Læknablaðið - 15.04.2001, Blaðsíða 53
FRÆÐIGREINAR / ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA
SV 11 Aldamótakönnun meðal svæfingalækna: A) notkun
vöðvaslakandi lyfja við svæfingar, B) hryggdeyfingar og
armflækjudeyfingar
Oddur Fjalldal, Jón Sigurðsson
Svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala Hringbraut
Inngangur: A. Fyrir hálfri öld var súxametón tekið í notkun, en það
var fyrsta vöðvaslakandi lyfið sem notað var við svæfingar. Síðan þá
hafa nokkur önnur vöðvaslakandi lyf komið á markað, en súxa-
metón er þó enn í notkun. B. Hryggdeyfingar (mænuvökva-
deyfingar og utanbastsdeyfingar) hafa verið notaðar í stórum stíl
síðustu áratugi og hlutfallslega virðist notkun þeirra aukast. Hins
vegar fer armflækjudeyfingum sennilega fækkandi.
Efniviður og aðferðir: Spumingalisti var sendur öllum (45)
starfandi svæfingalæknum á Islandi, einnig fjórum (fjórum) lands-
byggðarsjúkrahúsum, þótt ekki væru þar svæfingalæknar í starfi.
Spurningum svöruðu 46 (94%).
NiðurstöðuK Notkun súxametóns: mikil 9%, stundum 37%, sjaldan
46%, aldrei 7%. Önnur vöðvaslakandi lyf mest notuð: vecuronium
9%, rocuronium 87%, atracurium 2%. Æskileg vöðvaslakandi lyf:
suxametón 91%, pancuronium 41%, vecuronium 33%, rocuronium
83%, atracurium 26%, cisatracurium 35%, mivacurium 4%,
rapacurium 7%. Notkun mænuvökvadeyfinga: mjög mikil 15%,
mikil 54%, stundum 15%, sjaldan 4%, aldrei 13%. Staðdeyfilyf:
lídókaín 1/41, 2%, búpívakaín 40/41, 98%. Notkun utan-
bastsdeyfinga við skurðaðgerðir: mjög mikil 7%, mikil 43%,
stundum 26%, sjaldan 9%, aldrei 15%. Lyf (af 39 sem nota
deyfinguna): lídókaín 5%, mepívakaín 8%, búpívakaín 65%,
rópívakaín 22%. Notkun armflækjudeyfinga: mjög mikil 2%, mikil
15%, stundum 22%, sjaldan 48%, aldrei 13%.
Alyktanir: Suxametón er talið nauðsynlegt lyf, þótt notkun þess sé
ekki mikil. Vecuronium, sem var mjög mikið notað þar til fyrir
tveimur til þremur árum, er nú lítið notað. Pancuronium, lyf
áttunda og níunda áratugarins, er lítið notað, en margir vilja þó hafa
það við hendina. Rocuronium er langmest notað allra vöðva-
slakandi lyfja og talið besta vöðvaslakandi lyfið nú í byrjun nýrrar
aldar. Utanbastsdeyfingar eru talsvert notaðar við skurðaðgerðir.
Mænuvökvadeyfingar hins vegar mun meira og staðdeyfilyf númer
eitt er búpívakaín. Armflækjudeyfing skipar áfram ákveðinn sess í
svæfingalæknisfræðinni, þótt meira en helmingur svæfingalækna
noti þessa deyfingu sjaldan eða aldrei.
SV 12 Monsjör Lemierre í heimsókn. Sjúkratilfelli
Sigurður E. Sigurðsson', Helga Kristín Magnúsdóttir', Girish Hirlekar',
Sigurður HeiðdaF
'Svætinga og gjörgæsludeild og 'lyflækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri
Saga: Þrjátíu og þriggja ára karlmaður veikist með hita, hálsríg,
ógleði og uppköstum. Hann beið í fimm daga með að leita sér
læknishjálpar og þá í gegnum síma. Daginn eftir versnaði honum
hratt og var orðinn gulur. Fór þá hraða leið frá heilsugæslustöð til
gjörgæslu með stuttri viðkomu á lyfjadeild.
