Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2001, Page 47

Læknablaðið - 15.09.2001, Page 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / YFIRLÝSING LÍ OG ÍE Sameiginleg yfirlýsing stjórnar Læknafélags íslands og íslenskrar erfðagreiningar ÞANN 27. ÁGÚST SÍÐASTLIÐINN BOÐUÐU L/EKNAFÉLAG íslands, landlæknir og íslensk erfðagreining ehf. til blaðamannafundar þar sem kynnt var sameiginleg yfirlýsing þessara þriggja aðila um miðlægan gagna- grunn á heilbrigðissviði. í fréttatilkynningu sem af- hent var af því tilefni segir að viðræðum LÍ og IE um gagnagrunninn „sem hófust í febrúarmánuði á liðnu ári og hafa staðið með hléum“ sé nú lokið. Jafnframt lýsa aðilar yfir „ánægju sinni með að niðurstaða af þessu tagi hafi fengist og að það traust milli aðila, sem hún endurspeglar, megi verða leiðandi við þau við- fangsefni sem þeir þurfa í sameiningu að leysa úr í framtíðinni." Yfirlýsing LÍ, ÍE og landlæknis birtist hér til hliðar. Á fundinum var einnig dreift yfirlýsingu frá stjórn Læknafélags íslands og er hún svohljóðandi: Frá stjórn Læknafélags íslands Stjórn Læknafélags fslands (LÍ) og íslensk erfða- greining ehf. hafa komizt að samkomulagi, sem undirritað er í dag. Af því tilefni vill stjórn LÍ árétta eftirfarandi: Aðalfundir LÍ hafa ítrekað sett félaginu skýr markmið hvað varðar söfnun og flutning upplýsinga úr sjúkraskrám í miðlægan gagnagrunn á heilbrigðis- sviði. Hafa fundirnir haft að leiðarljósi tvær megin- reglur um vísindarannsóknir á mönnum, sem settar voru fram af Alþjóðafélagi lækna (World Medical Association, WMA) í yfirlýsingu, sem kennd er við Helsinki. Reglur þessar varða annars vegar kröfu um að fyrir liggi upplýst samþykki fyrir þátttöku í rannsókn og hins vegar að þátttakandi geti hvenær sem er dregið sig út úr rannsókn og þær upplýsingar, sem um hann eru til staðar í rannsóknargögnum. Pannig hefur aðalfundur LÍ lýst því yfir að við rann- sóknir á heilbrigðisupplýsingum í miðlægum gagna- grunni eigi að afla samþykkis þeirra, sem upplýsing- arnar eru um og að farga megi þessum upplýsingum í grunninum að ósk hinna sömu. Með þeirri yfirlýsingu sem íslensk erfðagreining, stjórn Læknafélags íslands og Landlæknir senda frá sér í dag er annarri þessara meginreglna fullnægt þ.e. réttinum til brotthvarfs úr rannsókn. Aðilar hafa orðið sammála um að bíða að öðru leyti niðurstöðu WMA um söfnun, flutning og vinnslu upplýsinga í gagnagrunnum á heilbrigðissviði. Læknafélag Islands á þátt í gerð þessara reglna og munu þær m.a. taka afstöðu til þess hvernig útfæra beri regluna um sam- þykki við þessar aðstæður. Stjórn LÍ vill eiga samleið með samfélagi starfssystkina sinna um víða veröld við mótun þessarar grundvallarreglu við hinar nýju aðstæður og í ljósi nýrra tæknilegra möguleika, sem ekki voru þekktir fyrir fáum árum. Kópavogi 27. ágúst 2001 Sigurbjörn Sveinsson, f.h. stjórnar Læknafélags íslands Sameiginleg yfirlýsing ÍE og LÍ um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði i. Hafi upplýsingar um sjúkling úr sjúkraskrám, sem varðveittar eru á heilbrigðis- stofnunum eða hjá sjálfstætt starfandi læknum, verið fluttar í gagnagrunn á heilbrigðissviði skv. lögum um gagnagrunn á heilbrigðissviði og óski sjúklingur eftir að þeim verði eytt úr grunninum, skal það gert strax eftir að ósk sjúklings kemur fram. Rekstraraðili gagnagrunns á heilbrigðissviði þróar aðferðir til eyðingar upplýsinga í gagnagrunninum og heitir því að hefja ekki flutning heilsufarsupp- lýsinga í gagnagrunninn fyrr en þær hafa verið þróaðar að fullu. Ósk um eyðingu upplýsinga um sjúkling í gagnagrunni á heilbrigðissviði skal beina til landlæknis, sem hefur eftirlit með því að þeim verði framfylgt. íslensk erfðagreining ehf. greiðir þann kostnað, sem af úrvinnslu og fram- kvæmd þessa hlýst. II. Alþjóðafélag lækna (World Medical Association) er leiðandi afl um siðfræði læknisfræðinnar og hefur haft forgöngu hvað varðar alþjóðlega viðurkenndar reglur í vísindasiðfræði. Stjórn íslenskrar erfðagreiningar ehf. og stjórn Lækna- félags íslands eru sammála um, að þegar yfirlýsing (declaration/statement) aðalfundar Alþjóðafélags lækna (World Medical Association) um vísinda- siðfræði gagnagrunna á heilbrigðissviði og flutning heilsufarsupplýsinga ein- staklinga í slíka gagnagrunna liggur fyrir, beri að hafa þær reglur að leiðarljósi um söfnun, flutning og vinnslu upplýsinga í gagnagrunna á heilbrigðissviði hér á landi. Munu stjórnir beggja hvetja til breytinga á lögum um gagnagrunn á heil- brigðissviði nr. 139/1998 í samræma við þær reglur, reynist þess þörf. III. Stjórn Læknafélags íslands mun mæla með því við íslenska lækna að yfirlýsing þessi verði virt af þeirra hálfu og leggja hana fyrir aðalfund félagsins á yfir- standandi ári til staðfestingar. Reykjavík 27. ágúst 2001 Kári Stefánsson Sigurbjörn Sveinsson f.h. íslenskrar erfða- f h. stjórnar greiningar ehf. Læknafélags íslands Sigurður Guðmundsson landlæknir Læknablaðið 2001/87 731

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.