undanförnu og hefur ekki verið
nær almennu gengi, eða svoköll-
uðu álandsgengi, frá bankahruni.
Þá segir í skýrslunni að Seðla-
bankinn hafi frá áramótum keypt
gjaldeyri umfram það sem hann
hafi selt fyrir 73,9 milljarða
króna. Afgangur af rekstri ríkis-
sjóðs árið 2014, stöðvun skulda-
söfnunar og áframhaldandi lækk-
un skulda hans sem hlutfall af
landsframleiðslu á næstu árum,
meðal annars í samræmi við
fjárlagafrumvarp ársins 2015 og
ríkisfjármálaáætlun næstu ára,
eru mikilvæg skref í átt að losun
fjármagnshafta. - jhh
Skilyrði til losunar fjármagnshafta batna vegna 74 milljarða gjaldeyriskaupa:
Seðlabankinn safnar gjaldeyri
VAXTA-
ÁKVÖRÐUN
Már Guð-
mundsson
seðlabanka-
stjóri og
Arnór Sig-
hvatsson
aðstoðar-
seðlabanka-
stjóri.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SUNNUDAGUR Breytingar á greiðsluþátttökukerfi
Formaður nefndar um greiðsluþátttökukerfi sjúklinga
vonast til að leggja fram róttækar tillögur um breytingar á
kerfinu á næstu mánuðum. Ef fyrirhugað frumvarp verður
að lögum mun enginn sjúklingur þurfa að greiða meira en
120 þúsund krónur á ári fyrir læknismeðferð, burtséð frá
umfangi hennar.
MÁNUDAGUR Birtu myndband af afhöfðun Þriðji
Vesturlandabúinn
var tekinn af lífi af
liðsmönnum Íslamska
ríkisins. Samtökin
birtu myndband sem
sagt var sýna afhöfðun
bresks hjálparstarfs-
manns, Davids Haines
að nafni. Bandarískir
leyniþjónustumenn
fullyrða að samtökin þurfi ekki lengur að treysta á fjárfram-
lög frá auðkýfingum við Persaflóann heldur séu þau farin
að þéna meira en þrjár milljónir Bandaríkjadala á dag með
olíusmygli, mansali, þjófnaði og fjárkúgunum.
ÞRIÐJUDAGUR Kostnaðarsöm veikindi Talið er að
veikindi starfsmanna Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og
fjarvistir vegna þeirra hafi kostað borgina 145 milljónir
króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Unnið er að því á
vegum borgarinnar að greina þessar miklu fjarvistir og
veikindi starfsmanna á sviðinu.
MIÐVIKUDAGUR Samskiptavandi á Velferðarsviði
Samskipta- og stjórnendavandi er til staðar á Velferðarsviði
Reykjavíkurborgar og hann hefur áhrif á þá þjónustu sem
sviðið veitir, þetta er meðal þess sem kemur fram í áfanga-
skýrslu umboðsmanns borgarbúa sem kynnt var á borgar-
stjórnarfundi í gær. Í skýrslunni kemur fram að 423 mál
komu til kasta umboðsmanns á sextán mánaða tímabili, af
þeim tengdist 161 Velferðarsviði borgarinnar.
FIMMTUDAGUR ASÍ gagnrýnir fjárlagafrumvarp
Alþýðusambandið telur ekki grundvöll fyrir frekara
samstarfi við ríkisstjórnina verði fjárlagafrumvarpið að
veruleika. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir við-
brögð ASÍ við fjárlagafrumvarpinu koma á óvart.
FÖSTUDAGUR Konur frekar kvíðnar í námi Niður-
stöður rannsóknar á líðan kvenna í háskólanámi sýna að
algengt er að þeim líði illa vegna álags og mikilla breytinga.
Einnig að fáar leiti sér hjálpar. Bil milli þarfa og þjónustu er
talið vera breitt.
LAUGARDAGUR. Efling heilsugæslu
„Það er afar brýnt að efla
heilsugæsluna og tryggja
stöðu hennar sem fyrsta
viðkomustaðar sjúklinga.“
SÍÐA 28
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Leikkonan Nanna Kristín Magnús-
dóttir frumsýndi stuttmyndina sína
Tvíliðaleik á kvikmyndahátíðinni í
Toronto í byrjun mánaðarins. Nanna
Kristín leikstýrði myndinni, skrifaði
handritið og framleiddi myndina.
Hún hefur nú þegar fengið fj ölmörg
boð um að sýna hana á kvikmynda-
hátíðum víða um heim. Eft ir hátíðina
birtist síðan stórt viðtal við Nönnu
Kristínu á kvikmyndasíðunni Indiewire
þar sem hún segir frá myndinni.
FRÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN
VIKAN 14.09.➜20.09.2014
Lyfjaval.is • sími 577 1160
15%
afsláttur
af öllum pakkni
ngum
Afslátturinn gildir í september.