Við komu á gjörgæslu var sjúklingur með alvarleg blóðeitrunarein-
kenni, í nýmabilun, mjög brengluð lifrarpróf, saltbúskapur rask-
aður, með blóðflögufæð og var í byrjandi öndunarbilun. Sett var
barkarenna og sjúklingur lagður í öndunarvél tveimur dögum
seinna vegna versnandi öndunarbilunar. Enn tveimur dögum
seinna er fyrirhugað að skipta um barkarennu vegna stíflu en þá
vellur upp blóðlitaður gröftur frá hálskirtlabeði. Tölvusneiðmynd
og ómun leiða síðan í ljós bólgu í koki, stíflu í innri hóstarbláæð (v.
jugularis interna) og margar ígerðir í lungum. Blóðræktun leiðir í
ljós þrjár tegundir sýkla: Streptococcus milleri, Bacteroides fragilis
og að auki gram-neikvæðan loftfælinn staf sem ekki hefur enn
fengist nákvæm greining á. Með almennri stuðningsmeðferð og
sýklalyfjum batnaði sjúklingi hægt en örugglega. Eftir fimm daga
öndunarvélarmeðferð var barkarenna fjarlægð og fimm dögum
síðar var sjúklingur útskrifaður á legudeild og til síns heima 17
dögum síðar án varanlegs meins.
Umræða: Heilkenni Lemierres er greint á þríeykinu ígerð í hálsi,
sýktur segi í hálsbláæð og sýkt meinvörp, sérstaklega í lungum.
Orsökin er nánast alltaf sýkill sem kallast Fusobacterium
necrophorum, sem er gram-neikvæður algerlega loftfælinn sýkill.
Lemierre lýsir 20 tilfellum í Lancet 1936 með 90% dánartíðni. Fram
að tímum sýklalyfja virðist þetta nokkuð vel þekktur sjúkdómur og
þá sérstaklega vegna hárrar dánartíðni. Síðustu áratugi hefur
sjúkdómurinn næstum horfið þó menn velti fyrir sér hvort greina
megi aukningu þegar reynt er að draga úr notkun sýklalyfja. í
afturskyggnri rannsókn í Danmörku er tíðnin reiknuð 1 á 1.000.000
íbúa en þar telja menn að þetta sé vangreint. Horfumar í dag eru
mjög góðar ef réttri meðferð er beitt, það er opna ígerð, gefa
sýklalyf og veita almenna stuðningsmeðferð.
Heimild
Hagelskjaer Kristensen L, Prag J. Human necrobacillosis, with emphasis on
Lemierre's syndrome. Clin Infect Dis 2000; 31:524-32.
SV 13 Nátturuefni, notkun og áhrif þeirra á svæfingu og skurðaðgerð
Girish Hirlekar
Svæfinga- og gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri,
Inngangur: Notkun náttumefna (nátturulyfja, nátturuvara og
fæðubótarefna) hefur farið stöðugt vaxandi í Bandaríkjunum og
Evrópu. Engar tölur eru til um það hér á landi en notkun þeirra gæti
verið að aukast að sama skapi. Talið er að sala nátturuefna hafi
numið hátt í fjórum milljörðum dollara eða liðlega 350 milljörðum
íslenskra króna í Bandaríkjunum fýrir þremur árum. Fimmti hver
maður þar í landi, sem notar hefðbundin lyf, notar einnig
nátturuefni. Talið er að fleiri noti þessi efni en rannsóknir benda til.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur viðurkennt notagildi og öryggi
þessara efna sem hafa verið í notkun í aldaraðir hjá mörgum
þjóðum. Þrátt fyrir það hefur litið verið rætt um auka- og
eiturverkanir þessara efna og þá sérstaklega í sambandi við
svæfingar og skurðaðgerðir.
Eftiiviður: Meðal þessara efna eru ginseng, ginkgo biloba, efedra,
hvítlaukur, engifer, freyspálmi, sólhattur, Jóhannesarjurt, baldrian
og fleiri. Margar ábendingar eru til um notkun þessara efna,
studdar vísindalegum rannsóknum. I viðtölum lækna við sjúklinga
er sjaldan spurt um notkun nátturuefna. Oft heldur sjúklingurinn
Læknablaðið 2001/87 325