Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2001, Page 49

Læknablaðið - 15.09.2001, Page 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KLÍNÍSKAR LEiÐBEININGAR 2 Skotar framarlega í flokki við gerð klínískra leiðbeininga Heimasíða SIGN. í ÞESSUM PISTLI VERÐUR VAKIN ATHYGLI Á VÖNDUÐU efni um klínískar leiðbeiningar sem Skotar hafa unnið og birt á netinu. Á vefi landlæknisembættisins - www.landlaeknir.is - er tengill á þennan skoska vef, en auk þess er slóðin birl hér að aftan. Scottish Intercollegiate Guidelines Network (SIGN) var stofnað 1993 og eins og nafnið gefur til kynna myndar þetta net fjöldi lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna. Meðal annars eiga þarna fulltrúa öll læknafélög/sérgreinafélög í Bretlandi auk þess sem þarna eru fulltrúar frá hjúkrunarfræðing- um, lyfjafræðingum, tannlæknum og öðrum starfs- greinum sem tengjast heilbrigðismálum. Höfuð- stöðvar SIGN eru í húsnæði skoska læknafélagsins í Edinborg og nýtur þessi virta stofnun mikils stuðn- ings læknafélagsins og einstakra fagfélaga. Fámenn þjóð á að nýta vandað efni frá öðrum Leiðbeiningarnar hafa verið gerðar aðgengilegar á vef um klínískar leiðbeiningar sem er að finna á heimasíðu land- læknis. Umsjón með gerð þeirra hefur stýrihópur um klínískar leiðbeiningar undir stjórn Ara Jóhannessonar og ritstjórn Sigurðar Helgasonar. Sú ákvörðun stýrihóps um klínískar leiðbeiningar á íslandi, að benda heilbrigðisstarfsfólki á leiðbeining- ar SIGN byggist á eftirtöldu: Vinnulag við gerð SIGN leiðbeininga er mjög vandað (val verkefna, heimild- arvinna, samsetning vinnuhópa) og lýtur viður- kenndum gæðakröfum. Leitast er við að koma sann- reyndum (evidence based) vinnubrögðum í notkun þannig að gagnast megi heilbrigðisþjónustunni. Ráðleggingar innan leiðbeininga eru beint tengdar þeim vísindalega grunni sem að baki liggur þegar þess er kostur. Leiðbeiningarnar fá mjög víðtæka kynningu sem drög og boðið er upp á umræður (fundi) meðal heilbrigðisstarfsmanna um einstakar leiðbeiningar áður en að formlegri útgáfu kemur. Á þessum fundum hafa allir rétt á að koma skoðunum sínum á framfæri. Framsetning leiðbeininganna þótti mjög aðgengi- leg, heildarleiðbeiningar og síðan einnar til fjögurra blaðsíðna ágrip (quick reference). Fámenn þjóð hefur minni tök á að vinna mikinn fjölda leiðbeininga og henni er því nauðsynlegt að nýta vinnu annarra sé þess nokkur kostur. Nýtur trausts Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar SIGN vinnur í náinni samvinnu við heilbrigðisyfir- völd og sjúklingasamtök við gerð leiðbeininga. Ný- verið var stofnunin valin til að hafa umsjón með leið- beiningum útgefnum af Alþjóðaheilbrigðisstofnun- inni og má ætla að það hafi komið til vegna vandaðs vinnulags. í náinni samvinnu við læknafélögin í Skot- landi hafa verið unnar á vegum stofnunarinnar sann- reyndar leiðbeiningar frá 1993 og nú þegar hafa verið gefnar út meira en 50 leiðbeiningar sem allar eru aðgengilegar á heimasíðu hennar - http://www.show. scot.nhs.uk/sign/guidelines/published/index.html - auk yfirlits yfir leiðbeiningar sem eru í vinnslu - http://w ww.show.scot.nhs. uk/sign/guidelines/develop ment/index.html Par er litið á Ieiðbeiningar sem eðlilegan og í raun nauðsynlegan þátt í að veita sem besta heilbrigðis- þjónustu. Það er landlæknisembættinu því afar mikil- vægt að hafa fengið leyfi SIGN-stofnunarinnar til að nota og dreifa leiðbeiningum sem unnar hafa verið á hennar vegum. Það má þó aldrei líta svo á að heim- færa megi erlendar aðstæður beint upp á íslenskar aðstæður. Hver og einn heilbrigðisstarfsmaður þarf að vega og meta hvort leiðbeiningarnar eigi við á hans vinnustað. Leiðbeiningarnar frá SIGN eru ekki birtar sem ís- lenskar leiðbeiningar og ekki alltaf yfirfarnar með til- liti til íslenskra aðstæðna. Þótt stýrihópur landlæknis- embættisins um klínískar leiðbeiningar sé sammála því að vönduð vinnubrögð nái langt í að tryggja gæði leiðbeininganna þá er ekki hægt að taka ábyrgð á innihaldi einstakra leiðbeininga. Hver og einn heil- brigðisstarfsmaður verður að beita eigin dómgreind og taka tillit til viðhorfa skjólstæðinga sinna. Þetta er í samræmi við að SIGN telur ábyrgð liggja hjá not- endum leiðbeininganna. Læknablaðid 2001/87 733

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.