Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 31
FRÆÐIGREINAR / STARFSENDURHÆFING efni og þann undirbúning sem tölvunámskeið veitti fyrir vinnu og 63,1% voru í heildina ánægð með tölvunámskeiðið. Einnig var könnuð þekking þátttakenda á þeirri endurhæfingu sem þeim stóð til boða. Eins og sést í töflu IV þá vissu fæstir (16,9%) hvaða möguleikar um endurhæfingu stóðu þeim til boða áður en þeir fóru í endurhæfingarmat. Taflan sýnir einnig að meirihluta (59,0%) var vísað á úrræði sem þeir vissu ekki um. Þá var spurt um gagnsemi endurhæfingarinnar. Almennt séð voru viðmælendur jákvæðir til endur- hæfingarmatsins áður en þeir fóru í það (63,9% voru jákvæðir en aðeins 15,7% neikvæðir). Eins og kemur fram í töflu V þá taldi tæplega helmingur (47%) að endurhæfingarmatið hefði verið gagnlegt og rúmlega helmingur (54,2%) taldi að gagnlegt hefði verið að hitta meðlimi matshópsins. Matið var í samræmi við væntingar hjá stórum hópi (38,9%), stóðst ekki vænt- ingar nokkuð margra (34,9%) og fór fram úr vænt- ingum sumra (20,5%). Þátttakendur voru spurðir hvort sjálfstraust þeirra og sjálfsbjargarviðleitni hefði vaxið eða minnkað við að fara í gegnum þetta endurhæfingarferli (tafla VI). Eins og sjá má þá taldi tæpur helmingur (47,0%) að sjálfstraust hefði aukist og aðeins lítill hluti taldi að það hefði minnkað (10,8%). Þegar á heildina er litið hafði sjálfstraustið aukist hjá hópnum (M=5,7). Meiri áhrif voru á sjálfsbjargarviðleitni og taldi rúmlega helmingur að hún hefði aukist (53,8%) og mjög fáir töldu að hún hefði minnkað (6,2%). Þegar á heildina er litið var sjálfsbjargarviðleitni hópsins mun meiri eftir endurhæfinguna en áður (M=6,3). Umræða Fylgt var eftir þeim 109 einstaklingum sem metnir voru af endurhæfingarmatsteymi á árinu 2000 sem var fyrsta heila almanaksárið sem starfsendurhæfing á vegum TR fór fram. Konur voru í meirihluta mats- þega (helmingi fleiri en karlar), stór hluti hafði ekki menntun umfram grunnskóla og stoðkerfisraskanir og geðraskanir voru helstu læknisfræðilegar forsend- ur tilvísunar til endurhæfingarmatsteymis (7). Þessi samsetning er sambærileg og hjá þeim sem orðið hafa öryrkjar á íslandi á undanfömum árum (8-11). Starfs- endurhæfingarúrræði TR taka mið af því að þetta fólk hefur almennt þörf fyrir frekari menntun til að bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Áttatíu af hundraði þeirra sem voru í starfsendur- hæfingu á Reykjalundi reyndust ánægðir með fræðsl- una sem þeir fengu þar, 75% voru ánægðir með æf- ingar og verkefni þar og 62,5% þátttakenda voru í heildina ánægðir með atvinnulegu endurhæfinguna á Reykjalundi. Af þátttakendum á tölvunámskeiði í Hringsjá reyndust 84,2% ánægðir með námsefnið og þann undirbúning sem námskeiðið veitti þeim fyrir Tafla IV. Vitneskja um framboö á endurhæfingarþjónustu. Já Nei Röldi Vissir þú hvaöa endurhæfing stóö þértil boöa? 16,9% 83,1% 83 Var þér vtsað á úrræði sem þú vissir ekki um? 59,0% 41,0% 83 Tafla V. Gagnsemi þess aö hitta endurhæfingarteymiö. Mjög/frekar Mjög/frekar gagnlegt Hvorki né gagnslítiö Fjöldi Var endurhæfingarmatið gagnlegt? 47,0% 22,9% 30,1% 83 Var gagnlegt að hitta matsteymið? 54,2% 24,1% 21,7% 83 Tafla VI. Áhrif endurhæfingar á sjálfstraust og sjálfsbjargarviöleitni. Hefur Haldist Hefur Meöal- Staöal- aukist óbreytt minnkaö skor frávik Sjálfstraust1 47,0% 42,2% 10,8% 5,7 2,4 Siálfsbiargarviðleitni1 53,8% 40,0% 6,2% 6,3 2,2 1 Mælistikan náöi frá 0 til 10 og merkti 0 aí> mlkil breyting heföi orðið til hins verra, 5 að engin breyting heföi orðiö og 10 aö mikil breyting heföi oröiö til batnaöar. áframhaldandi nám eða starf. Áttatíu af hundraði voru ánægðir með það námsefni sem var á dagskrá í fullu starfsnámi í Hringsjá og allir voru ánægðir með þann undirbúning sem starfsnámið veitti þeim fyrir áframhaldandi nám eða starf. Þannig eru um fjórir af hverjum fimm ánægðir með þá starfsendurhæfingu sem TR hefur boðið þeim uppá, sem hlýtur að teljast góð niðurstaða. Til samanburðar er rannsókn þar sem könnuð voru viðhorf fólks á þremur svæðum í Suður-Svíþjóð til endurhæfingar á vegum trygginga- stofnunar sem þeir höfðu verið sendir í eftir mat hjá teymi sem í voru læknir, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari og félagsráðgjafi. Aðeins þrír af 31 voru ánægðir með endurhæfinguna, þrír voru í vafa, en 24 töldu endur- hæfinguna ekki hafa komið sér að neinu gagni. Suntir litu á ferlið sem eins konar próf af hálfu trygginga- stofnunarinnar og margir kvörtuðu um að innbyrðis samskipti þeirra sem hefðu verið í teyminu hefðu verið ófullnægjandi og einnig samskipti teymis og tryggingastofnunar (12). Drjúgur meirihluti þeirra sem metnir voru af matsteyminu í þessari rannsókn töldu það hafa verið gagnlegt fyrir sig að hitta teymið. Þetta er jákvæðari niðurstaða en búast mátti við, þar sem teyminu er fyrst og fremst ætlað að meta endurhæfingarmögu- leika, en ekki veita meðferð. Búast má við að í mörg- urn tilvikum séu þeir sem þangað er vísað að missa trúna á að þeir geti gert eitthvað í sínum málum og séu því farnir að huga að örorkubótum og komi því með fremur neikvæðu hugarfari. Væntanlega hefur fólk hins vegar fengið uppörvun, upplýsingar og ráð- gjöf við að koma til meðlima teymisins. Sú niðurstaða að 59% matsþega töldu teymið hafa vísað á úrræði sem þeir vissu ekki um fyrir staðfestir þetta raunar. Jafnframt taldi um helmingur þeirra sem metnir voru af matsteyminu sjálfstraust sitt og sjálfsbjargarvið- leitni hafa aukist frá því matið fór fram. Læknablaðið 2002/88 643
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.