Fréttablaðið - 20.09.2014, Blaðsíða 44
FÓLK|HELGIN
Þessa dagana kemur út bók eftir Björn Rúriksson sem að nokkru leyti prýða myndir af gosinu í Bárðarbungukerfinu – Holuhrauni. Bókin, sem
heitir „Iceland from above – land in creation“ kemur
út á ensku. „Hluti bókarinnar fjallar um nýja gosið.
Annars gefur bókin heildstæða mynd af landinu með
tilliti til eldvirkni en hún fjallar mikið um krafta í nátt-
úrunni, bæði um eldfjöll og þessa sérstöðu sem Ísland
hefur en það er að skríða í sundur. Texti bókarinnar er
aðgengilegur og skrifaður fyrir leikmenn,“ segir Björn.
Hann segir alltaf tilkomumikið að sjá eldgos og að
þau séu aldrei eins. „Myndirnar af þessu eldgosi eru
magnaðar en þær eru sumar teknar beint niður þar
sem landið var að rifna í sundur.“
Björn hefur flogið í 45 ár og myndað landið úr lofti.
Þannig sameinar hann sín helstu áhugamál; flugið og
ljósmyndunina. „Í gegnum tíðina hef ég mikið unnið
með erlendum aðilum, þar á meðal NASA, en snemma
á mínum ferli var starfsfólk stofnunarinnar að bera
saman myndir af jörðinni og öðrum hnöttum og not-
aði það meðal annars myndir af Íslandi frá mér. Ég hef
tekið mikið af myndum úr mikilli hæð, alveg við súr-
efnismörk þannig að mikið landflæmi kemst í mynd.
Myndirnar hafa líka verið notaðar sem kennsluefni
í Bandaríkjunum. Mér var boðið að sýna í mörgum
söfnum, en það var snemma á ferlinum og mér fannst
ég þá eiga lítið til að sýna. Þetta voru söfn eins og
Scandinavian house, Newark Art Museum, MoMA.
Ég sýndi síðar í sumum þeirra, en í byrjun ferils míns
sýndi ég listljósmyndir meðal annars í Lincoln Center
og Rockefeller Center,“ segir hann.
Myndirnar sem vöktu hvað mesta athygli í Banda-
ríkjunum eru listrænar, þær minna á málverk og
myndlist frekar en ljósmyndir af einhverju ákveðnu.
Foreldrar Björns voru leikarinn Rúrik Haraldsson og
Anna Sæbjörnsdóttir fatahönnuður. Það má því segja
að hann sé með listina í genunum og hún hafi svo
gengið áfram til sona Björns en þeir stunda báðir ljós-
myndun af miklum áhuga. „Þetta er nokkurs konar
fjölskylduáhugamál því konan mín, Siripan Raksa,
hefur líka mikinn áhuga. Hún kom til dæmis með mér
að mynda gosið núna og á flottar myndir í þessari
nýju bók. Okkur finnst gaman að skoða landið úr lofti
en hún er frá Taílandi og því margt nýtt að sjá fyrir
hana hér.“
ÍSLAND ÚR LOFTI
LJÓSMYNDUN Björn Rúriksson hefur flogið mikið innanlands, svo mikið að
það jafngildir um tuttugu ferðum kringum jörðina. Á þessum ferðum hefur
hann tekið ógrynni mynda af Íslandi úr lofti sem prýða nokkrar bækur hans.
ÁHRIFAMIKIÐ Hér sést þegar sprunga opnast í Holuhrauni. MYND/BJÖRN
MAGNAÐ Það var tilkomumikil sjón að sjá gíginn Norðra í Holuhrauni gjósa.
MYND/BJÖRN RÚRIKSSON
BAUGUR Gígurinn Baugur gýs eldi og eimyrju. MYND/BJÖRN RÚRIKSSON
BJÖRN RÚRIKSSON Björn er reyndur ljósmyndari sem hefur
gefið út þó nokkrar bækur sem innihalda fjölda fallegra mynda af
Íslandi. MYND/SIRIPAN RAKSA
LIST Margar mynda Björns eru líkari málverkum en ljósmyndum.