Læknablaðið - 15.09.2001, Blaðsíða 7
FRÁ RITSTJÓRN
Aldrei aftur Eldborg!
Guðrún
Agnarsdóttir
Nú hafa 22 stúlkur leitað
aðstoðar Neyðarmóttöku
vegna nauðgunar eftir síð-
ustu verslunarmannahelgi.
Fjórtán þeirra höfðu verið
á Eldborgarhátíð. Par voru
einnig þrír hjúkrunarfræð-
ingar Neyðarmóttökunnar
sem skiptust á að liðsinna
ungmennum í vanda. Þeim
blöskraði svo ástandið og
aðstæður allar að þær kölluðu til fundar með land-
lækni og hafa nú skilað ítarlegri skýrslu og tillögum
til úrbóta. Dómsmálaráðherra brást einnig við og
hefur skipað starfshóp með fulltrúum landlæknis,
Neyðarmóttöku vegna nauðgunar, ríkislögreglu-
stjóra, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Sýslu-
mannafélags íslands, Stígamóta auk ráðuneytisins.
Þessum hópi er ætlað að fara yfir gildandi lög og
reglur er snerta skemmtanahald á útihátíðum og
leggja fram tillögur sem miða að því að samræma
enn fekar samstarf þeirra aðila sem koma að lög-
og heilsugæslu á slíkum hátíðum og endurskoða
reglur um þær.
Rúmlega hundrað einstaklingar leita til Neyð-
armóttöku árlega og um 65% þeirra eru undir 25
ára aldri, konur í miklum meirihluta. Fleiri koma
yfir sumarmánuðina. Algengasta ástæðan fyrir
komu er nauðgun. Flestir koma um helgar en þá
verða flest brotin og fylgja skemmtanalífi ungs
fólks þar sem neysla vímuefna, oftast áfengis, getur
verið mikil. Neysluvenjur og viðhorf virðast okkur
vera að breytast, meira drukkið en áður, og oftar
þannig að leiði til áfengisdauða. Fleiri ungum
stúlkum er nauðgað í slíku ástandi þar sem þær
geta enga björg sér veitt. Lögin kveða svo á að þá
sé um misneytingu að ræða, ekki nauðgun, og refsi-
ákvæði eru vægari. í Noregi hafa lögin verið endur-
skoðuð og liggur nú jafnþung refsing við misneyt-
ingu og nauðgun.
Talsvert hefur verið rætt um byrlun lyfja að und-
anförnu. Er þá oftast grunur um Rohypnol eða
gammasmjörsýru (gammabutyric acid). Starfsfólk
Neyðarmóttöku hefur verið vakandi fyrir þessari
hættu og tekið blóðsýni ef grunur er um slíkt en
þessi efni hafa aldrei verið greind enda skiljast þau
fremur hratt úr líkamanum og hætt við að of seint
sé leitað aðstoðar.
Við höfum einnig tekið eftir því að hópnauðg-
anir eru nokkuð fleiri en áður, virðast af ásetningi
og kynhegðunin endurspeglar klámiðnað og aukna
markaðssetningu kynlífs hér á landi. Óskammfeilin
sala kynlífsþjónustu og kláms þar sem konan er
meðfærileg markaðsvara en ekki vera með tilfinn-
ingar og þarfir getur mótað viðhorf og reynslu
ungra drengja sem eru að byrja kynlíf. Neysla
kláms er börnum og unglingum aðgengileg á Net-
inu og þannig geta þau komist í tæri við hugmynd-
ir og einstaklinga sem síðan leiða þau til fundar við
sig með ömurlegum afleiðingum. í grunnskólum
hefur að undanförnu orðið vart við að stúlkur séu
þvingaðar til hópsamfara til að fá inngöngu í hóp
ráðandi félaga.
A Islandi eru börn og unglingar mun hærra
hlutfall þjóðarinnar en hjá flestum nágrannalönd-
um okkar. Frelsi þeirra til athafna og möguleikar til
að afla eigin fjár með vinnu hefur lengi verið mun
meira en jafnaldra í nágrannalöndum og það aga-
leysi sem er bæði styrkur og veikleiki íslenskrar
þjóðar endurspeglast með ýmsum hætti í viðhorf-
um og hegðun þeirra. I neysluþjóðfélagi nútímans
eru ungu kynslóðirnar líka viðskiptavinir. Á útihá-
tíðum verslunarmannahelgar eru þeir einn stærsti
neytendahópurinn. Utihátíðin við Eldborg varð
lexía um það hvernig ekki á að búa að ungu fólki
sem langar að skemmta sér. Þar var stórum hópi
unglinga stefnt saman og sprengdi fjöldinn fljótt
þann ramma sem búinn hafði verið um alla að-
stöðu. Nauðganir, vímuefnasala, þar á meðal dreif-
ing og byrlun á smjörsýru, skipulagt ofbeldi ungra
manna sem gengu um með barsmíðum eða fleygðu
glerflöskum sem brotnuðu í mannþrönginni, eftir-
litslaust teygjustökk ölvaðra unglinga í myrkri að
næturlagi eru dæmi um agalausa áhættuhegðun
sem krefst viðbragða heilbrigðisstarfsfólks. Lág-
markskröfur um aðbúnað og faglega aðstöðu til að
veita heilbrigðisþjónustu og liðsinna skjólstæðing-
um voru ekki uppfylltar og þó líkja mætti svæðinu
við stríðsástand voru aðstæður heilbrigðisstarfs-
fólks verri en í Bosníu að mati eins hjúkrunarfræð-
inganna. Það er foreldrum landsins styrkur að heil-
brigðisstarfsfólk skuli hafa gefið reiði sinni mál-
efnalegan farveg með uppbyggilegri, faglegri gagn-
rýni. Slíkt leiðir vonandi til úrbóta og viðhorfs-
breytinga. Aldrei aftur Eldborg!
Höfundur er í yfirlæknir Neyðarmóttöku vegna nauðgunar á
slysa- og bráðamóttöku Landspítala Fossvogi.
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir
handrita til ritstjórnar
Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8, 200
Kópavogi. Annað án nafna
höfunda, stofnana og án
þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing
þess efnis að allir höfundar
séu lokaformi greinar
samþykkir og þeir afsali
sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með
tvöföldu línubili á A-4
blöðum. Hver hluti skal
byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar,
stofnanir, lykilorð á ensku
og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töttur og inyndir skulu vera
á ensku eða íslensku, að
vali höfunda.
Tölvuunnar niyndir og gröf
komi á rafrænu formi
ásamt útprenti. Tölvugögn
(data) að baki gröfum fylgi
með, ekki er hægt að nýta
myndir úr PowerPoint eða
af netinu.
Sérstaklega þarf að semja
um birtingu litmynda.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi
með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
http://www.icemed.is/
laeknabladid
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta
blað er 20. undanfarandi
mánaðar nema annað sé
tekið fram.
Læknablaðið 2001/87 691