Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 26
FRÆÐIGREINAR / GERVILIÐAAÐGERÐIR
Mynd 3. Meðalaldur við fyrstu aðgerð hefur lítið breyst á þeim tíma sem aðgerðir hafa
Mynd 4. Legutimi á bœkhmardeild hefítr breyst verulega á þeim árum sem liðið hafa
síðan fyrsta liðskiptaaðgerðin var framkvœmd á FSA.
Mynd 5. Enduraðgerðartíðni fyrir Kinematic liðinn er um 18%, 13 árum frá fyrstu að-
gerð. Hvíta línan táknar CRR og gráa svœðið sýnir 2 staðalfrávik í hvora átt.
ábending fyrir aðgerð, bæði þegar settir voru
inn heilliðir (94,4%) og hálfliðir (95,5%). Aðrar
ábendingar voru iktsýki (RA), beindrep, aðrar lið-
bólgur og afleiðingar beinbrota. Einn einstakling-
ur gekkst undir gerviliðaaðgerð vegna afleiðinga
skotáverka.
Aldttr og kyn sjúklinga
Meðalaldur við fyrstu aðgerð var 69,9 ár.
Meðalaldur karla var 70,8 ár og kvenna 69,4 ár.
Við upphaf tímabilsins er meðalaldur sjúklinga
68,8 ár og við lok þess er meðalaldur 70,1 ár.
Meðalaldur breytist nokkuð innan tímabilsins, en
þó er ekki um tölfræðilega marktæka breytingu
að ræða frá upphafi tímabilsins til loka þess (sjá
mynd 3). 360 þeirra sem gengust undir aðgerð
voru konur og 200 voru karlar.
Aðgerðar- og legutími
Kannaðar voru breytingar á aðgerðartíma á tíma-
bilunum 1983-1986, 1995 og 2000-2003. Augljós
stytting á aðgerðartíma hefur átt sér stað úr um
135 mínútum árið 1983 niður í um 90 mínútur á
aðgerð árið 2003. Breytingar á aðgerðatímanum
voru tölfræðilega marktækar (P<0,05)
Meðallegutími hefur að sama skapi styst veru-
lega á því árabili sem þessar aðgerðir hafa verið
framkvæmdar á FSA. Meðallegutíminn eftir að-
gerð minnkar úr um það bil 35 dögum árið 1983, í
um það bil 9 daga árið 2003 (p<0,05) (sjá mynd 4).
Tegundir gerviliða
Tegundir gerviliða sem notaðar hafa verið á FSA
hafa breyst í gegnum tíðina. Tvær tegundir hafa
verið notaðar af heilliðum, Kinematic (166 liðir)
og AGC (349 liðir). Þrjár tegundir af hálfliðum
hafa verið notaðar; Savastano (2 liðir), PCA (21
liður) og Link-Uni(22 liðir) (sjá mynd 2).
Enduraðgerðir
Endttraðgerðir á heilliðum
Enduraðgerðir voru gerðar á 22 Kinematic gervi-
liðum og á sex AGC liðum. Þeir sjúklingar sem
gengust undir enduraðgerð höfðu í öllum tilvikum
fengið gerviliðinn vegna slitgigtar.
Kinematic-gerviliðurinn
Alls voru gerðar 22 enduraðgerðir á Kinematic
heilliöum á tímabilinu. Enduraðgerðartíðni fyrir
Kinematic liðinn reis nokkuð fljótlega eftir fyrstu
aðgerð. Að 13 árum liðnum hafði hún náð 18%
(sjá mynd 5), en þá voru færri en 40 Kinematic
gerviliðir eftir í hættu á að þarfnast enduraðgerðar
og var útreikningum hætt. Enduraðgerðir vegna
hnéskeljarhluta eru stundum taldar minniháttar
og í sumum rannsóknum eru þær ekki teknar með
í reikninginn. Af 22 enduraðgerðum á Kinematic
liðnum voru 12 einungis á hnéskeljarhluta og voru
þær framkvæmdar vegna verkja og vegna þess
742 Læknablaðið 2005/91