Læknablaðið - 15.10.2003, Síða 3
FRÆÐIGREINAR
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
743 Ritstjórnargreinar:
Hönnun spítala
Haraldur Briem
745 Burðarmálsdauði á íslandi - getum við enn lækkað tíðnina?
Ragnheiður Inga Bjarnadóttir
751 Talídómíð: Lyf hörmunga og hjálpræðis - Fyrri hluti: Tilurð
talídómíðs, sameindargerð og fyrsti ferill
Porkell Jóhannesson
Talídómíð er upphaflega svefnlyf, róandi og kvíðastillandi lyf sem byrjað
var að nota árið 1955. Lyfið var illa rannsakað en fyrir tilstilli öflugra aug-
lýsinga hlaut það skjóta og mikla útbreiðslu, ekki síst meðal þungaðra
kvenna. Sex árum síðar, 1961, varð ljóst að lyfið gat valdið alvarlegum
skemmdum í úttaugakerfi og einnig hörmulegum fósturskemmdum. Hér
er rakin saga tilurðar lyfsins, sameindargerð og fyrsti ferill allt fram til
1963.1 síðari hluta greinarinnar sem birtast mun í nóvembertölublaði
Læknablaðsins verður fjallað um rannsóknir á verkunum og verkunarhátt-
um talídómíðs og síðari tíma notkun lyfsins.
759 Samanburður á árangri og fylgikvillum kransæðavíkkana
hjá konum og körlum
Ragnar Danielsen, Kristján Eyjólfsson
Umdeilt er hvort árangur kransæðavíkkana sé jafngóður hjá konum og
körlum. Gerðar voru 3355 slíkar aðgerðir hérlendis frá 1987-2000, 24% að-
gerðanna hjá konum, 76% þeirra hjá körlum. Samkvæmt þessari rannsókn
er frumárangur góður og sambærilegur hjá báðum kynjum. Dánarlíkur á
sjúkrahúsi eru lágar og helstu fylgikvillar eru álíka algengir hjá konum og
körlum, nema hvað náravandamál á stungustað eru tíðari hjá konum.
767 Þyngd skólabarna og tengsl hennar við líðan og námsárangur
Magnús Olafsson, Kjartan Ólafsson, Kristján M. Magnússon,
Rósa Eggertsdóttir
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort finna mætti tengsl á
milli þyngdar grunnskólabarna og hvernig þeim liði og árangurs þeirra í
námi. Jafnframt var leitað svara við því hvort þessi hópur samfélagsins hafi
þyngst á síðustu 30 árum, og reyndist um marktæka þyngdaraukningu að
ræða 1970-90, en ekki á síðasta áratug liðinnar aldar. Helstu niðurstöður
eru þær að eftir því sem börnin eldast virðist fara að gæta sambands milli
ofþyngdar og gengi í námi, og meðal þungra eru engir nemendur sem ná
besta námsárangri í skólanum.
10. tbl. 89. árg. Október 2003
Aðsetur
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
Læknafélög: 564 4100
Læknablaðið: 564 4104
Bréfasími (fax): 564 4106
Læknablaðið á netinu
www. laekrabladid. is
Ritstjórn
Emil L. Sigurðsson
Hannes Petersen
Jóhannes Björnsson
Karl Andersen
Ragnheiður Inga Bjarnadóttir
Vilhjálmur Rafnsson ábm.
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@lis.is
Umbrot
Eyþór Sverrisson
eythorsv@gutenberg. is
Upplag
1.600
Áskrift
6.840,- m.vsk.
Lausasala
700,- m.vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
779 Notkun náttúruefna, fæðubótarefna og lausasölulyfja - hönnun
og prófun spurningalista
Anna Birna Almarsdóttir, Magnús Sigurðsson, Vilmundur Guðnason
Prentun og bókband
Prentsmiðjan Gutenberg hf.,
Síðumúla 16-18,
108 Reykjavík
Við faraldsfræðilegar rannsóknir hefur komið í ljós að opnar spurningar
eru varasamar við mælingu á notkun lyfja og skyldra efna. í greininni er
skýrt frá hönnun og prófun spurningalista af þessum toga og jafnframt
greint frá niðurstöðum svaranna. Rannsóknarúrtak var mjög lítið og svar-
bjagi gæti verið til staðar sem leiðir til þess að sú niðurstaða að Islending-
ar noti mun meira náttúruefni, fæðubótarefni og lausasölulyf en þekkt er í
erlendum rannsóknum er að öllum líkindum ekki alls kostar rétt.
Pökkun
Póstdreifing ehf.,
Dugguvogi 10,
104 Reykjavík
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið 2003/89 739