Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / RÉTTINDI SJÚKLINGA
Eiga konur skilyrðislausan rétt
á keisaraskurði?
Veruleg fjölgun keisaraskurða á Vesturlöndum hefur vakið upp umræðu um rétt kvenna
Þröstur
Haraldsson
Á keisaraskurður að vera læknisfræðileg ákvörð-
un eða eiga konur að hafa rétt á að velja hvort þær
vilja fæða börn sín með eðlilegum hætti eða gang-
ast undir keisaraskurð? Um þetta eru menn ekki
sammála en reynslan frá Danmörku sýnir að þar
fjölgar þeim konum ört sem vilja ráða því sjálfar
hvernig þær fæða börn sín. Þar hefur málið vakið
töluvert umtal og jafnvel deilur sem Islendingar
geta lært af.
Þetta mál var til umræðu á fræðslufundi sem
haldinn var í Hringssal Landspítala um miðjan
september. Þar hélt fyrirlestur dönsk kona, Karin
Holler að nafni, en hún er hjúkrunarfræðingur að
mennt, starfar við kvennadeild háskólasjúkrahúss-
ins í Óðinsvéum og varði nýlega meistararitgerð
við háskólann í sömu borg. Ritgerðin hét upp á
dönsku 1 stk. kejsersnit, tak! og í sjálfu sér óþarfi
að þýða það. Þar leitar hún svara við spurningunni
um það hvort konur eigi að geta valið að fæða með
keisaraskurði án þess að læknisfræðilegar ábend-
ingar liggi fyrir.
Hún skýrði frá því að keisaraskurðum hefði
fjölgað nokkuð ört á undanförnum árum en í fyrra
var fimmta hver fæðing þannig. Af tæplega 13 þús-
und keisaraskurðum voru um 1800 að vali konu
án læknisfræðilegrar ábendingar. Árið áður voru
slíkar fæðingar 448 svo fjölgunin er ansi ör. Karin
Holler sagði þetta ekki einsdæmi í Danmörku því
sama þróun gerði vart við sig um öll Vesturlönd.
Greinilegt var að fundarmenn sem flestir voru
læknar, ljósmæður og hjúkrunarfræðingar könnuð-
ust við þetta úr sínu starfi.
Átök um réttindi
Karin Holler skoðaði nánar þær konur sem völdu
keisaraskurð án læknisfræðilegrar ábendingar og
skipti þeim í tvennt. í fjölmennari hópnum eru
konur sem óttast fæðinguna og hafa fyrir því ýmsar
ástæður, svo sem slæma reynslu af fyrri fæðingum,
slæma reynslu af samskiptum við heilbrigðiskerfið
eða þá að þær eru fórnarlömb kynferðislegs of-
beldis eða sifjaspells. Þessum konum eiga fæð-
ingarlæknar ákaflega erfitt með að neita um að
gangast undir keisaraskurð, sagði Karin Holler og
var þá víða kinkað kolli í salnum.
Hinn hópinn sem er ekki eins fjölmennur en
vex furðuhratt fylla konur sem eru upplýstar og
ákveðnar, oftar en ekki vel menntaðar og í góðum
stöðum. Þær mæta í viðtal við lækni brynjaðar fróð-
leik og upplýsingum af netinu og eru ekki komnar
til að semja heldur staðráðnar í að hafa sitt fram.
Þær hlusta ekki á lækninn svo allar tilraunir hans
til að fá þær ofan af ákvörðun sinni mega sín lítils.
Algengt er að þær mæti með eiginmanninum í við-
talið og hann bíður álengdar tilbúinn að grípa inn
í ef eiginkonan fer halloka í slagnum við lækninn.
Þau upplifi þetta greinilega sem átök um það hvort
þau fái þá þjónustu sem þau telja sig eiga rétt á.
Þarna er raunar komið að ákveðnum vanda sem
heilbrigðisstarfsmenn standa frammi fyrir í þessum
samskiptum. Það vantar rannsóknir á þeirri hættu
á fylgikvillum og öðrum erfiðleikum sem fylgir
annars vegar keisaraskurði og hins vegar eðlilegri
fæðingu. Slíkar rannsóknir gætu orðið grunnur að
klínískum leiðbeiningum um fæðingar og keisara-
skurði en á hinn bóginn efast margir um að það
sé siðferðilega rétt að gera slíka rannsókn. Sem
stendur eru læknar ekki sammála um það hvernig
beri að meta áhættuna og þeirri spurningu hefur
ekki verið svarað vísindalega hvort það sé yfirhöf-
uð æskilegasta leiðin að fæða með hefðbundnum
hætti.
Á fundinum var vísað í grein sem birtist nú í
september í British Medical Journal (1). Þar er
greint frá viðhorfskönnun meðal tæplega 900
fæðingarlækna og ljósmæðra í Bretlandi þar sem
þátttakendur voru spurðir hvort þeir teldu rétt að
konur geti sjálfar ákveðið hvort þær gangast undir
keisaraskurð án þess að læknisfræðileg ábending
sé fyrir hendi. Niðurstaðan varð sú að læknarnir
skiptust í nokkurn veginn jafnstóra hópa með og á
móti en 70% ljósmæðranna töldu ekki rétt að veita
konum þetta val. Þátttakendur voru einnig spurðir
hvort rétt væri að gera rannsókn sem bæri saman
kosti og galla eðlilegrar fæðingar og fæðingar með
keisaraskurði. Þar var nokkuð skýr meirihluti í
báðum hópum andvígur því að slík rannsókn væri
gerð, töldu hana ekki siðferðilega réttlætanlega.
Ótti við að missa stjórnina
Karin velti nokkuð fyrir sér af hverju þessi aukni
áhugi á keisaraskurðum stafaði. Hún vildi að hluta
764 Læknablaðið 2005/91