Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2000, Síða 56

Læknablaðið - 15.01.2000, Síða 56
UMR/EÐA & FRETTIR / TRYGGINGAMAL Um hóptryggingu lækna Svar við bréfum Guðmundar Helga Þórðar- sonar læknis Sjá Læknablaðið 7./8. tbl. og 11. tbl. 1999 Guðmundur Helgi Þórðarson læknir hefur fjallað um hóptryggingarsamning lækna í tveimur greinum í Læknablaðinu og beint fyrirspurnum til stjórnar af því tilefni. Um hóptryggingu lækna má almennt segja í byrjun að LI hafi í fjölda ára greitt félagsmönnum leið að góðum tryggingum á hagstæðari kjörum en almennt bjóðast á almennum markaði. Markmið félagsins hafa verið að ná öflugri vátryggingavernd fyrir félagsmenn sem eftir því leita og um leið hagstæðum iðgjöldum. Félagið annast innheimtu og greiðslu iðgjaldanna sem leiðir til hagstæðari kjara á iðgjöldum þeirra sem aðild eiga að tryggingunni en ella bjóðast. Var fyrsti samningurinn um hóptryggingu lækna gerður árið 1971 og samið á ný 1986 og aftur 1995. Á hverjum tíma var skoðað hvaða kostir voru í boði um verð og vátryggingavernd á markaðnum og gengið til samn- inga um þá skilmála sem þóttu hagstæðastir. I dag eiga 311 læknar aðild að hóptryggingu lækna og 142 makar lækna. Grunntryggingar í núgildandi samningi eru líf- trygging og sjúkra- og slysatrygging. Til viðbótar bjóðast afkomutrygging og líftrygging fyrir maka lækna. Skilmálar eru í öllum aðalatriðum samhljóða skilmálum fyrir sambærilegar einstaklingsbundnar tryggingar á markaðnum meðal annars um áhættu- upplýsingar tryggingataka. Þess má þó geta að við endurnýjun hóptryggingarsamningsins 1995 var þeim læknum sem aðild áttu að eldri tryggingu ekki gert að afla nýrra heilsufarsyfirlýsinga vegna nýju trygginga- skilmálanna, sem er almennt skilyrði aðildar að tryggingunni. Vegna fyrirspurnar Guðmundar Helga um hve mörgum hafi verið meinuð aðild að hóptryggingu lækna leitaði ég svara hjá Samlífi. Samkvæmt upplýs- ingum tryggingafélagsins hafa mjög fáir læknar feng- ið neitun um aðild að hóptryggingu lækna, - þeir verða taldir á fingrum annarrar handar. Þeir munu vera jafnfáir sem fengið hafa frestun á tryggingu. Samkvæmt starfsmanni Samlífs eru það niðurstöður úr breskum rannsóknum að um 2% umsókna um tryggingavernd sé hafnað af tryggingafélögum og að á um 5-7% umsækjenda leggist álag á iðgjöld vegna aðstæðna viðkomandi, tímabundið eða fast. Fyrir- spurn Guðmundar Helga um það hvaða áhrif það hefur á tryggingamöguleika lækna að vera meinuð aðild að hóptryggingunni verður að svara á þann veg að faglegt mat sem unnið er hjá tryggingafélögum gefi líklega mjög áþekka niðurstöðu hjá öllum trygg- ingasölum, að minnsta kosti mat á áhættuþáttum sem tengjast sjúkdómum. Önnur fagfélög munu ekki vera með sambærilegar tryggingar við hóptryggingu lækna. Innan Alþýðu- sambands íslands eru örfá félög með hóptryggingar auk trygginga samkvæmt kjarasamningum um slysa- tryggingu launþega. Tryggingaverndin er mun minni í þeim hóptryggingum en verndin sem felst í hóptrygg- ingarsamningi lækna. Allir félagsmenn viðkomandi félags eru tryggðir og iðgjöldin gjarnan greidd úr sjúkrasjóði félagsins. LI á væntanlega kost á því að tryggja alla félagsmenn sína þannig að slaka mætti á kröfum um heilsufarsupplýsingar. Með því yrðu allir læknar í félaginu væntanlega skyldaðir til að greiða iðgjöld fyrir trygginguna og þeir ættu vart neitt val um hvaða tryggingavernd þeir kaupa. Áhætta félagsins í innheimtu iðgjaldanna mundi aukast með tilliti til kostnaðar. Þennan valkost hafa trúnaðarmenn fé- lagsins vafalaust skoðað ítarlega við gerð samninga um tryggingarnar hverju sinni. Eitt fagfélag vísar félagsmönnum á tiltekið vá- tryggingafélag vegna frjálsra ábyrgðartrygginga sem félagsmennirnir semja siðan við hver fyrir sig. Má geta þess að samkvæmt samningum sjálfstætt starf- andi lækna við Tryggingastofnun ríkisins ber læknum að hafa starfsábyrgðartryggingar sem þeir semja um hver fyrir sig við tryggingafélögin. Ástæða getur verið til þess að á vegum LÍ starfi að jafnaði nefnd sem hefur tryggingamál lækna til með- ferðar því mikilvægt er að um þessi málefni ríki sátt meðal félagsmanna. Fyrir hönd stjórnar L1 Ásdís J. Rafnah framkvæmdastjóri 50 Læknablaðið 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.