Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 56

Læknablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÁTTÚRUHAMFARIR í TÆLANDI Þetta var erfitt en gekk allt glimrandi vel - segir Friðrik Sigurbergsson læknir um ferð íslenskra heilbrigðisstarfsmanna til Tælands Þröstur Haraldsson Pegar síðast fréttist var talið að fórnarlömb náttúru- hamfaranna sem urðu á annan dag jóla í Asíu væru allt að 300.000 talsins. Enn er fjölmargra saknað sem tæplega eru enn á lífi eftir allan þennan tíma. Auk þess að vera með mannskæðustu hamförum sögunnar er þetta einnig mestu slysfarir sem frændþjóð okkar Svíar hafa orðið fyrir. Óljóst er hversu margir Svíar fórust í hamförunum en sennilega voru þeir á annað þúsund talsins, jafnvel fleiri. Pví er verið að rekja þetta hér að íslenskir læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk kom við sögu björg- unaraðgerða austur í Tælandi á fyrstu dögum ársins. Meðal þeirra var Friðrik Sigurbergsson læknir en hann flaug ásamt 24 öðrum íslendingum til Bangkok og flutti þaðan hátt í 40 Svía sem lent höfðu í flóðbylgj- unni og orðið illa úti. Læknablaðið ræddi við Friðrik um þessa för sem var að sjálfsögðu mikil reynsla fyrir þá sem hana fóru. Forsætisráðherra bauð Svíunum aðstoð 29. des- ember og hópurinn var tilbúinn til brottfarar 31. desember. Svíarnir þáðu boðið hins vegar ekki fyrr en að kvöldi nýársdags og 2. janúar var lagt í hann. í hópnum voru sex læknar, 12 hjúkrunarfræðingar, tveir sjúkraflutningamenn, þrír frá Landsbjörgu, þar af einn birgðavörður, einn frá Almannavörnum og einn frá forsætisráðuneytinu. „Við flugum til Bangkok með millilendingu í Tíbl- isi í Georgíu en alls tók flugið 16 klukkustundir," sagði Friðrik. „Við vissum ekki nákvæmlega hvernig sjúk- linga við myndum fá svo við reyndum að undirbúa okkur þannig að við gætum tekið einn eða tvo gjör- gæslusjúklinga, auk annarra. Þegar við hittum sænsku læknana kom í Ijós að enginn sjúklinganna þurfti á gjörgæslu að halda en allir voru þeir verulega slasaðir og veikir. Við vorum með 18 liggjandi sjúklinga og 20 sem gátu setið.“ Ansi ströng vakt - Hvernig var ástand sjúklinganna? „Þeir voru með mikla áverka, marðir um allan lík- amann, gjarnan með eitt eða fleiri beinbrot, stór og ljót sár, einkum á útlimum, sem sýking hafði hlaupið í. Stór hluti fólksins hafði mikil einkenni drukknunar, blóðrauð augu, húðblæðingar á brjósti og í andliti og það hóstaði upp sandi. Það hafði greinilega verið við dauðans dyr en bjargast fyrir einhverja slembilukku. Eg hef aldrei séð svona stóran hóp með svæsin ein- kenni drukknunar, þau sér maður afar sjaldan." Sjúklingarnir voru á fyrsta flokks sjúkrahúsum í Bangkok og höfðu notið góðrar þjónustu. „Það sem búið var að gera fyrir þá var allt mjög vel gert. Sænsk- ir kollegar okkur sögðu að sjúklingarnir væru síst verr settir þarna en á sænskum sjúkrahúsum. Við sáum hins vegar ekki sjúkrahúsin því sjúklingarnir voru fluttir um borð til okkar svo allt gengi sem hraðast fyrir sig. Við höfðum 20 tíma viðdvöl í borginni en sá tími þurfti að líða þar til áhöfnin gat flogið aftur til baka. Það mátti ekki minna vera því sjálf hefðum við þurft meiri hvíld. Eftir brottför tók nefnilega við 30 klukkustunda þrotlaus vinna. Þetta var ansi ströng vakt og allir orðnir þreyttir þegar til Svíþjóðar kom. En þetta gekk allt glimrandi vel.“ Friðrik sagði að allur búnaður hefði verið við hönd- ina og jafnvel meira en þurfti. „Þannig reynir maður að útbúa sig en það verður þó að stilla útbúnaðinum í hóf svo umframbirgðirnar þvælist ekki fyrir manni,“ sagði hann og bætti því við að nú væru menn reynsl- unni ríkari ef fara þyrfti fleiri svona ferðir. Mikil streita og sorg íslenski hópurinn fór ekki víða, þau voru á flugvell- inum og skruppu svo á hótel til að hvíla sig. Friðrik sagði að það litla sem hann hefði séð af tælensku sam- félagi hefði allt verið í föstum skorðum. Öðru máli gegndi hins vegar um sænsku læknana sem þau hittu. „Þeir voru algerlega í rusli. Eg hef aldrei séð kollega með mikla reynslu í svæfinga- og gjörgæslu- lækningum jafnilla farna af streitu og sorg. Þeir voru bókstaflega grátandi og höfðu mikla þörf fyrir að tala við okkur sem komum óþreyttir, segja okkur frá því hversu erfið reynsla þetta hefði verið. Samt höfðu þeir ekki verið á flóðasvæðunum heldur tekið á móti fólkinu á sjúkrahúsum í Bangkok. Flestir sjúklingarnir voru illa farnir og allir höfðu misst einhvern náinn í hamförunum, maka eða börn nema hvort tveggja væri. Sorgin var mikil. Þarna var sænskur læknir með þrjú slösuð börn og mikið slasaða eiginkonu en einn sonur þeirra hafði farist. Fólkið hafði mismikla þörf fyrir að tjá sig, sumir vildu ræða það sem hafði komið fyrir og sögðu ótrúlegar sögur. Þau höfðu verið í algerri paradís þangað til þessi flóð- bylgja skall yfir allt í einu og breytti staðnum í helvíti á jörð. Þetta átti ekki að geta gerst. Aðrir sneru sér út í horn og vildu ekki tala við okkur en flestir voru þó farnir að treysta okkur áður en flugferðin var á enda. Margir voru hræddir og kvíðnir þegar þeir komu um borð en það var gaman að sjá hvernig þeir róuðust smám saman og fóru að treysta okkur.“ 196 Læknablaðið 2005/91
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.