Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2001, Síða 18

Læknablaðið - 15.09.2001, Síða 18
FRÆÐIGREINAR / OFFITA Tafla VII. Framboð á orku, fitu og sykri og hlutfailslegt framlag fitu til orkunnar 1976- 1995. Athugasemdir 1976-1980 1981-1985 1986-1990 1991-1995 Orka, kkal/dag Alkóhól meðtalið 2948 2987 3078 3013 Fita, g/íbúa/dag 132 138 134 130 Sykur, g/íbúa/dag 141 141 145 141 Fita, % orku 39,6 40,7 38,6 38,1 Hlutfall ofþyngdar er hærra meðal karla en kvenna. í upphafi tímabilsins voru um 46% karla í báðum aldurshópum of þungir en 53-54% í lok tímabilsins. í yngri hópi kvenna fór hlutfallið úr 29% í upphafi tímabilsins í 39% í lok þess en í þeim eldri úr 34% í 46%. Aukning á hlutfalli of þungra var meiri meðal kvenna en karla á tímabilinu samkvæmt línlulegri aðhvarfsgreiningu. Eini hópurinn þar sem aukning á hlutfalli of þungra var ekki tölfræðilega marktæk var yngri hópur karla. Offita: Tafla VI sýnir hlutfall of feitra einstaklinga á tímabilinu. Það er ljóst að offita eykst umtalsvert hjá báðum kynjum. Það lætur næixi að hlutfall offitu hafi tvöfaldast í yngri hópi karla en það fer úr 10,4% í upphafi tímabilsins í 19,2% í lok þess en aukningin var ekki tölfræðilega marktæk í eldri hópi karla. Hjá yngri konunum fer hlutfallið úr 8,6% í 14,6% en hjá þeim eldri úr 11,2% í 24,5%. Hjá körlum er ekki greinilegur rnunur á offitu milli aldurshópa en eldri konurnar hafa meiri tilhneigingu til að vera of feitar en þær yngri. Fæðuframboð: Tafla VII sýnir framboð orku í kílókaloríum á íbúa á dag, fitu og sykurs í grömmum á íbúa á dag og hlutfallslegt framlag fitu til orkunnar fyrir tímabiliðl976-1995, birt sem fimm ára meðaltöl. Framboð orku var nokkuð stöðugt á tímabilinu þó varð væg aukning úr 2948 kílókaloríum á íbúa á dag í upphafi tímabilsins í 3013 kílókaloríur á íbúa á dag í lok þess. Framboð á fitu stóð nánast í stað á tíma- bilinu, lækkaði þó lítillega, fór úr 131,9 grömmum á íbúa á dag í 129,8 grömm á íbúa á dag. Sömuleiðis dró lítillega úr hlutfallslegu framlagi fitu til orkunnar, úr 39,6% í 38,1%. Framboð á sykri stóð nánast í stað á tímabilinu. Umræða Rannsókn þessi sýnir að reykvískir karlar og konur á aldrinum 45-64 ára eru hærri og þyngri að meðaltali árið 1994 en árið 1975. Þyngdin eykst meira en útskýrt verður með aukinni hæð eingöngu og kemur það fram í hækkun líkamsþyngdarstuðuls. A sama tíma hefur hlutfall of þungra og of feitra einnig verið að aukast og hefur hlutfallsleg aukning í offitu verið mun meiri en í ofþyngd. Þar sem hér eru bornir saman jafngamlir einstaklingar á mismunandi tímum er ekki um að ræða aukna þyngd eftir því sem aldurinn færist yfir, heldur er hér á ferðinni breyting milli árganga á tímabilinu. Meðal kvenna hefur hlutfall feitra meira en tvöfaldast samkvæmt mati með línulegri aðhvarfsgreiningu. f lok tímabilsins voru um 15% (95% öryggisbil, 9-22%) kvenna á aldrinum 45-54 ára of feitar og 25% (95% öryggisbil, 17-34%) kvenna 55-64 ára. Það lætur nærri að hlut- fall of feitra hafi einnig tvöfaldast meðal 45-54 ára karla á tímabilinu og var komið í um 19% (95% öryggisbil, 13-27%) í lok þess en aukningin var ekki tölfræðilega marktæk í eldri hópi karla. í lok tíma- bilsins voru um 70% karla og um 60% kvenna á aldrinum 45-64 ára annað hvort of þung eða of feit. Þó að þessar niðurstöður nái eingöngu til Reyk- víkinga má ætla að svipuð þróun hafi átl sér stað annars staðar á landinu. Leitarstöð Krabbameins- félagsins hefur safnað upplýsingum um hæð og þyngd íslenskra kvenna allt aftur til ársins 1979. í þeim gögnum kemur fram að hlutfall offitu jókst meðal 45- 64 ára kvenna úr 14,9% á árunum 1980-1984 í 20,2% á árunum 1990-1994 (persónulegar upplýsingar, Laufey Tryggvadóttir, janúar 1999). Tölur Leitar- stöðvarinnar ná til landsins í heild og eru þær heldur hærri en þessi rannsókn sýnir, sem bendir til þess að offita sé ekki síður vandamál á landsbyggðinni. Niðurstöður bæði frá Svíþjóð og Finnlandi (16-18) sýna að fólk sem býr á höfuðborgarsvæðum þessara landa er yfirleitt grennra en fólk sem býr á lands- byggðinni en engar upplýsingar eru til um slíkt hér á landi. Niðurstöður þessarar rannsóknar eru síður en svo einsdæmi því hlutfall ofþyngdar og offitu hefur aukist víða á Vesturlöndum, oft með geigvænlegum hraða (19). Sú er raunin í Bretlandi en þar tvöfaldaðist hlutfall offitu á tímabilinu 1980-1991 (20). Erfitt getur þó reynst að bera saman hlutfall of feitra milli landa þar sem gjarnan er um að ræða ólíka aldurs- hópa og eins eru skilgreiningar fyrir ofþyngd og offitu ekki alltaf þær sömu. Einnig skiptir máli yfir hvaða tímabil rannsókn nær þar sem hlutfall of feitra breytist ört í flestum löndunt. Rannsókn sem gerð var í Hollandi á sama aldurshópi og hér um ræðir sýndi svipað hlutfall offitu á árununt 1987-1991 og íþessari rannsókn (21). Hlutfallið hér er hins vegar lægra en í Bandaríkunum þar sem 29% karla og 36% kvenna á aldrinum 50-59 ára voru of feitir á árunum 1988-1994 (22). I Svíþjóð er hlutfall offitu lægra en hér á landi (16,17). Astæður þessarar þróunar eru fólgnar í breyttum lífsháttum, annað hvort breyttu mataræði og/eða hreyfingu. Tvær kannanir á mataræði hafa verið gerðar í Reykjavík á þessu tímabili, sú fyrri árið 1979, sú seinni 1990 en hún náði til alls landsins (23,24). Séu niðurstöður þessara tveggja kannana bornar saman kemur í ljós að heildarorka hefur lítið breyst en hlutfall fitu hefur heldur minnkað. Tölur um fæðuframboð sýna svipaðar niðurstöður, framboð orku hefur lítið breyst en hlutfall fitu minnkað lítillega á tímabilinu (15). Mettuð fita hefur að vísu minnkað töluvert en ómettuð fita komið í staðinn. 702 Læknablaðið 2001/87

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.