Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2001, Page 66

Læknablaðið - 15.09.2001, Page 66
fexofenadin -áhrifaríkt andhistamín • Bætir lífsgæði sjúklinga marktækt betur en lóratadín* 1) • Engin slævandi áhrif - öruggt fyrir flugmenn og aðra í krefjandi störfum2) • Dregur marktækt úr nefstíflu1,3,4) TELFAST TÖFLUR; Hver tafla inniheldur: Fexofenadinum INN, klóríö 120 mg eða 180 mg. Töflurnar innihalda litarefnin titantvíoxíö (E-171) og járnoxiö (E-172) gult og rautt. Abendingar: Töflur 120 mg: Gegn árstíöabundnu ofnæmiskvefi (seasonal allergic rhinitis). Töflur 180 mg: Dregur úr einkennum sem koma fram vegna langvinns ofsakláöa (chronic idiopathic urticaria). Skammtar: Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Ofnæmiskvef: Ráðlagður skammtur af fexófenadíni fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára er 120 mg einu sinni á dag. Einkenni vegna langvinns ofsakláða: Ráölagöur skammtur af fexófenadíni fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára er 180 mg einu sinni á dag. Börn yngri en 12 ára: Virkni og öryggi fexófenadíns hefur ekki veriö rannsakaö hjá börnum yngri en 12 ára. Frábendingar: Lyfið er ekki ráðlagt sjúklingum sem hafa þekkt ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Varnaöarorö og varúöarreglur: Eins og fyrir flest ný lyf eru einungis til takmarkaðar upplýsingar um notkun lyfsins hjá öldruðum og sjúklingum sem hafa skerta nýrna- eöa lifrarstarfsemi. Gæta skal varúöar við gjöf fexófenadíns hjá þessum sérstöku hópum. Milliverkanir: Fexófenadín er ekki umbrotiö í lifur og hefur því ekki áhrif á önnur lyf sem eru umbrotin þar. Komiö hefur í Ijós aö samtimis gjöf fexófenadíns og erýthrómýcins eöa ketókónazóls leiöir til aö þéttni fexófenadíns í blóöi veröur tvisvar til þrisvar sinnum meiri. Breytingarnar leiddu ekki til áhrifa á QT biliö og ekki til aukningar á aukaverkunum, boriö saman viö lyfin gefin sitt í hvoru lagi. Engar milliverkanir milli fexófenadíns og ómeprazól hafa komið fram. Hins vegar veldur inntaka sýrubindandi lyfja sem innihalda ál- eöa magnesíum hýdroxíö hlaup 15 mínútum fyrir inntöku fexófenadíns minnkun í aögengi, líklega vegna bindingar í meltingarveginum. Ráölagt er aö láta 2 klst. liöa á milli inntöku fexófenadíns og sýrubindandi lyfja sem innihalda ál og magnesíum. Meóganga og brjóstagjöf: Engin reynsla er af notkun fexófenadíns hjá barnshafandi konum. Eins og á viö um önnur lyf ætti ekki aö nota fexófenadín á meÖgöngu nema aö tilætlaður árangur sé mikilvægari en möguleg áhætta fyrir fóstrið. Engar upplýsingar eru fyrir hendi um innihald móðurmjólkur kvenna eftir töku fexófenadíns. Engu aö síöur kom í Ijós, þegar terfenadín var gefið mjólkandi mæörum, aö þaö útskilst í brjóstamjólkinni. Þvi er konum sem hafa börn á brjósti ekki ráölagt aö taka fexófenadín. Aukaverkanir: I klinískum samanburöarrannsóknum voru algengustu aukaverkanirnar sem komu fram, eftirfarandi: höfuðverkur (7.3%), sljóleiki (2.3%), ógleöi (1.5%), svimi (1.5%) og þreyta (0.9%). Tíöni þessara aukaverkana af fexófenadíni var svipuö og af lyfleysu. I einstaka tilvikum hefur veriö greint frá útbrotum, ofsakláöa og kláða. Lyfhrif: Fexófenadín hýdróklóríö er Hi-andhistamín án róandi áhrifa. Fexófenadín er lyfjafræðilega virkt umbrotsefni terfenadíns. Pakkningar og verö (apríl 2001): Töflur 120 mg:30 stk. (þynnupakkað) 2.107 kr., 100 stk. (þynnupakkað) 5.381 kr. Töflur 180 mg: 30 stk. (þynnupakkað) 2.633 kr., 100 stk. (þynnupakkaö) 6.863 kr. Afgreiðslutilhögun: Lyfiö er lyfseðilsskylt. Greiðsluþátttaka: E. Umboðsaðili á Islandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabær. Styttur texti sérlyfjaskrár 2000. Lesið vandlega leiöbeiningar sem fylgja hverri pakkningu lyfsins. Heimildir: 1) Van Cauwenberge P. et al. Clinical & Experimental Allergy 2000; 2) Nicholson A.N. et al. Antihistamines and Aircrew: Aviation, Space and Environmental Medicine 2000; 3) Bernstein D.l. et al. Ann Allergy, Asthma, Immunol 1997; 4) Howarth P.H. et al. J Allergy Clin Immunol 1999.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.