Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2002, Qupperneq 9

Læknablaðið - 15.09.2002, Qupperneq 9
RITSTJÓRNARGREINAR Misnotkun lækna og lyfja Síðastliðið vor komu upp umræður um morfínmis- notkun, dauðsföll af hennar völdum, lækna sem ávísa þessum lyfjum til fíkla, lyíjafalsanir fíkla, sölu þessara lyfja á götunni, viðhaldsmeðferð ópíumfíkla og fleira sem snýr að þessum málaflokki. Mörgum þótti um- ræðan löngu tímabær og þörf þó svo að allir hafi ekki verið sammála. Óþarfi hafi verið að ræða þetta í fjölmiðlum og á jafn opinskáan hátt og gert var. Sum- um læknum hefur ef til vill þótt vegið að heiðri stétt- arinnar en langtum fleirum tel ég þó að hafi þótt þetta þörf umræða og orðið til að vekja menn til um- hugsunar um allar lyfjaútskriftir. Sjúklingahópurinn sem við á Vogi önnumst er um margt ólíkur sjúklingum annarra lækna en er þó það íjölmennur og fyrirferðarmikill innan heilbrigðiskerf- isins að allir læknar verða að taka tillit til hans og hafa auk þess vakandi auga með hættum sem stafar af lyfj- um sem geta valdið ávana og fíkn. Sum lyf sem gagn- ast sjúklingum vel í upphafi geta stundum snúist upp í andhverfu sína með því að valda umtalsverðu heilsu- tjóni, andlegri og félagslegri vanlíðan og fjölskyldu- harmleik sem endar með skipbroti einstaklingsins. Lyfin sem eiga að hjálpa skaða ekki eingöngu sjúk- linginn heldur líka þá sem næst honum standa. Mikil aukning hefur orðið á útskriftum allra þessara lyfja undanfarin ár og skýrist sú aukning ekki af auknum fjölda sjúklinga heldur er verið að misnota þessi lyf í æ ríkari mæli en áður tíðkaðist, en þær upplýsingar má lesa meðal annars út úr tíðnitölum hér á Vogi undan- farin ár. Fíkniefnasjúklingurinn sækir í vímu og það sem einkennir hann er að finni hann til vímu eru miklar líkur á stjórnleysi í neyslu hvað varðar magn, tíma- setningar og gjörðir. Annað sem einkennir fíkilinn er afneitunin, hann talar sjálfan sig til og finnst allt vera undir eftirliti og í góðum málum þó hann sé í stöðugri neyslu. Hér er ábyrgð læknanna mikil, því það er ekki eins að taka lyf sem fengin eru hjá lækni og að taka þau sem maður fær á svörtum markaði. Pað skiptir engu þó lyfin geti oft verið mun verri en hin svokölluðu ólöglegu eiturlyf, stundum eru ólöglegu vímuefnin einnig til sem lyf eins og amfetamín. Óvirkur alkóhólisti sem var vanur að nota áfengi getur hæglega fallið við að taka vímuframkallandi lyf, alveg óháð því hvort það er fengið gegn lyfseðli eða ekki. Upphaflega átti þessi grein að fjalla um mis- notkun lyfja eða „læknadóp“ en ég kýs að kalla hana einnig misnotkun lækna því sjúklingarnir misnota oft okkur læknana með því að spinna upp ótrúlegustu lygavefi eða hafa marga lækna í takinu, segjast taka lyfin í lækningalegum skömmtum, en raunin er oft allt önnur, ein tafla þrisvar á dag verður 30 eða 60 á dag. Fáir sem ég tala við taka eina mogadon í einu, flestir tala um að taka allt spjaldið í einu, eða 10 töflur, og það nokkrum sinnum á dag. Sjaldan eru lyfin notuð ein og sér heldur vill fíkillinn krossa þau með áfengi, kaffi eða öðrum lyfjum löglegum eða ólögleg- um. A Vog koma líka þeir sem misnota lausasölulyf eins og parkódín í óhóflegu magni, ekki er óalgengt að þessir sjúklingar séu að taka 50-80 töflur á dag og maður undrast hvernig það megi vera með allt þetta parasetamól og leiðir hugann að því hvort ekki ætti hreinlega að banna lausasölu þessara lyfja. Fíkn sjúk- linga í þessi lyf er slík að þeir svífast einskis til að verða sér úti um þau. Hér eru læknar plataðir hægri vinstri og það er vafalaust alveg eðlilegt að við séum gabbaðir því við eigum að bera visst traust til sjúk- lingsins. Það sem þarf er virkara eftirlit með sjúkling- um sem misnota lækna. Þá fáum við stundum sögur af læknum sem selja lyfseðla, einn fjölskyldumeðlimur var sendur til lækn- isins til að sækja lyfseðla á hvern meðlim fjölskyld- unnar og greiðir ákveðið gjald fyrir hvern seðil án þess að sjá lækninn, ég hef spurt um gjaldið og það er mun hærra en viðtal kostar. Sumir skrifa uppá örorku fyrir sína sjúklinga sem koma svo á læknamóttökuna til að sækja sér lyfseðla og skrifa undir í leiðinni fyrir komu á stofu, þeir greiða ekkert en fá lyfseðil án þess að hitta lækninn eða þá að þeir hitta hann í mýflugu- mynd. Þá eru sumir sem fá svo ótakmarkað af lyfjum hjá læknum sínum að þeir halda sér og öðrum uppi á dópi. Sjúklingar selja oft lyf sem þeir fá ávísað af læknum á svörtum markaði, sem dæmi má nefna að 100 töflur af 60 mg contalgyni kosta fyrir öryrkja 641 kr. úr apóteki en þeir geta selt hverja töflu á 2000 kr. stykkið eða pakkann á 200.000 kr. Þennan leik leika sumir til að fjármagna eigin neyslu ólöglegra vímu- efna sem þeir fá hjá fíkniefnasölum, þannig rennur þetta fé í neðanjarðarhagkerfi fíkniefnaheimsins á ís- landi en sá heimur er skipulagðari en almennt er talið að okkar mati hjá SÁÁ. Læknar geta þannig verið að leggja vel skipulagðri glæpastarfsemi þessa lands lið með lyfjaútskriftum án þess að gera sér nokkra grein fyrir því. Spurningin er hvort það sé þetta sem við læknar viljum eða hvort við viljum virkara eftirlit með okkur læknum og sjúklingum okkar? Slíkt eftirlit ætti ekki að miða að því að svipta menn leyfi heldur fyrst og fremst þarf það að vera það virkt að það geti séð hverjir eru farnir að spora úr í lyfjaútskriftum sínum og koma með vingjarnlegar ábendingar til þeirra, kynna fyrir læknum þá sjúklinga sem hafa orðið upp- vísir að því að misnota kerfið og til að kenna og leið- beina læknum varðandi vímuefni og vímuefnafíkn. Einar Rúnar Axelsson Höfundur er læknir á Vogi. Læknablaðið 2002/88 621
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.