Læknablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 17
FRÆÐIGREINAR / HEILSUFAR ALDRAÐRA
í sjúkraskrám heimilismanna voru 219 vistunar-
möt tiltæk fyrir síðari árin, eða fyrir 57% heimilis-
fólksins í rannsókninni. Vistunarmat var innleitt árið
1991 en það tekur til félagslegra aðstæðna, líkamlegs
heilsufars, andlegs atgervis og almennrar færni. Fé-
lagslegi þáttur matsins vó þyngst, því næst færniþátt-
ur, líkamlegt og loks andlegt mat. Heildarstigin árin
1991-94 voru 61 (± 21) en þar á meðal voru allmargir
sem höfðu dvalið lengi á heimilinu og reyndust hafa
fleiri stig á vistunarmatinu. Hinir einstöku kaflar
matsins breyttust lítið eins og sést í töflu III.
Heilsufarsáföll á dvalartíma eru sýnd á töflu IV.
Algengustu áföll voru þvagfærasýkingar, en næst
koma kviðverkir, sýkingar í öndunarfærum, húðsýk-
ingar, heila- og hjartaáföll, lungnateppa og krabba-
mein. Taka ber fram að undir kviðverki flokkast fjöl-
breyttar ástæður, svo sem hægðatregða, þvagteppa og
magabólgur. Algengustu húðsýkingar voru léttur roði
eða grunnt fleiður.
Byltur og brot eru tekin saman í töflu V. Alls töld-
ust 92 beinbrot hafa átt sér stað á heimilinu. Alls
hlutu um 12% heimilismanna mjaðmarbrot á heim-
ilinu. Byltur voru skráðar 292 og má ætla að þær séu
gróflega vantaldar.
Vitjanir lækna heimilisins, tilvísanir til bráðamót-
töku og til annarra sérfræðilækna eru sýndar í töflu
VI. Vitjanatíðni til heimilismanna var á bilinu frá 15
til 27 á mann á hverju tímabili. Aðgengi að sérgreina-
læknum hefur áhrif á fjölda tilvísana. Tannlæknaþjón-
usta er vanskráð vegna þess að heimilismenn fóru oft
á stofur til sinna tannlækna, án þess að það væri skráð
í dagála.
Læknar heimilisins staðfestu andlát og gáfu út
dánarvottorð fyrir alla sem létust á heimilinu. í 364
tilvikum (95%) var aðaldánarorsök skráð í dagál og
þar meðtalin fimm tilvik þar sem fram fór krufning á
hinum látna. Skráð dánarmein eru sýnd í töflu VII.
Algengustu dánarorsakir voru lungnabólga og aðrar
sýkingar, þvínæst sjúkdómar í hjarta, slag og krabba-
mein. Heilabilun var önnur í röðinni en það var samt
algengasta greining við komu, samanber töflu II.
Umræða
Heilbrigðislöggjöf íslendinga kveður á um að allir
Tafla V. Byltur og brot.
Byltur og brot 1983-1986 1987-1990 1991-1994 1995-1998 1999-2002 Alls
Mjaðmarbrot fyrir komu 11 7 11 12 9 50
Mjaðmarbrot á Droplaugar- stöðum 11 13 7 2 12 45
Önnur beinbrot 11 9 9 2 16 47
Skráðar byltur 57 55 52 44 84 292
Tafla VI. Vitjanir, bráðamóttaka og samráðskvaðningar.
Sérfræðiráðgjöf 1983-1986 1987-1990 1991-1994 1995-1998 1999-2002 Alls
Skráðar vitj- anir læknis (á vistmann) 861 (20,5) 963 (15,5) 1038 (14,6) 1599 (14,5) 2780 (26,7) 6542 (18,8)
Vísað til bráða-
móttöku 84 68 49 20 71 292
(á vistmann) (2) (1,1) (0,7) (0,2) (2,4) (0,8)
Augnlæknar 45 41 57 30 63 236
Háls-, nef- og
eyrnalæknar 19 13 12 11 14 69
Geðlæknar 7 14 8 17 19 65
Húðlæknar 7 11 19 3 24 64
Tannlæknar 3 19 7 3 0 32
Þvagfæra-
skurðlæknar 5 3 6 4 8 26
Kvensjúkdóma-
læknar 2 7 1 1 2 13
landsmenn hafi völ á bestu heilbrigðisþjónustu sem
unnt sé að veita og að hún sé jafnframt rekin með
skilvirkni (6). Rekstur hjúkrunarheimila heyrir undir
heilbrigðislög og bera stjórnvöld ábyrgð á framkvæmd
þeirra. A þeim árum sem rannsóknin tekur til urðu
miklar breytingar á stofnanaþjónustu fyrir aldraða;
Vistunarmat aldraðra var innleitt, RAI-mat sem
er fjölþátta mat á umönnunarþörfum aldraðra var
tekið upp og útgefnar almennar leiðbeiningar um
meðferð við lífslok. I’að er því áhugavert að greina
þær breytingar sem orðið hafa fyrir og eftir þann
tíma. Jafnframt er áhugavert að varpa ljósi á heilsu-
farsbreytur aldraðs fólks á hjúkrunarheimili.
Því hefur verið haldið fram að dagálar lækna á
hjúkrunarheimilum séu oft ónákvæmir á þeim atrið-
um sem snúa að umönnun á hjúkrunarheimilum (7).
I okkar rannsókn er skýrt frá heilsufarsatvikum heirn-
Tafla VII. Skráð dánarmein í dagálum 210 vistmanna 1983-2002.
Skráð dánarmein 1983-1986 1987-1990 1991-1994 1995-1998 1999-2002 Alls Tíóni %
Lungnabólga 24 27 28 24 47 150 41
Heilabilun 0 1 6 2 38 47 13
Kranseeðasjúkdómar 3 7 5 4 27 46 13
Hjartabilun 5 3 4 8 24 44 12
Slag 4 2 2 4 18 30 8
Sýking (blóðeitrun) 8 3 8 2 6 27 7
Krabbamein 2 2 3 6 7 20 5
Læknablaðið 2005/91 157