Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 71

Læknablaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 43 Faraldsfræði í dag Eigindlegar aðferðir Eigindlegar rannsóknaraðferðir (e. qualitative re- search methods) hafa á undanförnum áratugum orð- ið æ mikilvægari í heilbrigðisvísindum. Rannsóknir á heilbrigði og sjúkdómum hafa þó að mestu byggst á hefðum raunvísinda þar sem áhersla er lögð á megind- legar rannsóknaraðferðir (e. quantitative research methods). Segja má að faraldsfræði sé fræðigrein sem liggur á mörkum náttúru- og félagsvísinda og því mik- ilvægt að kynna eigindlegar rannsóknaraðferðir hér. Markmið eigindlegra rannsókna er að auka skiln- ing á þjóðfélagslegum fyrirbrigðum undir eðlilegum aðstæðum (það er andstætt tilraunaaðstæðum). Reynt er að leggja áherslu á merkingu, upplifun eða viðhorf þátttakenda í rannsókninni. Rannsóknaspurningar í eigindlegum rannsóknir hljóma oft: „Hvað er X? Hvernig er X breytilegt eftir aðstæðum og af hverju?“ Hins vegar spyrja megindlegar rannsóknir oft spurn- inga á borð við: „Hve mörg X eru til staðar? Hver er fylgni X og Y?“ Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að ekki er hægt að yfirfæra niðurstöður eigindlegra rannsókna á þýði og að þær þjóna öðru hlutverki í þekkingarleit en megindlegar rannsóknir. Þar sem eigindlegar rannsóknir leitast ekki við að gefa tölulegar upplýsingar eru þær oft taldar algjör andstæða megindlegra rannsókna. Þannig er talið að vísindamenn skipi sér í annan hvorn flokk aðferða og geti hvorki né vilji skilja hvor annan. Þessar and- stæður eru þó að hluta til ýktar og þónokkuð um að báðar tegundir aðferða séu nýttar af sömu rannsókn- armönnum, jafnvel í einni og sömu rannsókninni. Almennt má segja að nota skuli eigindlegar að- ferðir í þeim tilfellum þegar: - mikilvægt er að fara á dýptina frekar en breiddina í leit að þekkingu á þjóðfélagslegu fyrirbæri. Þetta er sérstaklega algengt þegar þörf er á að nálgast skilning almennings á hugtökum í heilbrigði og hvernig beri að bregðast við þeim skilningi. - lítið er vitað fyrirfram um sviðið sem verið er að rannsaka eða erfitt að nálgast þá sem verið er að rannsaka. Til dæmis er mjög erfitt að hanna spurn- ingalista sem senda á til eiturlyfjaneytenda og fjallar um úrræði fyrir þá. Þarna verður að nýta sér úrtak og gagnasöfnun eigindlegra aðferða ef ein- hver svör eiga að fást. - þörf er á skjótum upplýsingum um eitthvert tiltek- ið málefni. Eigindlegar aðferðir hafa þann styrk að vinna ekki út frá tölfræðilegum forsendum. Þannig er auðveldara að hanna og framkvæma forathug- anir á einhverju fyrirbæri með slíkum aðferðum. - spurningalisti er hannaður er oft rétt að undirbúa hann með eigindlegri forrannsókn. Á þetta sér- staklega við þegar ekki er vitað hvernig þátttak- endur skilja ákveðin hugtök og hvaða hugsanleg svör fást. Þannig getur eigindleg rannsókn byggt upp réttmætari spurningar og svarmöguleika. Til eru margar aðferðir sem teljast til eigindlegra að- ferða. Þekktasta aðferðin er án efa djúpviðtöl (e. in depth interviews), en á síðari áruni hafa rýnihópar (e. focus groups), sem eru upprunalega úr markaðsfræð- um, orðið vinsælli aðferð innan heilbrigðisvísinda. Athuganir (e. observational methods) eru að ryðja sér rúms innan heilbrigðisvísinda, en þessi aðferð var upphaflega aðallega notuð af mannfræðingum í vett- vangsrannsóknum á ýmsum þjóðflokkum. Aðferðir sem byggjast á textarýni (e. text analysis) sjást enn sem komið er sjaldan í heilbrigðisvísindum, en slíkar aðferðir eru mjög algengar til dæmis hjá sagnfræðing- um og stjórnmálafræðingum. Það er algengur misskilningur að greining sé ein- faldari á eigindlegum en á megindlegum gögnum. Staðreyndin er sú að mikið magn gagna hleðst upp í eigindlegum rannsóknum og þarf þá að vinna við að fá yfirsýn yfir þau eftir að gagnasöfnun lýkur. Andstætt þessu er yfirleitt búið að ákveða hvaða form megind- leg gögn hafa áður en þeim er safnað og hvernig vinna skal úr þeim tölfræðilega. Greining eigindlegra gagna tekur því oft mikinn tíma og er oft reynt að auka á réttmæti (e. validity) greiningarinnar með því að fá annan rannsakanda til að yfirfara greininguna. Áhugasömum er bent á greinaflokk sem Mays og Pope hafa skrifað um eigindlegar aðferðir í BMJ (sér- staklega greinar 1,2). Heimildir 1. Pope C, Mays N. Qualitative research: reaching the parts other methods cannot reach: an introduction to qualitative methods in health and health services research. BMJ 1995; 311: 42-5. 2. Mays N, Pope C. Qualitative research in health care - Assessing quality in qualitative research. BMJ 2000; 320: 50-2. Anna Birna Almarsdóttir annaba@hi.is Höfundur er lyfjafræðingur, dósent í stefnumörkun og stjórnun Iyfjamála við lyfja- fræðideild HÍ og framkvæmda- stjóri ráðgjafafyrirtækisins AL-BAS ehf. isNABLAÐ. 2005/91 211
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.