Læknablaðið - 15.01.2000, Page 53
UMRÆÐA & FRETTIR / SIÐANEFND
Úrskurður Siðanefndar LÍ
Ár 1999, mánudaginn 13. desember kom Siðanefnd
Læknafélags íslands saman til fundar á Landspítalan-
um í Reykjavík.
Fyrir er tekið
Erindi stjórnar Læknafélags Islands
frá 17. nóvember sl.
og kveðinn upp svohljóðandi
ÚRSKURÐUR
Með bréfi dagsettu 17. nóvember sl. vísaði stjórn
Læknafélags íslands erindi Sifjar Konráðsdóttur, hdl.
f.h. skjólstæðings hennar til Siðanefndar Læknafé-
lagsins. Erindi þetta barst stjórninni með bréfi dag-
settu 15. nóvember sl. og er þess þar farið á leit að til-
tekin atriði sem talin eru upp í bréfinu verði tekin til
sérstakrar athugunar auk annarra atriða er stjórn LÍ
telji ástæðu til að taka til umfjöllunar.
Málsatvik eru í stuttu máli þau, að með bréfi
dagsettu 17. ágúst sl. óskaði Jón Steinar Gunn-
laugsson, hrl. eftir skriflegu áliti Högna Oskars-
sonar, læknis, á því hvort hann teldi skýrslu sál-
fræðings, sem lögð hafði verið fram í dómsmáli,
sýna að kærandi í kynferðisbrotamáli væri haldinn
heilkenninu áfallastreitu. Jafnframt sagði lögmað-
urinn æskilegt að læknirinn léti fylgja sérfræðileg-
ar athugasemdir sínar um þá sönnunarfærslu um
sekt ákærða sem fælist í meðferð meirihluta hér-
aðsdóms á skýrslum sérfræðinga þeirra sem til
voru kvaddir. Um þetta skilaði læknirinn skýrslu
sem dagsett er 7. október sl. Með framangreindu
bréfi Sifjar Konráðsdóttur hdl. til stjórnar Lækna-
félags íslands lýsti hún því að umbjóðandi hennar
teldi Högna Oskarsson hafa gerst brotlegan við
siðareglur lækna með skýrslu sinni og óskaði af-
greiðslu málsins. Þá hefur verið lögð fram greinar-
gerð sem fylgdi bréfi Sifjar dagsettu 1. desember
sl. þar sem því er haldið fram að læknirinn hafi í
skýrslu sinni margoft þverbrotið siðareglur lækna
og læknalög.
Er Siðanefnd hafði borist erindi þetta boðaði
hún Högna Óskarsson lækni á fund sinn og gaf
honum kost á að gera grein fyrir viðhorfum sínum
gagnvart því sem fram kom í nefndu bréfi auk þess
að nefndin benti lækninum á þau atriði önnur sem
að mati nefndarinnar kæmu til álita og veitti lækn-
inum frest til 10. desember til þess að gera grein
fyrir viðhorfum sínum til þeirra álitaefna sem
nefndin hafði gert grein fyrir.
Nefndin bauð Sif Konráðsdóttur að koma á
fund sinn og gera munnlega grein fyrir máli sínu
en hún taldi þess ekki þörf.
Nefndin er þeirrar skoðunar að þau álitaefni
sem snerta faglegt mat, umfjöllun og efnistök
læknis í tilviki sem þessu heyri ekki undir hana og
bendir í því efni á ákvæði 3. mgr. 2. gr. laga nr.
14/1942 um læknaráð sbr. 3. gr. reglugerðar nr.
192/1942.
Afmarkast umfjöllun nefndarinnar því við þau
álitaefni sem hér á eftir er gerð grein fyrir og af-
staða tekin til.
Svo sem að framan er rakið óskaði verjandi
ákærðs manns eftir því við lækni að sá síðarnefndi
léti í Ijós sérfræðilegt álit um tiltekin atriði. í þessu
tilviki er það álitaefni hvort það hafi verið brot á
siðareglum lækna að vinna verk þetta þar sem
ákærði hafði verið sjúklingur læknisins. Nefndin
telur að þau tengsl sem voru með lækninum og
ákærða í rnálinu vegna þess að ákærði hafði verið
sjúklingur læknisins útiloki ekki að læknirinn hafi
mátt veita verjanda hans þá aðstoð á sérfræðisviði
sínu sem um var beðið. Telur nefndin að gagnstæð
niðurstaða þrengi kosti ákærðs manns við vörn
sína í sakamáli og feli í sér of þrönga takmörkun á
heimild læknis til að tjá sig í faglegum efnum. Þess
ber þó að gæta hér að slík tengsl kunna að sjálf-
sögðu að hafa áhrif á mat á því hversu hlutlæg slík
skýrsla er.
Það er og álitaefni hvort læknir eigi að vinna
verk af þessu tagi vegna þess, að tengsl hans við
sjúkling gefi tilefni til að draga hlutlægni hans í efa
og rýra þannig gildi slíkrar skýrslu. Það er álit
nefndarinnar hvað þetta snertir, að það sé mat
sjúklings og læknis hversu með skuli fara en að
það sé ekki brot á siðareglum lækna að gera slíka
skýrslu.
Það er því álit Siðanefndar að Högni Óskars-
son, læknir, hafi ekki gerst brotlegur við siðareglur
lækna með því að taka að sér að gera þá skýrslu
sem hann gerði.
Þá kemur til athugunar hvort læknirinn hafi
með einhverjum hætti reynt að leyna tengslum sín-
um við ákærða eða láta í veðri vaka að skýrsla
hans væri hlutlæg og þannig til orðin að jafna megi
til álitsgerða þeirra er fjallað var um í skýrslunni.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar að tengsl læknis-
ins og ákærða voru kunn er málið var dómtekið og
að bréf verjanda til læknisins þar sem fram koma
spurningar hans til læknisins lá frammi í málinu og
er ekki sýnt fram á það hér að ætlan læknisins hafi
verið sú að leyna tengslum sínum við ákærða og
telur Siðanefnd að læknirinn hafi ekki gerst brot-
legur við siðareglur lækna í þessu efni að heldur.
Ekki verður séð að umfjöllun læknisins um
Stjórn LÍ gerði þá
samþykkt árið
1985, að birta
skyldi alla úr-
skurði Siðanefnd-
ar Læknafélags
Islands í Lækna-
blaðinu. Hér er
birtur úrskurður
Siðanefndar í
máli Högna
Óskarssonar
geðlæknis.
Læknablaðið 2000/86 47