Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2001, Qupperneq 63

Læknablaðið - 15.09.2001, Qupperneq 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 18 Kynörvun og skotveiðar Bjarni Jónasson Sendið efni í anda læknaskops í Broshornið. Læknablaðinu, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi eða í bréfasíma 564 4106 eða á netfang: bjarni.jonasson@ gb.hgst.is Getið þess hver sendir, en það sem birtist verður undir dulnefni. Læknablaðið áskilur sér rétt til að lagfæra texta. Af þvagleka Gunnólfur læknir hafði þekkt hjónin Karl og Konu í nokkra áratugi og verið heimilislæknir þeirra allan tímann. Þau voru bæði komin af léttasta skeiði. Kona hafði átt í vandræðum með þvagið í fjölda ára eða eiginlega alveg frá því hún fæddi áttunda og yngsta barnið fyrir 22 árum, sjö mánuðum og 15 dögum. Aðallega átti hún í erfiðleikum með að halda þvag- inu. Hún hafði margoft leitað læknis út af þvaglekan- um og hafði meira að segja lagst þrisvar undir hnífinn til að reyna að bæta ástandið. Allt kom fyrir ekki. Reyndar hafði Karl ekki heldur farið varhluta af þvagfæravandamáli, en var nú allur betri eftir að hafa farið í aðgerð á blöðruhálskirtli hjá Guðmundi þvag- færaskurðlækni. Til þess að Gunnólfur læknir mætti fá sem gleggsta mynd af því hve umfagnsmikið vandamál frúarinnar væri í raun þá mættu bæði hjónin í viðtal hjá honum. Húsbóndinn var vanur að hafa orð fyrir þeim hjónum hvort sem vandamálið var hans eða hennar: „Gunnólfur, ertu nokkuð búinn að láta athuga blöðruhálskirtilinn í konunni?" Úr læknabréfi frá Slysó „Ragna, sem er tveggja ára, var í bílstól aftur í jeppa, þegar fólksbfll ók aftan á hann. Skoðun: Við skoðun er Ragna ósamvinnufús og mun hún að eðlisfari vera óvinveitt læknum. Við tilraun til að skoða hana sparkar hún og slær í undirritaðan þannig að útlimir virðast vera í lagi ... Þegar ýtt er á hryggjartinda er ekki vart við meiri grát eða óánægju barnsins, allar hreyfingar um háls eru eðlilegar. Faðir stúlkunnar segir hana vera eðlilega í háttum og að öðru leyti.“ Kynörvun Kona á miðjum besta aldri kom til Grána læknis og sagði: „Maðurinn minn á við vandamál að etja. Ég held að hann sé annað hvort getulaus eða búinn að missa áhugann á mér. Hvað er til ráða?“ „Þetta er algengt vandamál, sem hægt er að leysa. Hafðu ekki áhyggjur af því,“ sagði læknirinn. „Gefðu honum eina af þessum litlu töflum með kaffinu eftir kvöldmatinn og láttu mig svo vita hvernig gekk.“ Sama kvöld setti eiginkonan töflu í kaffi bónda síns. Innan 10 mínútna sveif hann á hana, kastaði henni á bakið á matarborðið þannig að diskar, glös og annað sem á borðinu var þeyttist út um allt með brothljóðum og glamri, reif utan af henni fötin og síðan nutu þau ásta í tæpar tvær klukkustundir. Nokkrum dögum seinna heimsótti konan lækninn að nýju eins og um hafði verið talað. „Gráni minn, þetta var alveg æðislegt. Ég gerði eins og þú ráðlagðir mér og maðurinn hreinlega tætti af mér fötin, slengdi mér fyrirvaralaust á borðið þannig að leirtauið þeytt- ist út um allt með braki og brestum og síðan elskuð- umst við í tæpa tvo klukkutíma!" „Ég heyri að þú ert ánægð og það virðist sem fargi sé af þér létt,“ sagði Iæknirinn, „verst að heyra hvernig fór með leirtauið." „Blessaður vertu, hafðu engar áhyggjur af því,“ sagði konan, „við förum sennilega aldrei inn á þenn- an veitingastað aftur hvort eð er.“ Á gæsaveiðum Þrír Iæknar skruppu saman á gæsaveiðar. Þegar fugl flaug yfir höfðum þeirra leit heimilislæknirinn upp og sagði: „Lítur út eins og gæs, flýgur eins og gæs - þetta er líklega gæs.“ Hann skaut, en hitti ekki og fuglinn hvarf sjónum. Þegar næsti fugl birtist leit „patólóginn" til himins, fletti síðan upp í fuglabókinni og sagði: „Þessi þriggja til fjöggurra kflóa gráleiti fugl með hásu kvaki gæti verið grágæs eða anser anser eins og hann heitir á latínu." Hann mundaði byssu sína en þá var fuglinn löngu horfinn. Þriðji fuglinn flaug hjá. Skurðlæknirinn lyfti byssu sinni og skaut nánast án þess að líta upp og hitti að sjálfsögðu. Þegar fuglinn hafði hrapað til jarðar sneri skurðlæknirinn sér að „patólógnum“ og sagði: „Viltu ekki fara og athuga hvort þetta hafi verið gæs?“ Alltaf á vaktinni Læknirinn hafði verið lagður til hinstu hvílu. Fjöl- skylda og vinir hins látna bjuggust til brottfarar en þá heyrðist undarlegt hljóð úr gröfinni. Viðstaddir litu undrandi hver á annan þar til kollegi læknisins sagði: „Hafið ekki áhyggjur, þetta er bara kalltækið hans.“ Engin þóknun Sjúklingurinn þakkaði lækninum innilega með handabandi og sagði: „Úr því að við erum svo miklir mátar þá vil ég ekki móðga þig með því að bjóða þér borgun. Ég vil nú samt að þú vitir, að þín er getið í erfðaskránni minni.“ „Það er fallega gert af þér,“ sagði lækirinn snort- inn og bætti síðan við: „Viltu vera svo vænn og lofa mér að sjá lyfseðilinn, sem ég var að skrifa fyrir þig. Ég þarf að breyta honum lítilsháttar." Læknablaðið 2001/87 747
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.