Læknablaðið - 15.09.2001, Blaðsíða 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / UMSÖGN SIÐFRÆÐIRÁÐS
Umsögn stjórnar Siðfræðiráðs
Læknafélags íslands
Til stjórnar Læknafélags Íslands
Kópavogi 25. júní 2001
Með bréfi dags. 4. janúar s.l. óskaði stjórn Lækna-
félags íslands eftir því að stjórn Siðfræðiráðs LÍ veitti
umsögn um erindi, sem Sigurður Thorlacius, trygg-
ingayfirlæknir beindi til stjórnar LÍ með bréfi dags.
19. desember 2000.
í erindi sínu óskaði Sigurður Thorlacius eftir áliti
stjórnar LI á því hvort tilhlýðilegt sé, að læknir skrifi
læknisvottorð sem liggja mun til grundvallar við
ákvörðun um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar
ríkisins (t.d. beiðni um sjúkraþjálfun eða læknis-
vottorð vegna umsóknar um örorkubætur) fyrir:
a) sjálfan sig,
b) einstakling sem telst til nánustu fjölskyldu hans.
Bréfi stjórnar LÍ fylgdi jafnframt afrit af bréfi Jóns
Steinars Jónssonar, læknis til tryggingayfirlæknis
dags. 6. desember 2000, sem Jón Steinar sendi stjóm
LÍ. Þar kemur fram að Tryggingastofnun ríkisins hafi
endursent beiðni Jóns Steinars um þjálfun sem hann
hefði skrifað Tryggingastofnun ríkisins og tekið fram
að ekki þyki við hæfi að læknir sæki um greiðsluþátt-
töku fyrir sjálfan sig eða fjölskyldu sína. Óskaði Jón
Steinar eftir því að Tryggingastofnun afgreiddi beiðn-
ina þar sem um misskilning hlyti að vera að ræða. Að
öðrum kosti óskaði hann eftir því að tryggingayfir-
læknir gerði grein fyrir því skriflega hvaða lög heimili
honum að skerða starfsréttindi sín með þessum hætti.
í svari tryggingayfirlæknis til Jóns Steinars dags.
19. desember 2000, sem fylgdi erindi hans til stjórnar
LÍ segir m.a. að hann geti ekki vísað í Iög hvað þetta
varðar. Málið snúist hins vegar um siðferði. Kvaðst
hann því beina framangreindu álitaefni bæði til
stjórnar LÍ og landlæknis í þeim tilgangi að móta
almenna stefnu varðandi þetta og önnur sambærileg
siðferðileg álitamál.
Sigurður Thorlacius og Jón Steinar Jónsson komu
á fund stjórnar Siðfræðiráðs 29. maí s.l., þar sem álita-
efnið var ítarlega rætt.
Kynnti Sigurður m.a. álit landlæknis á fyrirspurn-
inni dags. 19. desember 2000. Þar segir m.a. að nú sé
það svo að læknar skrifi lyfseðla fyrir sjálfa sig og fjöl-
skyldur sínar, biðja um ýmiss konar lækningarann-
sóknir á borð við blóðrannsóknir, röntgenrannsóknir
og í einstaka tilvikum hafi það gerst að læknir geri
aðgerðir á einhverjum úr fjölskyldu sinni. Örðugt sé
því að greina læknisvottorð af þ ví tagi sem hann nefni
frá ofanskráðu. í þessu efni eins og ýmsu öðru verði
að treysta á dómgreind lækna og siðferði að þeir
gangi ekki út fyrir mörk þekkingar sinnar og getu.
Erfitt virðist að setja um þetta reglur eða leiðbein-
ingar sem ekki brytu í bága við jafnræðisregluna.
Umsögn stjórnar Siðfræðiráðs LÍ
Eftir umræður í stjórn Siðfræðiráðs hinn 25. júní 2001
var eftirfarandi umsögn samþykkt:
„Það er meginregla að læknar skulu vera óvilhallir í
störfum sínum, s.s. um vottorðagjöf, ávísun lyfja og
beiðnir um lækningarannsóknir og hlýðir þeim að
staðfesta það eitt sem þeir hafa sjálfir gengið úr
skugga um á grundvelli sérþekkingar sinnar, sam-
visku og dómgreindar.
Starfsréttindi lækna verða ekki takmörkuð með
þeim hætti að þeim verði meinað að veita sér og sín-
um nánustu læknisþjónustu. Læknar skyldu þó vera
minnugur þess, að náin tengsl við sjúkling geta haft
áhrif á dómgreind þeirra og faglegt sjálfsforræði. Því
skyldu læknar forðast svo sem kostur er, að bera einir
ábyrgð á meðferð sinna nánustu og á það sérstaklega
við, þegar um um alvarlega og langvinna sjúkdóma
og heilbrigðisvandamál er að ræða.“
Tómas Zoega
Örn Bjarnason
Guðmundur Viggósson
Læknablaðið 2001/87 751