Læknablaðið - 15.09.2001, Blaðsíða 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NESSTOFUSAFN
Deilt um lóð undir lækningaminjasafn við Nesstofu
Nokkrar umræður hafa orðið í fjölmiðlum
vegna þeirra fyrirætlana bæjarstjórnarinnar á Sel-
tjarnarnesi að reisa hjúkrunarheimili á lóð sem
úthlutað var fyrir alllöngu undir lækningaminjasafn.
Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna þessi áform og bent
á að lóðinni hafi ekki verið skilað, auk þess sem
bygging hjúkrunarheimilis brjóti í bága við skipulag á
svæðinu vestast á Seltjarnarnesi.
Bygging Nesstofusafns kom til umræðu á aðal-
fundi Læknafélags íslands í ágúst í fyrra. Þar var sam-
þykkt að „leggja ekki að svo stöddu frekari fjármuni
úr sjóðum félagsins til Nesstofusafns". Jafnframt var
stjórn LÍ falið að senda bæjarstjórn Seltjarnarness
erindi „þess efnis að lóð, sem úthlutað var fyrir
lækningaminjasafn í Norðurtúni verði haldið til haga
fyrir byggingu væntanlegs safns“. Það gerði stjórnin
28. ágúst og er það bréf birt hér á síðunni.
Ástæðan fyrir þeirri ákvörðun félagsins að taka
fyrir fjárveitingar til safnsins var sú að engin hreyfing
hafði verið á málefnum þess um allmörg ár. LÍ hafði
þá þegar lagt umtalsverðar fjárhæðir til byggingar
safnsins en fundurinn taldi rétt að félagið héldi að sér
höndum þar sem „ríkissjóður hafi nú tilefni til og
skyldur til að skipuleggja framtíð lækningaminjasafns-
ins á grundvelli laga um þjóðminjar," eins og segir í
greinargerð með samþykkt aðalfundar. Hins vegar er
tekið fram í greinargerðinni að í samþykktinni felist
„ekki yfirlýsing um að Læknafélag íslands skuli ekki
styrkja Nesstofusafn frekar" en að „frekari fjármun-
um verði ekki varið úr sjóðum félagsins að svo stöddu,
- heldur þegar tilefni verður talið til þess síðar.
Þessu máli er alls ekki lokið því hugmyndin um
hjúkrunarheimilið hefur ekki hlotið endanlega af-
greiðslu í bæjarstjórn Seltjarnarness. Jafnframt hafa
Þjóðminjaráð og menntamálaráðuneytið mótmælt
þessari ráðstöfun lóðar sem þessar stofnanir telja sig
hafa umráð yfir, enda hafi þær ekki afsalað sér henni.
-ÞH
Fyrra bréf stjórnar LÍ
Bæjarstjórn Seltjarnarneskaupstaðar
Sigurgeir Sigurgeirsson bæjarstjóri
Austurströnd 2
170 Seltjarnarnes
Kópavogi 28. ágúst 2000
Svo sem bæjarstjórninni er kunnugt þá afhenti Læknafélag Islands
nú í ágúst ríkissjóði f.h. Nesstofusafns verulega fjármuni sem stafa
frá Jóni Steffensen, prófessor og var skilyrtur arfur til félagsins,
auk frantlags úr sjóðum félagsins til hagsbóta fyrir lækningaminja-
safnið.
Við móttöku gjafarinnar minnti Björn Bjarnason, mennta-
málaráðherra á samkeppni um nýtt hús fyrir lækningaminjasafn á
Seltjarnarnesi fyrir tveimur árum og sagði að ekki væri unnt á
næstunni að ráðast í byggingu þess vegna annarra verkefna. Ráð-
herra sagði hins vegar hvergi nærri horfið frá þeim hugmyndum.
Á grundvelli samþykktar aðalfundar Læknafélags íslands, sem
haldinn var á ísafirði dagana 25. og 26. ágúst s.l., beinir stjórn
Læknafélags íslands þeirri eindregnu ósk til bæjarstjórnar Sel-
tjarnarness að lóð, sem úthlutað var fyrir lækningaminjasafn í
Norðurtúni verði haldið til haga fyrir byggingu væntanlegs safns.
Með kveðju
f.h. stjórnar Læknafélags Islands
Sigurbjörn Sveinsson
formaður
Síðara bréf stjórnar LÍ
Bæjarstjórn Seltjarnarneskaupstaðar
Sigurgeir Sigurgeirsson bæjarstjóri
Austurströnd 2
170 Seltjarnarnes
Stjórn Læknafélags íslands ræddi á fundi sínum í gær fyrirhuguð
áform um að reisa hjúkrunarheimili á lóð þeirri við Nesstofu, sem
tekin hefur verið frá fyrir byggingu lækningaminjasafns.
Stjórnin mótmælir þessari ráðstöfun lóðarinnar, enda liggja
fyrir teikningar að lækningaminjasafni, sem urðu til í kjölfar
samkeppni um bygginguna á lóðinni. Stjórn LI minnir á bréf sitt til
bæjarstjórnarinnar frá 28. ágúst fyrra árs, þar sem þeirri ósk er
komið á framfæri „að lóð, sem úthlutað var fyrir lækningaminja-
safn í Norðurtúni verði haldið til haga fyrir byggingu væntanlegs
safns“. Studdist bréfið við ályktun aðalfundar Læknafélags ís-
lands frá 26. ágúst 2000 um sama efni.
Stjórn Lí vill einnig leyfa sér að minna á, að við afhendingu
erfðafjár Jóns Steffensen til Þjóðminjasafnsins í ágústmánuði
fyrra árs og að viðstöddum fulltrúum bæjarstjórnarinnar, lýsti
menntamálaráðherra því yfir að með því að þiggja húsnæði undir
safnmuni, væri ekki verið að leggja áform um að byggja safnið við
Nesstofu til hliðar.
Með kveðju
f.h. stjórnar Læknafélags Islands
Sigurbjörn Sveinsson
formaður
Læknablaðið 2001/87 735