Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2001, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 15.09.2001, Blaðsíða 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NESSTOFUSAFN Deilt um lóð undir lækningaminjasafn við Nesstofu Nokkrar umræður hafa orðið í fjölmiðlum vegna þeirra fyrirætlana bæjarstjórnarinnar á Sel- tjarnarnesi að reisa hjúkrunarheimili á lóð sem úthlutað var fyrir alllöngu undir lækningaminjasafn. Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna þessi áform og bent á að lóðinni hafi ekki verið skilað, auk þess sem bygging hjúkrunarheimilis brjóti í bága við skipulag á svæðinu vestast á Seltjarnarnesi. Bygging Nesstofusafns kom til umræðu á aðal- fundi Læknafélags íslands í ágúst í fyrra. Þar var sam- þykkt að „leggja ekki að svo stöddu frekari fjármuni úr sjóðum félagsins til Nesstofusafns". Jafnframt var stjórn LÍ falið að senda bæjarstjórn Seltjarnarness erindi „þess efnis að lóð, sem úthlutað var fyrir lækningaminjasafn í Norðurtúni verði haldið til haga fyrir byggingu væntanlegs safns“. Það gerði stjórnin 28. ágúst og er það bréf birt hér á síðunni. Ástæðan fyrir þeirri ákvörðun félagsins að taka fyrir fjárveitingar til safnsins var sú að engin hreyfing hafði verið á málefnum þess um allmörg ár. LÍ hafði þá þegar lagt umtalsverðar fjárhæðir til byggingar safnsins en fundurinn taldi rétt að félagið héldi að sér höndum þar sem „ríkissjóður hafi nú tilefni til og skyldur til að skipuleggja framtíð lækningaminjasafns- ins á grundvelli laga um þjóðminjar," eins og segir í greinargerð með samþykkt aðalfundar. Hins vegar er tekið fram í greinargerðinni að í samþykktinni felist „ekki yfirlýsing um að Læknafélag íslands skuli ekki styrkja Nesstofusafn frekar" en að „frekari fjármun- um verði ekki varið úr sjóðum félagsins að svo stöddu, - heldur þegar tilefni verður talið til þess síðar. Þessu máli er alls ekki lokið því hugmyndin um hjúkrunarheimilið hefur ekki hlotið endanlega af- greiðslu í bæjarstjórn Seltjarnarness. Jafnframt hafa Þjóðminjaráð og menntamálaráðuneytið mótmælt þessari ráðstöfun lóðar sem þessar stofnanir telja sig hafa umráð yfir, enda hafi þær ekki afsalað sér henni. -ÞH Fyrra bréf stjórnar LÍ Bæjarstjórn Seltjarnarneskaupstaðar Sigurgeir Sigurgeirsson bæjarstjóri Austurströnd 2 170 Seltjarnarnes Kópavogi 28. ágúst 2000 Svo sem bæjarstjórninni er kunnugt þá afhenti Læknafélag Islands nú í ágúst ríkissjóði f.h. Nesstofusafns verulega fjármuni sem stafa frá Jóni Steffensen, prófessor og var skilyrtur arfur til félagsins, auk frantlags úr sjóðum félagsins til hagsbóta fyrir lækningaminja- safnið. Við móttöku gjafarinnar minnti Björn Bjarnason, mennta- málaráðherra á samkeppni um nýtt hús fyrir lækningaminjasafn á Seltjarnarnesi fyrir tveimur árum og sagði að ekki væri unnt á næstunni að ráðast í byggingu þess vegna annarra verkefna. Ráð- herra sagði hins vegar hvergi nærri horfið frá þeim hugmyndum. Á grundvelli samþykktar aðalfundar Læknafélags íslands, sem haldinn var á ísafirði dagana 25. og 26. ágúst s.l., beinir stjórn Læknafélags íslands þeirri eindregnu ósk til bæjarstjórnar Sel- tjarnarness að lóð, sem úthlutað var fyrir lækningaminjasafn í Norðurtúni verði haldið til haga fyrir byggingu væntanlegs safns. Með kveðju f.h. stjórnar Læknafélags Islands Sigurbjörn Sveinsson formaður Síðara bréf stjórnar LÍ Bæjarstjórn Seltjarnarneskaupstaðar Sigurgeir Sigurgeirsson bæjarstjóri Austurströnd 2 170 Seltjarnarnes Stjórn Læknafélags íslands ræddi á fundi sínum í gær fyrirhuguð áform um að reisa hjúkrunarheimili á lóð þeirri við Nesstofu, sem tekin hefur verið frá fyrir byggingu lækningaminjasafns. Stjórnin mótmælir þessari ráðstöfun lóðarinnar, enda liggja fyrir teikningar að lækningaminjasafni, sem urðu til í kjölfar samkeppni um bygginguna á lóðinni. Stjórn LI minnir á bréf sitt til bæjarstjórnarinnar frá 28. ágúst fyrra árs, þar sem þeirri ósk er komið á framfæri „að lóð, sem úthlutað var fyrir lækningaminja- safn í Norðurtúni verði haldið til haga fyrir byggingu væntanlegs safns“. Studdist bréfið við ályktun aðalfundar Læknafélags ís- lands frá 26. ágúst 2000 um sama efni. Stjórn Lí vill einnig leyfa sér að minna á, að við afhendingu erfðafjár Jóns Steffensen til Þjóðminjasafnsins í ágústmánuði fyrra árs og að viðstöddum fulltrúum bæjarstjórnarinnar, lýsti menntamálaráðherra því yfir að með því að þiggja húsnæði undir safnmuni, væri ekki verið að leggja áform um að byggja safnið við Nesstofu til hliðar. Með kveðju f.h. stjórnar Læknafélags Islands Sigurbjörn Sveinsson formaður Læknablaðið 2001/87 735
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.