Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2001, Qupperneq 69

Læknablaðið - 15.09.2001, Qupperneq 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚR ERLENDUM LÆKNABLÖÐUM Talibanar þjarma að konum í Afganistan Hvernig skyldi íslenskum læknum líka að starfa eftir reglum eins og þeim sem gilda í Afganistan og birtast hér á síðunni? Sú spurning vaknar við lestur á grein sem birtist í norska læknablaðinu Tidsskrift for Den norske lægeforening, en þar segir norskur læknir, Ingvil Krarup Sprbye, frá starfsaðstæðum lækna í bænum Doshi í norðurhluta landsins. Hún hefur starfað þar á vegum samtakanna Læknar án landamæra og aðstoðað konur á átakasvæðum. Eins og flestir vita náðu strangtrúaðir múslimar sem nefna sig talibana völdum í Afganistan fyrir nokkrum árum og innleiddu strangar reglur sem þeir segja byggðar á fornum lögum Islams. Eitt af ráðu- neytum þeirra hefur það hlutverk að berjast gegn siðleysi og stuðla að dyggðugu lífemi (Ministry for the Prevention of Vice and Promotion of Virtue, heitir það á ensku) og á vegum þess starfa lögreglu- sveitir vopnaðar Khalashnikoff rifflum við að fram- fylgja ákvörðunum ráðuneytisins. Norski læknirinn lýsir degi í starfi sínu en það er fólgið í almennri heilsugæslu, auk þess sem haldin eru námskeið um fæðingarhjálp og vandamál á með- göngu. Raunar eru Læknar án landamæra víðast hvar hættir að halda slík námskeið en þeim er haldið uppi í Afganistan af þeirri ástæðu einni að þau eru eina leiðin fyrir læknana að ná sambandi við konurn- ar í landinu. Ingvil Krarup segir frá því þegar hún þarf að sinna útkalli í miðri kennslustund en þegar hún kemur til baka er allt í uppnámi. Túlkurinn hennar er karlkyns og aðvífandi lögreglumaður hafði gert athugasemd við það að hann skyldi vera í sama herbergi og konumar á námskeiðinu. Og þótt hún hafi fengið sérstakt leyfi yfirvalda til að nota þennan túlk verður hún að senda hann burt. Pað er ekki til siðs að mótmæla trúarbragðalögreglunni. Þegar þetta vandamál er leyst kemur annað upp. Trúarbragðalögreglan ákveður að loka lúgu í kvenna- deild heilsugæslustöðvarinnar þar sem konur láta skrá sig og fá afhent lyf. Hinum megin við lúguna situr nefnilega karlmaður og þótt konurnar séu huld- ar frá toppi til táar og með þéttriðna netmöskva fyrir andlitinu þykir þetta ekki nógu siðlegt. Nú þarf að loka lúgunni og taka upp nýjar samningaviðræður við talibanana. Þrátt fyrir þessar hindranir finnst konunum heilsu- gæslustöðin vera eins og vin í eyðimörkinni. Hún er eini staðurinn í bænum þar sem þær geta hist og rætt saman í friði. Biðstofumar eru vettvangur frjálslegra Pannig sér skopteiknari blaðsins Shabkhand í Peshawar í Pakistan fyrir sér lœknisskoðun í Afganistan. I raun eru engar hömlur lagðar á snertingu kvenna en strangt eftirlit er haft nieð samskiptum kynjanna og þeim haldið í algeru lágmarki. Vinnureglur fyrir sjúkrahús og heilsugæslu- stöðvar í ríkis- og einkaeigu byggðar á islömskum lögum Gefnar út af heilbrigðisráðuneyti Afganistans, Kabúl 1996 • Kvenkyns sjúklingar eiga að leita til kvenkyns lækna. Sé nauðsynlegt að kona leiti til karlkyns læknis skal hún vera í fylgd náins ættingja af karlkyni. • Meðan rannsókn fer fram skal kvenkyns sjúklingur vera íklæddur islömskum hijab (kufli sem hylur andlit og líkama viðkomandi). • Karlkyns læknar skulu ekki snerta eða skoða aðra hluta líkama kvenkyns sjúklinga en þann sem konan leitar lækninga á. • Biðstofur kvenkyns sjúklinga skulu vera lokaðar svo ekki sé hægt að sjá inn á þær. • Karlkyns læknar á næturvakt eiga ekki að hafa aðgang að sjúkrastofum þar sem konur liggja nema þær kalli þá sérstaklega til sín. • Karlkyns og kvenkyns læknum er óheimilt að sitja og spjalla saman. Sé óhjákvæmilegt að þeir ræðist við skulu kvenkyns læknar íklæddir hijab. • Kvenkyns læknar skulu klæðast látlausum fötum, tískufatnaður er ekki leyfilegur og notkun snyrtivara bönnuð. • Kvenkyns læknum og hjúkrunarfræðingum er óheimilt að stíga fæti inn í sjúkrastofur þar sem karlar liggja. • Trúarbragðalögreglan hefur leyfi til þess að fylgjast með því að þessum reglum sé framfylgt hvenær sem henni þóknast og engum er leyfilegt að hindra störf hennar. Sá sem brýtur gegn þessum reglum skal sæta refsingum sem kveðið er á um í islömskum lögum. (Þýtt úr Tidsskr Nor Lœgeforen 2001; 121:2196-7) umræðna og þar er ekki að heyra að konurnar ætli að láta beygja sig til hlýðni. Þegar vinnudegi norska læknisins lýkur kveður hún aðstoðarkonu sína sem segir við hana: „Þeir geta látið okkur hylja líkama okkar, en hugurinn er opinn.“ Svo bætir hún við og augun blika bak við netið: „Islam er svo dásamlegur hlutur, en þetta er ekki Islam.“ -ÞH Læknablaðið 2001/87 753
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.