Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2002, Qupperneq 51

Læknablaðið - 15.03.2002, Qupperneq 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NORRÆNT SAMSTARF Norrænir læknar ræða öryggí sjúklinga Tvisvar á ári hittist stjórn Norræna lækna- ráðsins til skiptis á Norðurlöndum og í byrjun febrúar var röðin komin að Islandi. í stjórninni sitja formenn læknafélaganna fimm eða staðgenglar þeirra ásamt framkvæmdastjórum og/eða öðrum starfsmönnum. Formennskan færist milli landa og um þessar mundir eru Norðmenn í forsæti. Svo vill til að í Noregi hafa orðið töluverð um- skipti í forystu lækna. Um áramótin tók nýr maður við sem forseti norsku læknasamtakanna, Hans Kristian Bakke, og með honum í för voru tveir nýir menn, þeir Ásmund Hodne framkvæmdastjóri og Magne Nylenna sem gegndi starfi ritstjóra norska læknablaðsins fram til síðustu áramóta þegar hann færði sig yfir í stól aðalritara. Læknablaðið hitti Hans Krislian Bakke að máli og innti hann eftir því um hvað fundurinn í Þjóðmenningarhúsinu hefði snúist. „A þessum fundum er fjallað um sameiginleg mál- efni norrænna lækna og að vanda var rætt um sam- starf okkar á vettvangi Alþjóðafélags lækna og Evrópusamtaka lækna. En það sem tók mestan tíma var að undirbúa fund Norræna læknaráðsins sem haldinn verður í Björgvin dagana 21.-23. maí næst- komandi,“ sagði Hans. Hann sagði að á fundum ráðsins væri rætt um ýmis mál en að þessu sinni verður meginefni fundarins öryggi sjúklinga. „Þaö verður rætt um kerfi sem eiga að tryggja gæði meðferðar, um óhöpp sem hent geta sjúklinga og um lækna sem ekki standa sig í starfi. Þá verður einnig fjallað um fjármögnun og uppbyggingu heilbrigðiskerfisins, eignarhald og annað sem haft getur áhrif á öryggi og velferð sjúklinga," sagði norski formaðurinn. Hann sagði að norrænir læknar ættu margt sam- eiginlegt þótt vissulega væri uppbygging og skipulag heilbrigðisþjónustu með mismunandi hætti í löndun- um. „I Noregi erum við til dæmis mjög upptekin af því að koma á nýju kerfi í þjónustu heimilislækna, svonefndu „fastlegesystem" sem gerir ráð fyrir því að hver sjúklingur hafi fastan lækni sem fylgist með hon- um hvar svo sem hann er staddur í heilbrigðiskerfinu. Þetta kerfi tökum við upp að danskri fyrirmynd en Danir og raunar ýmsar aðrar þjóðir hafa aðhyllst þetta skipulag um langt árabil. Þarna sést hins vegar vel hve ólík Norðurlönd geta verið því í Svíþjóð eru flestir læknar starfsmenn sveitarfélaga eða léna en á Islandi er blanda af einkarekstri og opinberum og allt kerfið miklu opnara,“ sagði Hans. Hann bætti því við að vissulega gætu læknar á Norðurlöndum lært ýmislegt af íslenskum kollegum og tók sem dæmi miðlægan gagnagrunn á heilbrigðis- sviði. „Það er mjög forvitnilegt fyrir okkur að fylgjast með gangi þess máls hér á landi því þetta er ákaflega mikilvægt hagsmunamál sem snertir okkur ekki síður en ykkur,“ sagði Hans Kristian Bakke að lokum. -ÞH Hans Kristian Bakke formaður norska lœkna- félagsins og stjórnarfor- maður Norrœna lœkna- ráðsins. Formannaráðstefna Læknafélags íslands Boðað er til formannafundar skv. 9. grein laga Læknafélags íslands föstudag- inn 12. apríl 2002 í húsnæði læknasamtakanna að Hlíðasmára 8, Kópavogi. Dagskrá: 10:00-12:30 Skýrsla formanns LÍ um afgreiðslu ályktana aðalfundar 2001, störf stjórnar og stöðu helstu mála. Skýrslur formanna aðildarfélaga, samninganefnda og helstu starfsnefnda eftir atvikum. 12:30-13:30 Matarhlé 13:30-15:00 1. Lœknarí vanda. Heilbrigðiseftirlit með lœknum Frummælendur: Landlæknir og Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnueftirlits ríkisins 2. Upplýsingar - auglýsingar á tölvuöld Frummælandi: Einar Oddsson, formaður Siðfræðiráðs LÍ 3. Skipulagsmáil lœknasamtakanna, stéttarfélag/félög lœkna Frummælandi: Sigurbjörn Sveinsson, formaður LÍ Umræður 15:00-15:30 Kaffihlé 15:30-17:00 Áframhald umræðna Önnur mál Fundarlok verða að heimili formanns, Hæðarseli 28, Reykjavík. Læknablaðið 2002/88 227
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.