Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2001, Side 67

Læknablaðið - 15.09.2001, Side 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / UMSÖGN SIÐFRÆÐIRÁÐS Umsögn stjórnar Siðfræðiráðs Læknafélags íslands Til stjórnar Læknafélags Íslands Kópavogi 25. júní 2001 Með bréfi dags. 4. janúar s.l. óskaði stjórn Lækna- félags íslands eftir því að stjórn Siðfræðiráðs LÍ veitti umsögn um erindi, sem Sigurður Thorlacius, trygg- ingayfirlæknir beindi til stjórnar LÍ með bréfi dags. 19. desember 2000. í erindi sínu óskaði Sigurður Thorlacius eftir áliti stjórnar LI á því hvort tilhlýðilegt sé, að læknir skrifi læknisvottorð sem liggja mun til grundvallar við ákvörðun um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkisins (t.d. beiðni um sjúkraþjálfun eða læknis- vottorð vegna umsóknar um örorkubætur) fyrir: a) sjálfan sig, b) einstakling sem telst til nánustu fjölskyldu hans. Bréfi stjórnar LÍ fylgdi jafnframt afrit af bréfi Jóns Steinars Jónssonar, læknis til tryggingayfirlæknis dags. 6. desember 2000, sem Jón Steinar sendi stjóm LÍ. Þar kemur fram að Tryggingastofnun ríkisins hafi endursent beiðni Jóns Steinars um þjálfun sem hann hefði skrifað Tryggingastofnun ríkisins og tekið fram að ekki þyki við hæfi að læknir sæki um greiðsluþátt- töku fyrir sjálfan sig eða fjölskyldu sína. Óskaði Jón Steinar eftir því að Tryggingastofnun afgreiddi beiðn- ina þar sem um misskilning hlyti að vera að ræða. Að öðrum kosti óskaði hann eftir því að tryggingayfir- læknir gerði grein fyrir því skriflega hvaða lög heimili honum að skerða starfsréttindi sín með þessum hætti. í svari tryggingayfirlæknis til Jóns Steinars dags. 19. desember 2000, sem fylgdi erindi hans til stjórnar LÍ segir m.a. að hann geti ekki vísað í Iög hvað þetta varðar. Málið snúist hins vegar um siðferði. Kvaðst hann því beina framangreindu álitaefni bæði til stjórnar LÍ og landlæknis í þeim tilgangi að móta almenna stefnu varðandi þetta og önnur sambærileg siðferðileg álitamál. Sigurður Thorlacius og Jón Steinar Jónsson komu á fund stjórnar Siðfræðiráðs 29. maí s.l., þar sem álita- efnið var ítarlega rætt. Kynnti Sigurður m.a. álit landlæknis á fyrirspurn- inni dags. 19. desember 2000. Þar segir m.a. að nú sé það svo að læknar skrifi lyfseðla fyrir sjálfa sig og fjöl- skyldur sínar, biðja um ýmiss konar lækningarann- sóknir á borð við blóðrannsóknir, röntgenrannsóknir og í einstaka tilvikum hafi það gerst að læknir geri aðgerðir á einhverjum úr fjölskyldu sinni. Örðugt sé því að greina læknisvottorð af þ ví tagi sem hann nefni frá ofanskráðu. í þessu efni eins og ýmsu öðru verði að treysta á dómgreind lækna og siðferði að þeir gangi ekki út fyrir mörk þekkingar sinnar og getu. Erfitt virðist að setja um þetta reglur eða leiðbein- ingar sem ekki brytu í bága við jafnræðisregluna. Umsögn stjórnar Siðfræðiráðs LÍ Eftir umræður í stjórn Siðfræðiráðs hinn 25. júní 2001 var eftirfarandi umsögn samþykkt: „Það er meginregla að læknar skulu vera óvilhallir í störfum sínum, s.s. um vottorðagjöf, ávísun lyfja og beiðnir um lækningarannsóknir og hlýðir þeim að staðfesta það eitt sem þeir hafa sjálfir gengið úr skugga um á grundvelli sérþekkingar sinnar, sam- visku og dómgreindar. Starfsréttindi lækna verða ekki takmörkuð með þeim hætti að þeim verði meinað að veita sér og sín- um nánustu læknisþjónustu. Læknar skyldu þó vera minnugur þess, að náin tengsl við sjúkling geta haft áhrif á dómgreind þeirra og faglegt sjálfsforræði. Því skyldu læknar forðast svo sem kostur er, að bera einir ábyrgð á meðferð sinna nánustu og á það sérstaklega við, þegar um um alvarlega og langvinna sjúkdóma og heilbrigðisvandamál er að ræða.“ Tómas Zoega Örn Bjarnason Guðmundur Viggósson Læknablaðið 2001/87 751

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.