Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / STOFNFRUMURANNSÓKNIR Stofnfrumurannsóknir enn á dagskrá Mikil umræða víða um heim en hér á landi er hún svæfð með þingtæknilegum aðferðum Þröstur Haraldsson Umræðan um stofnfrumurannsóknir hefur ekki farið sérlega hátt hér á landi undanfarin misseri en hún verður æ háværari víða erlendis. Fyrir því eru ýmsar ástæður, meðal annars þær að spurningin um hvort rétt sé að heimila notkun stofnfrumna úr fósturvísum sem verða afgangs við tæknifrjóvgun hefur verið til umfjöllunar í stofnunum á borð við Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusambandið og banda- ríska þingið. Staðan er sú að í Evrópu hafa tvær þjóðir, Svíar og Bretar, leyft rannsóknir og það sem kallast ein- ræktun í nreðferðarskyni á stofnfrumum úr fóst- urvísum. Spánverjar, Svisslendingar og Frakkar hafa einnig fetað fyrstu skrefin inn á sömu braut og víða í Evrópu er umræðan um að leyfa þessar rannsóknir í fullum gangi. A hinn bóginn eru þjóðir sem hafna þessari leið algerlega. Það á við um lönd þar sem kaþólska kirkjan hefur sterka stöðu, svo ekki sé minnst á lönd múslima. Stjórn repúblikana í Bandaríkjunum hefur líka fetað þessa slóð og Bush forseti hefur lagt bann við því að stofnfrumurannsóknir njóti styrkja úr sjóðum alríkisins. Bush-stjórnin beitti sér einnig fyrir því að alls- herjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti álykt- un þar sem hvatt er til þess að allar tilraunir til einræktunar séu bannaðar. Þessi ályktun var sam- þykkt með 84 atkvæðum gegn 34 en 37 ríki sátu hjá. Flest Evrópuríki greiddu atkvæði gegn þessari ályktun, að frátöldu írlandi, Ítalíu og Austurríki. Kaþólskan og nasisminn I leiðara danska læknablaðsins (1) var fjallað um þessa ályktun í sumar. Þar sagði greinarhöfundar að nær hefði verið fyrir Sameinuðu þjóðirnar að samþykkja tillögu Belga sent gekk út á að setja bann við einræktun í æxlunarskyni inn í sáttmála samtakanna en með því móti yrði bannið bindandi fyrir aðildarríkin. Þess í stað var samþykkt ályktun sem engan bindur en sendir afar loðin skilaboð til heimsbyggðarinnar. Á vettvangi Evrópusambandsins hefur fram- kvæmdastjórnin gefið til kynna að hún sjái ekkert athugavert við stofnfrumurannsóknir úr fóstur- vísum. Á hinn bóginn hefur sambandið verið ákaf- legt tregt til að veita styrki til slfkra rannsókna. Fyrir því er sú ástæða að innan sambandsins eru skoðanir um þessar rannsóknir ákaflega skiptar. Páfinn í Róm, bæði sá nýi og forveri hans, er harð- ur andstæðingur stofnfrumurannsókna og hann gefur tóninn fyrir margar kaþólskar þjóðir í sunn- anverðri álfunni. Kaþólikkar og fleiri trúarhópar eru þeirrar skoðunar að lífið hefjist við getnað og því sé öll tilraunastarfsemi á fósturvísum atlaga að lífinu. Á móti þessu segja þeir sem hlynntir eru rann- sóknunum að það sé beinlínis siðlaust að banna rannsóknir sem geta leitt af sér nýja meðferð við sjúkdómum sem nú eru ill- eða óviðráðanlegir og kosta margt fólk ómældar þjáningar. I annarri grein í danska læknablaðinu (2) er greint frá gangi umræðunnar í Þýskalandi þar sem sporin frá tímum nasista hræða en eins og kunnugt er stóðu þeir fyrir rannsóknum sem fóru langt út fyrir öll siðalögmál. Þar í landi voru allar rann- sóknir á stofnfrumum bannaðar fram til ársins 2002 þegar örlítið var slakað á banninu og leyft að stunda rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum sem fluttar voru inn frá öðrum löndum fyrir árs- byrjun 2002. Það má hins vegar ekki þróa nýjar stofnfrumulínur og það er líka bannað að nota þýskar stofnfrumur. Arnold ögrar Bush En þótt Bush forseti hafi getað beitt sér fyrir sam- þykkt ályktunar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á hann í töluverðu basli heimafyrir. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti síðasta vor að aflétta banni sem forsetinn setti árið 2001 við því að rann- sóknir á stofnfrumum njóti styrkja úr opinberum sjóðum. Málið er nú til umfjöllunar í öldunga- deildinni en Bush hefur sagt að hann muni beita neitunarvaldi verði niðurstaðan þar sú sama. Á sama tíma og þetta gerist er ríkisstjórn Kali- forníu að reyna á þanþol sambandsríkisins með því að veita styrki til stofnfrumurannsókna að upphæð 40 milljónir dala (3). Óvíst er þó hvenær styrkirnir verða reiddir af hendi þar sem mál hefur verið höfðað til þess að koma í veg fyrir að Kaliforníuríki geti aflað fjár með skuldabréfaútboði. Sú aðferð var hins vegar samþykkt í allsherjaratkvæðagreiðslu sem frarn fór í fylkinu í fyrrahaust. 762 Læknablaðið 2005/91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.