Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2005, Síða 31

Læknablaðið - 15.02.2005, Síða 31
FRÆÐIGREINAR / RAFEYÐING Á HVEKK Rafeyðing á hvekk um þvagrás sökum hvekkauka: árangur fyrstu fimm árin Ágrip Valur Þór Marteinsson SÉRFRÆÐINGUR í ÞVAG- FÆRASKURÐLÆKNINGUM Handlækningadeild FSA, 600 Akureyri. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Valur Þór Marteinsson, handlækningadeild FSA, 600 Akureyri. valmart@fsa.is Lykilorð: rafeyðing, livekk- auki, fylgikvillar, gœðaeftirlit. Tilgangur: Algengasta skurðaðgerð við þvaglátaein- kennum sökum hvekkauka hefur verið hvekkúrnám um þvagrás (TURP, transurethral resection of pros- tate). Reynt hefur verið að gera endurbætur á þeirri aðgerðartækni og ein slíkra er svokölluð rafeyðing á hvekk um þvagrás (transurethral electrovaporization of prostate, TUVP). Aðferðin var tekin í notkun á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) 1997. Að- altilgangur rannsóknarinnar var að kynna hina nýju tækni, kanna ábendingar aðgerða, öryggi, fylgikvilla og árangur aðgerðarinnar fyrstu fimm árin. Efniviður og aðferðir: Sjúkraskrár allra sjúklinga er undirgengust rafeyðingu á hvekk um þvagrás af grein- arhöfundi á Handlækningadeild FSA á tímabilinu 01.1997-03.2002 voru yfirfarnar. Um var að ræða 36 sjúklinga. Framsæ skráning var gerð fyrstu 4-8 vikur eftir aðgerð. Aðgerðin var framkvæmd í mænu- eða utanbastsdeyfingu. Notuð voru hefðbundin speglun- artæki til aðgerðar á hvekk um þvagrás. í stað skurð- lykkju var notað sérstakt kefli eða hjól sem rennt var eftir vefnum. Hjá 18 (50%) sjúklingum var einnig skorinn vefur með skurðlykkju í lok aðgerðar. Niðurstöður: Meðalaldur sjúklinga var 77,2 ár (56-94) og meðaltal áhættuflokks (ASA) var 2,4 (1-4). Hjá 24 (58,4 %) sjúklingum var þvagteppa aðalábending aðgerðar. Meðaltal legudaga var 5,3 dagar (2-14). Aðgerðartími var 27,6 mínútur (15-42) að meðaltali og 9,1 g (2,5-21) af hvekkvef voru fjarlægð að meðal- tali þegar vefur var líka skorinn. Enginn sjúklingur lést <30 daga frá aðgerð. Allir útskrifuðust. Enginn þurfti á blóðgjöf að halda í eða eftir aðgerð og eng- in enduraðgerð var <30 daga. Prír (8,3%) sjúklingar fengu fylgikvilla <30 daga og einn (2,8%) þurfti síðar að undirgangast blöðruhálsskurð um þvagrás sökum blöðruhálsþrengsla. 32 (89%) sjúklinganna útskrif- uðust þvagleggslausir og 33 (91,7%) reyndust sáttir við árangur aðgerðar. Ályktun: Rafeyðing á hvekk um þvagrás sýnist vera örugg og tæknilega góð aðgerð. Enginn skurðdauði var og blóðgjafir reyndust óþarfar. Fylgikvillar voru fáir og engir alvarlegir. Árangur er sambærilegur við erlendar rannsókir. Inngangur Algengasta skurðaðgerðin við þvaglátaeinkennum og fylgikvillum sökum hvekkauka (góðkynja stækk- un á blöðruhálskirtli, benign prostatic enlargement) hefur verið hvekkúrnám um þvagrás (transurethral ENGLISH SUMMARY Marteinsson VÞ Transurethral electrovaporization of the prostate: results during five years Læknablaðið 2005; 91: 171-5 Objective: The most common surgical intervention for lower urinary tract symptoms due to benign prostatic enlargement has been transurethral resection of the prostate (TURP). Transurethral electrovaporization of the prostate (TUVP) is a recent modification of TURP and has been used in Central Hospital Akureyri from 1997. The purpose of this study was to evaluate the safety, complications, efficacy and clinical indications in patients undergoing TUVP with benign prostatic enlargement in five years period. Material and methods: 36 patients undera/ent TUVP in the period January 1997 to March 2002. Prospective registration was performed during the first 4-8 weeks after operation. The author evaluated all patients before the intervention. Conventional surgical instruments for transurethral surgery were used with a roller electrode instead of a loop and in half of the patients some tissue was removed with a loop. Results: The average age was 77.2 years (56-94) and average hospital stay was 5.3 days (2-14). 24 (58.4%) patients had urinary retention before the operation and average operation time was 27.6 minutes (15-42). No operative or in-hospital mortality was in this study or during the first 30 days and all patients were dis- charged. No one required transfusion or re-intervention within 30 days from operation. Three (8.3%) patients got complications within 30 days and one underwent bladder neck incision during the follow-up period. 32 (89%) were discharged without urinary catheter and 33 (91.7%) were satisfied with the result of the operation. Conclusions: TUVP is a safe, efficacious and techni- cally feasible operation for patients with benign pros- tatic enlargement. Despite limited material, the clinical outcome and complications rate were comparable to larger series. Key words: electrovaporization, benign prostatic enlarge- ment, complications, quality control. Correspondance: Valur Þór Marteinsson, valmart@fsa.is resection of the prostate, TURP). Sjaldnar er gerður skurður í hvekk um þvagrás (transurethral incision of the prostate, TUIP), eða opið hvekkúrnám. Reynt hefur verið að gera endurbætur á þeirri aðgerðar- tækni og ekki hvað síst til að draga úr fylgikvillum eins og blæðingum í eða eftir aðgerð. Ein þeirra að- gerða er svokölluð rafeyðing á hvekk um þvagrás Læknablaðið 2005/91 171
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.