Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2001, Page 61

Læknablaðið - 15.09.2001, Page 61
FRA HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTI OG LANDLÆKNI Lyfjamál 96 Nýlega kom út ritið Health Statistics in the Nordic Countries 1999, sem gefið er út af Nordisk Medicinalstatistik Komité (NOMESKO). í ritinu eru hinar hefðbundnu upplýsingar um heilbrigðistölfræði á Norðurlöndum sem jafnan eru birtar þar, en að þessu sinni er aukið verulega við kaflann um lyfjamál og fjallað um þau á 86 blaðsíðum í B hluta. Þar er borin saman lyfjanotkun í löndunum á tímabilinu 1995-1999. Sambærileg tölfræði um lyfjanotkun á Norðurlöndum hefur ekki birst síðan síðasta rit Norrænu lyfjanefndarinnar um efnið, Nordic Statistics on Medicines 1993-1995, kom út árið 1996. Mikill fróðleikur er þarna um lyfjanotkunina og á fyrsta línuriti í kaflanum er samanburður á heildar- notkun í löndunum fimm síðustu 10 árin mældri í skil- greindum dagskömmtum á hverja 1000 íbúa á dag. Stöðugur vöxtur er allt tímabilið og allan tímann eru tölurnar lægstar hjá okkur. Árið 1999 erum við þó alveg að ná Dönum sem eru með næst minnsta notkun. Lyfjakostnaður á mann er hins vegar langhæstur hjá okkur eins og sést á eftirfarandi súluriti: Læknablaðið 2001/87 745

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.