Læknablaðið - 15.09.2001, Blaðsíða 31
FRÆÐIGREINAR / LÝSI OG BAKTERÍUVÖXTUR
Áhrif lýsisneyslu á bakteríuvöxt
in vivo
Auður Þórisdóttir',
Jón Reynir
Sigurðsson2,
Helga Erlendsdóttir3,
Ingólfur Einarsson2,
Sigurður
Guðmundsson4,
Eggert Gunnarsson5,
Ingibjörg
Harðardóttir6,
Ásgeir Haraldsson26
'Líffræöideild Háskóla
íslands, 2Barnaspítali
Hringsins, Landspítala
Hringbraut, 3sýklafræðideild
Landspítala Hringbraut,
Mandlæknisembættiö,
5Tilraunastöö Háskóla íslands
í meinafræöi að Keldum,
hlæknadeild Háskóla íslands.
Fyrirspurnir, bréfaskipti:
Ásgeir Haraldsson,
Barnaspítala Hringsins,
Landspítala Hringbraut, 101
Reykjavík. Sími: 560 1050;
bréfasími: 560 1055; netfang:
asgeir@landspitali.is
Lykilorö: lýsi, bakteríuvöxtur,
ónœmissvar, mýs.
Ágrip
Tilgangur: Faraldsfræðilegar rannsóknir benda til að
mikil neysla co-3 fitusýra hafi áhrif á ýmsa sjúkdóma
svo sem hjarta- og æðasjúkdóma og sjálfnæmissjúk-
dóma. Líkaminn getur ekki nýmyndað ©-3 fitusýrur,
og því er nauðsynlegt að fá þær úr fæðunni. Lýsi er
mjög ríkt af slíkum fitusýrum, en jurtaolíur aftur á
móti ekki. Rannsóknarhópurinn hefur sýnt fram á
aukna lifun músa sem fengið höfðu lýsisbætt fæði
samanborið við mýs sem fengu kornolíubætt fæði og
voru sýktar með Klebsiella pneumoniae í vöðva. I
þessari rannsókn var kannað, hvort þau áhrif væru
vegna áhrifa lýsis á bakteríuvöxt in vivo.
Efniviður og aðferðir: Mýs voru aldar á lýsisbættu
fæði eða kornolíubættu fæði til viðmiðunar í sex vikur
og þá sýktar með Klebsiella pneumoniae í vöðva.
Mýsnar voru aflífaðar á mismunandi tímapunktum og
var fjöldi baktería í blóði og frá sýkingarstað talinn.
Niðurstöður: Ekki var marktækur munur á
bakteríufjöldanum í hópunum á mismunandi tíma-
punktum, hvorki í blóði né á sýkingarstað, þó var
tilhneiging til meiri vaxtar í kornolíuhópnum.
Alyktanir: Lýsi virðist ekki hafa marktæk áhrif á
bakteríuvöxt in vivo. Frekari rannsóknir munu von-
andi leiða nánar í ljós hver áhrif lýsisins eru.
Inngangur
Fitusýrur gegna margvíslegum hlutverkum í líkaman-
um. Fitusýrur eru til dæmis forverar ýmissa efna sem
eru líkamanum nauðsynleg svo sem hormóna og boð-
efna. Tvær tegundir fitusýra er mönnum nauðsynlegt
að fá úr fæðu, ómega-3 (©-3) og ómega-6 (m-6) fitu-
sýrur. Það sem aðgreinir þessar tvær fitusýrur og af-
leiður þeirra er staða fyrsta tvítengis talið frá meþýl-
enda kolefniskeðjunnar. Lýsi er ríkt af fjölómettuð-
um ©-3 fitusýrum (1). Jurtaolíur innihalda hins vegar
lítið af ©-3 fitusýrum en eru ríkar af ©-6 fitusýrum (1).
Líkaminn getur ekki nýmyndað ©-3 fitusýrur eða
breytt ©-6 fitusýrum í ©-3 fitusýrur. Ur ©-3 línólen-
sýru getur líkaminn hins vegar myndað aðrar ©-3 fitu-
sýrur, svo sem eikósapentaensýru (EPA) og dókósa-
hexaensýru (DHA). Þessar fitusýrur eru hluti frumu-
himnu frumna líkamans. Afleiður eikósapentaensýru
eru til dæmis eikósanóíðar sem koma mjög við sögu í
ónæmissvari.
Faraldsfræðilegar rannsóknir benda til að mikil
neysla ©-3 fitusýra hafi áhrif á ýmsa sjúkdóma, til
dæmis er tíðni hjarta- og æðasjúkdóma lægri á Græn-
landi þar sem neysla ©-3 fitusýra er mjög mikil
samanborið við önnur lönd í hinum vestræna heimi
ENGLISH SUMMflRY
Þórisdóttir A, Sigurðsson JR, Erlendsdóttir H,
Einarsson I, Guðmundsson S, Gunnarsson E,
Harðardóttir I, Haraldsson Á
The effect of dietary fish oil on bacterial growth in
■rivo
Læknablaðið 2001; 87: 715-8
Objective: Epidemiological studies have indicated that
high intake of <o-3 fatty acids influence various diseases
such as cardiovascular diseases and autoimmune
disorders. These fatty acids are essential in the diet since
the body can not form them de novo. Fish oil is rich in m-3
fatty acids but the ro-3 content of vegetable oil is low. The
research group has shown increased survival of mice fed
cod liver oil enriched diet versus mice fed corn oil enriched
diet when infected with Klebsiella pneumoniae intramus-
cularly. In the present study we investigated the effect of
dietary fish oil on bacteriai growth in vivo.
Material and methods: Mice were fed fish oil enriched
diet and a control group was fed corn oil enriched diet for
six weeks and then the mice were infected with Klebsiella
pneumoniae intramuscularly. The mice were sacrificed at
various time intervals and bacteria were counted in blood
and in the infected muscle.
Results: The bacteria count in blood and tissue was not
significantly different between the two groups although a
trend was noted towards more growth in the control
group.
Conclusions: We conclude that fish oil does not
significantly affect bacterial growth in vivo. Hopefully,
■future research will reveal the pathophysiological effect of
fish oil.
Key-words: fish oil, bacterial growth, immune response,
mice.
Correspondence: Ásgeir Haraldsson. E-mail:
asgeir@landspitali.is
(2). Fleiri rannsóknir hafa bent til áhrifa lýsis til
minnkunar á hjarta- og æðasjúkdómum (3) og sjálf-
næmissjúkdómum svo sem gigt (4) og sóra (5). Einnig
hefur því verið haldið fram að ung börn sem fá
lýsisbætta mjólkurblöndu sýni hraðari þroska en þau
börn sem fá blönduna án lýsis (6). Þá hafa niður-
stöður bent til áhrifa lýsis á einstaklinga með les-
blindu (7) og þunglyndi (8).
Rannsóknarhópur okkar hefur sýnt fram á aukna
lifun músa sem fengið hafa lýsisbætta fæðu miðað við
viðmiðunarhóp fyrir sýkingu með Klebsiella pneu-
Læknablaðið 2001/87 715