Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2000, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 15.01.2000, Blaðsíða 53
UMRÆÐA & FRETTIR / SIÐANEFND Úrskurður Siðanefndar LÍ Ár 1999, mánudaginn 13. desember kom Siðanefnd Læknafélags íslands saman til fundar á Landspítalan- um í Reykjavík. Fyrir er tekið Erindi stjórnar Læknafélags Islands frá 17. nóvember sl. og kveðinn upp svohljóðandi ÚRSKURÐUR Með bréfi dagsettu 17. nóvember sl. vísaði stjórn Læknafélags íslands erindi Sifjar Konráðsdóttur, hdl. f.h. skjólstæðings hennar til Siðanefndar Læknafé- lagsins. Erindi þetta barst stjórninni með bréfi dag- settu 15. nóvember sl. og er þess þar farið á leit að til- tekin atriði sem talin eru upp í bréfinu verði tekin til sérstakrar athugunar auk annarra atriða er stjórn LÍ telji ástæðu til að taka til umfjöllunar. Málsatvik eru í stuttu máli þau, að með bréfi dagsettu 17. ágúst sl. óskaði Jón Steinar Gunn- laugsson, hrl. eftir skriflegu áliti Högna Oskars- sonar, læknis, á því hvort hann teldi skýrslu sál- fræðings, sem lögð hafði verið fram í dómsmáli, sýna að kærandi í kynferðisbrotamáli væri haldinn heilkenninu áfallastreitu. Jafnframt sagði lögmað- urinn æskilegt að læknirinn léti fylgja sérfræðileg- ar athugasemdir sínar um þá sönnunarfærslu um sekt ákærða sem fælist í meðferð meirihluta hér- aðsdóms á skýrslum sérfræðinga þeirra sem til voru kvaddir. Um þetta skilaði læknirinn skýrslu sem dagsett er 7. október sl. Með framangreindu bréfi Sifjar Konráðsdóttur hdl. til stjórnar Lækna- félags íslands lýsti hún því að umbjóðandi hennar teldi Högna Oskarsson hafa gerst brotlegan við siðareglur lækna með skýrslu sinni og óskaði af- greiðslu málsins. Þá hefur verið lögð fram greinar- gerð sem fylgdi bréfi Sifjar dagsettu 1. desember sl. þar sem því er haldið fram að læknirinn hafi í skýrslu sinni margoft þverbrotið siðareglur lækna og læknalög. Er Siðanefnd hafði borist erindi þetta boðaði hún Högna Óskarsson lækni á fund sinn og gaf honum kost á að gera grein fyrir viðhorfum sínum gagnvart því sem fram kom í nefndu bréfi auk þess að nefndin benti lækninum á þau atriði önnur sem að mati nefndarinnar kæmu til álita og veitti lækn- inum frest til 10. desember til þess að gera grein fyrir viðhorfum sínum til þeirra álitaefna sem nefndin hafði gert grein fyrir. Nefndin bauð Sif Konráðsdóttur að koma á fund sinn og gera munnlega grein fyrir máli sínu en hún taldi þess ekki þörf. Nefndin er þeirrar skoðunar að þau álitaefni sem snerta faglegt mat, umfjöllun og efnistök læknis í tilviki sem þessu heyri ekki undir hana og bendir í því efni á ákvæði 3. mgr. 2. gr. laga nr. 14/1942 um læknaráð sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 192/1942. Afmarkast umfjöllun nefndarinnar því við þau álitaefni sem hér á eftir er gerð grein fyrir og af- staða tekin til. Svo sem að framan er rakið óskaði verjandi ákærðs manns eftir því við lækni að sá síðarnefndi léti í Ijós sérfræðilegt álit um tiltekin atriði. í þessu tilviki er það álitaefni hvort það hafi verið brot á siðareglum lækna að vinna verk þetta þar sem ákærði hafði verið sjúklingur læknisins. Nefndin telur að þau tengsl sem voru með lækninum og ákærða í rnálinu vegna þess að ákærði hafði verið sjúklingur læknisins útiloki ekki að læknirinn hafi mátt veita verjanda hans þá aðstoð á sérfræðisviði sínu sem um var beðið. Telur nefndin að gagnstæð niðurstaða þrengi kosti ákærðs manns við vörn sína í sakamáli og feli í sér of þrönga takmörkun á heimild læknis til að tjá sig í faglegum efnum. Þess ber þó að gæta hér að slík tengsl kunna að sjálf- sögðu að hafa áhrif á mat á því hversu hlutlæg slík skýrsla er. Það er og álitaefni hvort læknir eigi að vinna verk af þessu tagi vegna þess, að tengsl hans við sjúkling gefi tilefni til að draga hlutlægni hans í efa og rýra þannig gildi slíkrar skýrslu. Það er álit nefndarinnar hvað þetta snertir, að það sé mat sjúklings og læknis hversu með skuli fara en að það sé ekki brot á siðareglum lækna að gera slíka skýrslu. Það er því álit Siðanefndar að Högni Óskars- son, læknir, hafi ekki gerst brotlegur við siðareglur lækna með því að taka að sér að gera þá skýrslu sem hann gerði. Þá kemur til athugunar hvort læknirinn hafi með einhverjum hætti reynt að leyna tengslum sín- um við ákærða eða láta í veðri vaka að skýrsla hans væri hlutlæg og þannig til orðin að jafna megi til álitsgerða þeirra er fjallað var um í skýrslunni. Fram kemur í dómi Hæstaréttar að tengsl læknis- ins og ákærða voru kunn er málið var dómtekið og að bréf verjanda til læknisins þar sem fram koma spurningar hans til læknisins lá frammi í málinu og er ekki sýnt fram á það hér að ætlan læknisins hafi verið sú að leyna tengslum sínum við ákærða og telur Siðanefnd að læknirinn hafi ekki gerst brot- legur við siðareglur lækna í þessu efni að heldur. Ekki verður séð að umfjöllun læknisins um Stjórn LÍ gerði þá samþykkt árið 1985, að birta skyldi alla úr- skurði Siðanefnd- ar Læknafélags Islands í Lækna- blaðinu. Hér er birtur úrskurður Siðanefndar í máli Högna Óskarssonar geðlæknis. Læknablaðið 2000/86 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.