Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 73

Læknablaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 55 Beinagrind og barkabólga Læknisvottorð óþörf Stórt fyrirtæki sem þekkt var af því að reka harða starfsmannastefnu birti eftirfarandi tilkynningu til starfsmanna: „Læknisvottorð verða ekki tekin gild framar sem sönnun veikinda. Ef starfsmaður er nógu hress til að fara til læknis þá er hann nógu hress til að mæta í vinnuna." Sleipur í ættfræði Pegar heimilislæknirinn tjáði sig um óvenju rjóðan litarhátt í andliti karlmanns á miðjum aldri sem ný- skráður var á heilsugæslustöðina sagði maðurinn: „Hár blóðþrýstingur, læknir minn, hár blóðþrýst- ingur. Þetta er í fjölskyldunni.“ „Er það í föður- eða móðurætt þinni?“ spurði lækn- irinn. „Hvorugt," svaraði maðurinn. „Þetta kemur úr fjölskyldu konu minnar." „Hvað meinar þú með því? Hvernig í ósköpunum ætti fjölskylda konu þinnar að geta gefið þér háan blóðþrýsting?" Maðurinn andvarpaði: „Þú ættir bara að hitta þau einhvern tíma.“ Beinagrind í framsætinu Bæklunarlæknir í Reykjavík var að flytja úr gömlu hús- næði í nýtt. Allt starfsfólkið var að hjálpa til við flutn- inginn. Einn af læknariturunum ákvað að taka stóra beinagrind, sem aðallega var notuð til kennslu, með sér í bílinn til þess að hún yrði síður fyrir hnj aski. Beina- grindin var sett í framsætið þannig að hún sat upprétt en annar handleggurinn hékk aftur fyrir sætið. Á ferð um bæinn var komið að rauðu ljósi. Fólk í bifreið sem stöðvaði við hliðina ætlaði bókstaflega að stara úr sér augun þannig að læknaritarinn sá sig knúna til að skrúfa niður rúðuna og segja: „Eg er á leiðinni með hana til læknisins.“ Ökumaðurinn í hinum bflnum hallaði sér út um gluggann og sagði grafalvarlegur: „Mér finnst leitt að þurfa að segja þér frá því, en ég held að það sé of seint.“ Ein með barkabólgu Eiginmaðurinn hringdi í heimilislækninn og sagði: „Konan mín virðist komin með barkabólgu og kemur varla upp orði.“ „Komdu með hana til mín á stofuna eftir hádegi og við skulum sjá hvort ekki sé hægt að gera eitthvað fyrir hana,“ sagði læknirinn. „í rauninni var ég að vona að þú gætir sagt mér hvernig ég gæti seinkað því að henni batni.“ Við dánarbeð eiginmannsins Sjúklingurinn lá banaleguna. í eina viku hafði hann dvalið á spítalanum án þess að tekist hefði að finna hvað gengi að honum. Blóðþrýstingurinn var lækk- andi, beinmergurinn búinn að gefa sig, nýrun hætt að útskilja og ljóst að hverju stefndi. Læknarnir ákváðu að hætta allri meðferð og leyfa hjónunum að vera í einrúmi meðan maðurinn skildi við. „Elskan mín, ég verð að segja þér svolítið," sagði maðurinn veikri röddu. „Ég hef haldið fram hjá þér með ritaranum mínum undanfarin þrjú ár.“ Konan hallaði sér að manninum og sagði: „Ég hef vitað um það í nokkurn tíma og það gerir ekkert til.“ „Og ég lét skipta út demantinum í hringnum þín- um fyrir óekta stein til að geta keypt mér forláta golfkylfur.1' Orðin komu slitrótt og konan skynjaði að maðurinn ætti skammt eftir ólifað. „Skartgripasalinn var búinn að segja mér frá því og það er líka allt í lagi með það,“ sagði konan. Maðurinn varð blár í framan. „Og þegar ég fór f svokallaða viðskiptaferð til meginlandsins í síðasta mánuði var ég í rauninni í spilavítum Parísar þar sem ég tapaði öllu sparifénu okkar.“ „Ég var líka búin að komast að því en hafðu engar áhyggjur af því,“ hvíslaði konan. „Þú ert meiri dásemdarmanneskjan," sagði mað- urinn og tók andköf. „Hvernig getur þú sagt að allt þetta sé í lagi eftir allt sem ég hef gert þér?“ Konan leit á dyrnar sem voru lokaðar og hallaði sér síðan enn nær manni sínum og sagði: „Vegna þess, hjartað mitt, það var ég sem eitraði fyrir þér.“ Áhyggjurnar í rúmið Jónatan kom til læknis og kvartaði um svefnleysi. Læknirinn skoðaði manninn og fann ekkert óeðlilegt að honum. „Sko, ef þú ætlar að reyna að fá betri svefn verður þú að hætta að taka áhyggjurnar með þér í rúmið," sagði læknirinn. „Já, ég skil það,“ sagði Jónatan, „en konan mín neitar að sofa ein.“ Bjarni Jónasson bjarni.jonasson@hg.is Bjarni er heimilislæknir í Garðabæ. Læknablaðið 2005/91 213
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.