Læknablaðið - 15.09.2001, Blaðsíða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR / PERSÓNUVERND
stofuþjónustu á eina hendi og veita heilbrigðisráð-
herranum vald til að ákvarða hvar tiltekin læknisverk
verða innt af hendi. Petta er sagt gert „til að auka
möguleika heilbrigðisyfirvalda til stýringar heilbrigð-
isþjónustu“ og að gert sé ráð fyrir „að ein samninga-
nefnd skipuð af ráðherra semji um greiðslur fyrir
ferliverk og vinnu á stofum og að náið samráð sé á
milli þeirrar nefndar og samninganefndar ríkisins,
þegar um er að ræða aðila, sem vinna samkvæmt
báðum samningunum". Þá er gert ráð fyrir að ráð-
herra geti sett læknum gjaldskrá vegna vottorða, sem
rituð eru fyrir Tryggingastofnun ríkisins.
Það er mín skoðun, að verði þessar hugmyndir að
veruleika verði sjálfstæður atvinnurekstur lækna í
uppnámi, þjónustan við sjúklingana muni versna og
biðlistar eftir læknishjálp fyrir utanspítalasjúklinga
verða lengri en við höfum áður átt að venjast hér á
landi. Markmið okkar hlýtur að vera það, að öll þessi
þjónusta sé fjármögnuð með sama hætti og að lækn-
um sé frjálst að veita þjónustuna innan eða utan
sjúkrahúsa eftir því, sem þeir sjálfir kjósa og faglegar
aðstæður bjóða.
Það er afar mikilvægt, að við höldum vöku okkar
af þessum sökum og veitum samningamönnum
okkar og öðrum fulltrúum allan þann stuðning sem
verða má í þeirri orrahríð, sem framundan er.
Aðalfundur
Læknafélags
íslands
12. og 13. október
Aðalfundur Læknafélags Íslands verður
haldinn dagana 12. og 13. október næstkomandi.
Að þessu sinni verður fundurinn haldinn í salar-
kynnum LÍ að Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Sam-
kvæmt 7. grein laga LI er öllum læknum frjálst að
sitja aðalfundinn með málfrelsi og tillögurétti en
atkvæðisrétt hafa eingöngu kjörnir fulltrúar aðild-
arfélaga.
Sú hefð hefur skapast að halda fundinn á föstu-
degi og laugardegi og að morgni laugardags er efnt
til málþings um eitthvert efni sem brennur á
læknastéttinni. Að þessu sinni hefur stjórn LR lagt
til að fjallað verði um starfsumhverfi lækna. Þar
verði rætt um heilbrigðiskerfið hérlendis frá
sjónarhóli hagfræðinnar, læknar fjalli um fram-
gangskerfi lækna innan sjúkrahúsanna og einka-
rekstur í heilbrigðiskerfinu og loks verði ráðuneyti
heilbrigðismála boðið að senda fulltrúa til að fjalla
um framtíðarsýn heilbrigðisyfirvalda.
Nánar verður sagt frá dagskrá fundarins í
októberblaði Læknablaðsins.
-ÞH
Ámínning frá Persónuvernd
Tilkynnið um vinnslu persónuupplýsinga!
Forstjóri Persónuverndar hefur sent Lækna-
félagi íslands bréf með ósk um að félagið árétti enn
við lækna sem beita rafrænni tækni við vinnslu
persónuupplýsinga að tilkynna Persónuvernd á þar
til gerðu formi á vefsíðu www.personuvernd.is um
vinnsluna. Samkvæmt 32. gr. laga nr. 77/2000 ber
meðal annars öllum læknum, sem vinna með heilsu-
farsupplýsingar á tölvutæku formi, að tilkynna
Persónuvernd um þá vinnslu persónuupplýsinga sem
þeir hafa með höndum. Frestur tilkynninga rann út 1.
júlí síðastliðinn og vekur það athygli Persónuverndar
hve fáar tilkynningar hafa enn komið frá læknum. A
framangreindri heimasíðu er tilkynningareyðublað
sem fylla skal út og smella á hnappinn Tilkynna
vinnslu.
Almennt gildir um tilkynningaskylduna sú regla
að senda skal tilkynningu þegar ný vinnsla hefst.
Verði breytingar á tilkynntri vinnslu, svo sem ef
unnið er með aðra tegund upplýsinga, upplýsing-
arnar eru afhentar öðrum eða gerðar tiltækar á annan
hátt en tilgreint var í hinni upphaflegu tilkynningu
eða þær notaðar á annan hátt eða í öðrum tilgangi en
þeim upphaflega, skal senda Persónuvernd nýja
tilkynningu. Abyrgðaraðili (heilsugæslustöð / sjúkra-
hús / sjálfstætt starfandi læknir) skal senda Persónu-
vernd nýja tilkynningu með uppfærðum upplýsingum
þegar liðin eru þrjú ár frá því að upphafleg tilkynning
var send Persónuvernd nema hann hafi áður tilkynnt
um breytta vinnslu. Allar tilkynningar sem Persónu-
vemd berast mynda eina skrá sem er almenningi
aðgengileg á heimasíðu Persónuvemdar. Þar geta
einstaklingar meðal annars kannað öryggi þeirrar
vinnslu sem til dæmis fer fram hjá viðkomandi
heilsugæslustöð.
Læknablaðið 2001/87 729