Fréttablaðið - 20.09.2014, Blaðsíða 46
Saman náum við árangri
Viðskiptaþróun
(Business Development)
Sérfræðingur í viðskiptaþróun ber ábyrgð á því að kortleggja
og greina ný viðskiptatækifæri í flutningum og flutningatengdri
þjónustu á íslenskum flutningamarkaði og vinnur náið með
afkomueiningum Samskipa í því skyni.
Í því felst meðal annars:
• Kortlagning og greining viðskiptatækifæra til lengri tíma
• Samskipti við aðila á markaði vegna framkvæmda og
nýfjárfestinga
• Þróun á framleiðslukerfum og þjónustuframboði félagsins
• Gerð viðskiptaáætlana og ábyrgð á innleiðingu þeirra
Hæfniskröfur
• Verkfræði-, viðskiptafræðimenntun eða sambærileg menntun
• Reynsla af verkefnisstjórnun eða sambærilegu æskileg
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Æskilegir eiginleikar
• Frumkvæði, áreiðanleiki, drifkraftur og sjálfstæði
• Metnaður, seigla og framsýni til að ná árangri í starfi
• Afburðagóð samstarfshæfni og jákvætt viðhorf
• Góð greiningar- og ályktunarhæfni
Umbætur í rekstri
(Business Process Improvement)
Sérfræðingur leiðir umbótavinnu á meginverkferlum
félagsins og vinnur náið með rekstrar- og afkomueiningum.
Í því felst meðal annars:
• Greining verkferla og umbætur
• Leiðir stærri umbótaverkefni
• Greinir tækifæri til úrbóta
• Samræming og utanumhald umbótaverkefna
Hæfniskröfur
• Tækni- eða viðskiptamenntun á háskólastigi
• Þekking og reynsla á sviði ferlagreiningar og umbóta
• Hæfni til að leiða hópvinnu og leiðbeina öðrum
• Reynsla af verkefnisstjórnun eða sambærilegum
störfum æskileg
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Æskilegir eiginleikar
• Afburðagóð samstarfshæfni og jákvætt viðhorf
• Frumkvæði, áreiðanleiki, drifkraftur og sjálfstæði í verki
• Metnaður, seigla og framsýni til að ná árangri í starfi
• Góð greiningar- og ályktunarhæfni
Samskip leita að öflugum og metnaðarfullum einstaklingum til að takast á við áhugaverð og krefjandi
störf hjá kraftmiklu flutningafyrirtæki sem starfar á alþjóðlegum vettvangi.
Samskip eru flutningafyrirtæki með starfsstöðvar víða um heim. Starfsfólk Samskipa býður viðskiptavinum faglega ráðgjöf og heildar-
lausnir á sviði flutninga- og flutningatengdrar þjónustu. Við höfum á að skipa fjölbreyttum hópi starfsfólks sem vinnur ávallt með frum-
kvæði, samheldni og þekkingu að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á markvisst fræðslustarf og tækifæri til starfsþróunar. Öryggis- og
heilbrigðismál starfsfólks eru í fyrirrúmi og bjóðum við upp á fyrirmyndar vinnuaðstöðu. Samskip eru Menntafyrirtæki ársins 2014.
Umsóknarfrestur er til og með 28. september nk.
Umsóknir skulu fylltar út á www.hagvangur.is
Nánari upplýsingar veita:
Elísabet Sverrisdóttir, elisabet@hagvangur.is
Kristín Guðmundsdóttir, kristin@hagvangur.is
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn ítarlegri ferilskrá
ásamt greinargóðu kynningarbréfi sem tilgreinir á
skilmerkilegan hátt hvernig umsækjandi uppfyllir kröfur
um menntun, reynslu, hæfni og eiginleika.
Smáralind Kringlan Glerártorg
slunarstjórumVer
yndaríkum og drífandi verslunarHugm stjórum, næmum fyrir hönnun og
með reynslu af því að stýra kraftmiklu fólki á líflegum vinnustað. stíl og
u og mátaðu þig í verslunarKomd stjórastarfi hjá ört vaxandi fyrirtæki.
rfsfólk í þjónustuSta
stuliprum og kraftmiklum einstaklingum í verslanir okkar í Þjónu
lind, Kringlunni og Glerártorgi. Við erum ábyrgt fyrirtæki og Smára
að stundvísu og heiðarlegu fólki með hlýtt, jákvætt og þægilegt leitum
t fyrir krefjandi og skemmtilegan vinnustað.viðmó
ki í fjölbreytt hlutastörfFól
fólki í fjölbreytileg hlutastörf, bæði í verslun og á lager fyrirtækisins. Starfs
ðum einstaklingum sem eru tilbúnir til að veita okkur fulla athygli á Jákvæ
álags mum og vera í símasambandi þess á milli. Reynsla af verslunarstörtí -
ostur en ekki skilyrði.fum k
knarfrestur er til og með 28. september 2014. Umsækjendur eru Umsó
mlegast beðnir að senda fyrirspurnir og ferilskrá með mynd á atvinvinsa -
x.is.na@ld
| ATVINNA | 20. september 2014 LAUGARDAGUR2