Læknablaðið - 15.04.2001, Blaðsíða 26
SCHERING
lORMÓNALYKKJi
Levónorgestrel 20 míkróg / 24 klst
GETNAÐARVORN
FYRIR KONUR SEM HAFA FÆTT
- einnig meðan á brjóstagjöf stendur -
ÞÆGILEG:
„Geymd og gleymd"
ÖRYGGI SAMBÆRILEGT
Vlð ÓFRJÓSEMISAðGERð
Getnaðarvarnaráhrif hverfa um
leið og lykkjan er fjariægð1'1
Levonova Leiras, 920074
LYKKJA í LEG (lyfjalykkja); G 03 A C 03. Hver lykkja inniheldur: Levonorgestrelum INN 52 mg: gefur frá sér 20 míkróg/24 klst.
Ábendingar: Getnaðarvörn, miklar legblæðingar. Skammtar: Lykkja er sett í legið innan 7 daga frá upphafi tíöablæöinga.
Levonova má setja í leg í fyrsta lagi 6 vikum eftir fæðingu. Lykkjuna á að fjarlægja eftir 5 ár. í upphafi losar lykkja 20 míkróg
af levónorgestreli á sólarhring. Frábendingar: Staðfest þungun eða grunur um þungun. Sýking í kynfærum. Staðfest eða
grunur um meinsemd í legi eða leghálsi. Ósjúkdómsgreindar óeðlilegar legblæðingar. Meðfædd eða áunninn afbrigðleiki í
legi, þ.á.m. góðkynja bandvefsæxli ef þau aflaga legholið. Bráðir lifrarsjúkdómar eða lifraræxli. Segarek.
Varnaðarorð og varúðarreglur: Ef eitthvert af eftirfarandi er til staðar eða kemur fram í fyrsta skipti skal athuga hvort fjar-
lægja þurfi lykkjuna eða nota megi hana í nánu samráði við sérfræðing: mígreni, versnandi mígreni, staðbundið mígreni með
ósamhverfum sjónmissi eða öðrum einkennum sem geta bent til tímabundins blóðskorts í heila; alvarlegur nístandi höfuð-
verkur; gula; greinileg aukning í blóðþrýstingi; staðfest eða grunur um hormónaháða æxlismyndun, þ.á.m. brjóstakrabba-
mein, meinsemdir sem hafa áhrif á blóð eða hvítblæði; alvarlegir slagæðasjúkdómar eins og heilablóðfall eða kransæðastífla;
segabláæðabólga. Gera skal viðeigandi sjúkdómsgreiningar og lækningafræðilegar ráðstafanir þegar í staö ef til staöar eru
einkenni eða merki sem benda til blóðtappamyndunar í sjónhimnu; óútskýrður sjónmissir að hluta til eða alger, upphaf á út-
eygð eða tvísýni, doppubjúgur eða æðaskemmd í sjónhimnu. Levónorgestrel í litlum skömmtum getur haft áhrif á sykurþol,
og skal fylgjast með blóðstyrk glúkósa hjá sykursjúkum sem nota Levonova. Óreglulegar blæðingar geta dulið einkenni og
merki um krabbamein í legslímhúð.
Milliverkanir: Lyf sem örva lifrarensím geta skert virkni getnaðarvarnalyfja sem innihalda hormón þ.á.m. barbitúröt,
fenýtóín, karbamazepín og rífampisín. Áhrif þessara lyfja á verkun Levonova hafa ekki verið rannsökuð en þau eru ekki tal-
in mikilvæg því Levonova er aðallega staðbundin getnaðarvörn.
Meðganga og brjóstagjöf: Meöganga: Ef þungun verður á meðan Levonova er notuð þarf að fjarlægja lykkjuna og íhuga
ætti fóstureyðingu. Ef slíkt er ekki hægt á að upplýsa konuna um að við notkun kopar- og plastlykkja er aukin áhætta sjálf-
krafa fósturláts eða fyrirmálshríða. Auk þess skal fylgjast vel með slíkri meögöngu. Vegnalegu sinnar í legi og staðbundinna
áhrifa hormónsins, er ekki hægt að útiloka algjörlega að lyfið valdi fósturskaða (einkum aukin karlkynseinkenni fósturs).
Klínísk reynsla af þungun þegar Levonova er notuð er takmörkuð vegna öflugra getnaðarvarnaráhrifa. Brjóstagjöf: Dags-
skammtur og blóðþéttni levónorgestrels við notkun Levonova er lægri en eftir aðrar hormónagetnaöarvarnir. Levónorgestrel
hefur greinst í brjóstamjólk kvenna. Hormónagetnaðarvarnir eru ekki ráðlagðar sem fyrsta val á getnaðarvörn hjá konum
með barn á brjósti. Levonova kemur þó vel til greina sé gestagen getnaðarvörn talin viöeigandi.
Aukaverkanir: Algengasta aukaverkun Levonova er breyting í tíöablæðingamynstri. Breytingin getur faliö í sér blettablæð-
ingar, styttri eða lengri tíöablæðingar, óreglulegar blæðingar, tíðafæð/tíðateppu, miklar blæðingar, bakverki og tíðaþrautir.
Truflun á tíðablæðingum veldur því að 9% þeirra sem nota Levonova hætta notkun fyrsta árið. Þungun sem veröur þegar
Levonova er notuð getur veriö utanlegs. Grindarholssjúkdómar geta komið fram hjá þeim sem nota Levonova. Lykkjan eða
hluti hennar getur farið í gegnum legvegginn. Stærri eggbú (starfrænar blöðrur á eggjastokkum) geta myndast.
Meðhöndlun: Levonova er í dauðhreinsuðum pakkningum sem ekki á aö opna fyrr en við uppsetningu lykkjunnar. Viðhafa
skal smitgát þegar lykkjan er meðhöndluð. Ef innsigli dauðhreinsaða pokans er rofið á að henda lykkjunni. Sérstakar leið-
beiningar um uppsetningu er aö finna í pakkningunni.
Pakkningar og verð 1. Október 2000: 1 stk 15.207 kr.
Afgreiðslutilhögun: Lyfið er lyfseðilsskylt. Greiðslufyrirkomulag: 0. Nán-
ari upplýsingar í texta Sérlyfjaskrár. Handhafi markaðsleyfis: Schering AG.
Umboðsmaður á islandi: Thorarensen Lyf ehf.. UIS-00-81.
Thorarensen Lyf Heimildir: "’Andersen et al.Contraception 1994;49:56-72. (:iAndersen
v,4., i8 io4 R«rk|.wk simí 568 6044 Br.J.Obstet.Gynaecol. 1990;97:690-694.
BLÆÐINGAR MINNKA,
styttast eða hverfa alveg.
Dregur úr tíðaverkjum®
V
Levonova'
Getnaðarvörn nýrrar aldar