Læknablaðið - 15.04.2001, Blaðsíða 108
f
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI
Staða sérfræðings í
almennum
lyflækningum og
hjartalækningum
Laus er til umsóknar staða lyflæknis með undirgrein í
hjartasjúkdómum við lyflækningadeild. Umsækjandi skal
hafa fullgild réttindi í lyflækningum og hjartalækningum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu í öllum
hefðbundnum störfum hjartasérfræðings, sérstaklega í
hjartaómskoðunum og gangráðsísetningum. Einnig skal
umsækjandi hafa góða reynslu í almennum lyflækningum.
Staða sérfræðings
í almennum
lyflækningum
Laus er til umsóknar staða lyflæknis við lyflækningadeild.
Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í almennum
lyflækningum og einhverri undirgrein lyflækninga, til
dæmis meltingarfærasjúkdómum, krabbameins- eða
blóðlækningum eða nýrnasjúkdómum.
Störfunum fylgir vaktaskylda á lyflækningadeild, þátttaka
í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun aðstoðar- og
deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknavinnu.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu
ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og
sjálfstæðra vinnubragða.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum
sjúkrahúslækna og möguleiki er á ferliverkasamningi við
sjúkrahúsið.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um náms-
og starfsferil ásamt upplýsingum um fræðilegar
rannsóknir og ritstörf auk kennslustarfa. Umsóknarfrestur
um framangreindar stöður er til 20. apríl 2001. Stöðurnar
veitast frá 1. júní eða eftir samkomulagi.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt
fylgiskjölum, skulu berast í tvíriti til Þorvaldar
Ingvarssonarframkvæmdastjóra lækninga. Nánari
upplýsingar gefa Jón Þór Sverrisson forstöðulæknir
lyflækningadeildar, í síma 460 3100, Nick Cariglia
yfirlæknir meltingasjúkdóma á lyflækningadeild og
Þorvaldur Ingvarsson framkvæmdastjóri lækninga í síma
460 3100, tölvupóstur thi@fsa.is
Staða yfirlæknis á
meinafræðideild
Staða yfirlæknis á meinafræðideild er laus til umsóknar.
Við deildina vinna fimm starfsmenn en verður fjölgað um
tvo innan tíðar, jafnframt stendur fyrir dyrum flutningur í
nýtt húsnæði. Deildin, sem er vel tækjum búin, þjónar um
40 þúsund manna byggðarlagi, það er mestöllu
Norðurlandi og Norðausturlandi. Árlega berast skurðsýni
úr 2.400-2.500 sjúklingum og krufningar eru á bilinu 45-
50, um helmingur þeirra réttarfræðilegur. Vaktskylda er
innifalin. Starfsfólk deildarinnar hefur annast
meinafræðikennslu við heilbrigðisdeild Háskólans á
Akureyri og vinna við rannsóknaverkefni er orðin
veigamikill þáttur í daglegu starfi. Hefur sérstök rækt
verið lögð við rannsóknir á sjúkdómum í meltingarvegi í
samvinnu við speglunardeild. Á döfinni er samstarf við
líftæknifyrirtæki og áform um samstarfsverkefni með
Háskólanum á Akureyri eru á umræðustigi.
í umsókn skal gerð grein fyrir náms- og starfsferli, rit-,
kennslu- og stjórnunarstörfum, svo og sérstökum
áhugasviðum faglegs efnis.
Við ráðningu verður sérstaklega tekið mið af sem
víðtækastri reynslu í klínískri vefjameinafræði. Færni í
túlkun ónæmisfræðilegra litunaraðferða er áskilin. Lagt
verður mat á framlagðar ritsmíðar.
Staða sérfræðings
á meinafræðideild
Staða sérfræðings á meinafræðideild er laus til umsóknar.
Óskað er eftir ítarlegum upplýsingum um nám og fyrri
störf, þar með talin rannsóknavinna og kennsla.
Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt, meðal annars
sinnt frystiskurðarþjónustu. Auk hefðbundinnar vinnu við
sjúkdómsgreiningu, er ætlast til þátttöku í
rannsóknaverkefnum og kennslu.
Umsóknarfrestur um framangreindar stöður á
meinafræðideild er til 1. júní 2001, en stöðurnar veitast
frá 1. september eða eftir samkomulagi. Laun eru
samkvæmt gildandi kjarasamningum sjúkrahúslækna. Við
ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt
hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra
vinnubragða. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar
upplýsingar um náms- og starfsferil ásamt upplýsingum
um fræðilegar rannsóknir og ritstörf auk kennslustarfa.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt
fylgiskjölum, skulu berast í tvíriti til Þorvaldar
Ingvarssonar framkvæmdastjóra lækninga, sem jafnframt
veitir nánari upplýsingar í síma 463 0109, tölvupóstfang:
thi@fsa.is
Öllum umsóknum um stöðurnar verður svarað.
380 Læknablaðið 2001/87