Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / STOFNFRUMURANNSÓKNIR / FÆÐINGARORLOF Tillagan sem sofnaði Það er því víða verið að ræða um stofnfrumurann- sóknir og sú umræða teygir anga sína hingað til lands, þótt hljótt fari. í fyrrahaust var lögð fram á alþingi þingsályktunartillaga sem kveður á um að heilbrigðisráðherra skipi nefnd „sem geri úttekt á kostum þess og göllum út frá læknisfræðilegu, sið- fræðilegu og trúarlegu sjónarmiði að heimila nýt- ingu stofnfrumna úr fósturvísum manna til rann- sókna og lækninga á alvarlegum sjúkdómum“. Örlög þessarar tillögu voru nokkuð sérkenni- leg. Hún var send út til fjölmargra stofnana og félagasamtaka sem undantekningalaust gáfu já- kvæða umsögn um efni hennar. Einu athugasemd- irnar voru raunar þær að fleiri vildu fá fulltrúa í nefndinni en tillagan gerði ráð fyrir. Tillagan kom til umræðu í þinginu og allir sem tóku til máls voru sammála því að rétt væri að skipa þessa nefnd. Sumir höfðu þó fyrirvara á því hvort þeir styddu það að rannsóknir yrðu leyfðar en allir vildu að málið yrði rætt frekar. Samt dag- aði tillagan uppi í vorönnum þingsins. A því er svo sem engin opinber skýring en sú óopinbera er á þá leið að af því að flutningsmenn voru allir úr sama stjórnarandstöðuflokknum hefði ekki verið hægt að afgreiða hana. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar, Jóhanna Sig- urðardóttir, tjáði blaðamanni að hún hygðist leita að flutningsmönnum úr öllum flokkum og endur- flytja tillöguna nú á haustþingi. Sker I eyrun í lokin er ekki úr vegi að vitna aftur í leiðara danska læknablaðsins þar sem afstaða danska læknafélags- ins til stofnfrumurannsókna er tíunduð: „Danska læknafélagið vill, rétt eins og öll lækna- félög í okkar heimshluta, að lagt verði afdráttar- laust bann við einræktun í æxlunarskyni. En við viljum að vísindamenn fái leyfi til að stunda rann- sóknir á stofnfrumum með einræktun í meðferð- arskyni undir eftirliti stjórnvalda. ... Sem ábyrgir læknar og vísindamenn getum við ekki leyft okkur að hundsa tækni sem getur hugsanlega leitt til þróunar nýrra lyfja og meðferðarúrræða sem dag einn gætu læknað fólk sem haldið er ólæknandi sjúkdómum. Slíkt væri mannfjandsamlegt og þess vegna sker það í eyrun að heyra Sameinuðu þjóðirnar mæla með algeru banni og rökstyðja það með tilvísun til mannlegrar reisnar og verndunar mannslífa." (1). Heimildir 1. Buhl H. FN og kloning. Ugeskr Læger 2005; 167:1357. 2. Hansen CF. Nazifrygt og pavetro bremser europæisk stamcelle- forskning. Ugeskr Læger 2005; 167:2486-9. 3. New York Times 10. september 2005. www.nytimes.com Um fæðingarorlof og veikindi á meðgöngu Sigurbjörn Sveinsson Höfundur er heimilislæknir og formaöur Læknafélags íslands. Mér brá fyrir nokkrum misserum þegar skjól- stæðingur minn, vanfær, fór þess á leit við mig að ég gæfi út vottorð fyrir hana um veikindi á meðgöngunni. Þetta hefði auðvitað verið sjálf- sagt mál, ef ástæðurnar hefðu ekki verið annars vegar þær að hætta vinnu nokkrum vikum fyrir fæðingu og hins vegar að skerða ekki fæðingar- orlofið við þá ráðstöfun. Þessari beiðni fylgdi svo sú röksemd að þetta væri bara viðtekin venja, „þetta gerðu allar konur“. Eg hafnaði þessari beiðni með þeim orðum að viðkomandi væri fullfrísk, meðgangan hefði verið alveg eðli- leg. Ég gæti hins vegar alveg tekið undir það að það gæti verið heppilegt að byrja í orlofi nokkr- urn vikum fyrir fæðinguna til hvíldar og undir- búnings. Það væri að mínu mati eðlilegur hluti fæðingarorlofsins og ekki veikindi. Þegar tilvik af þessu tagi endurlóku sig nokkr- um sinnum tók ég málið upp við ljósmæður sem ég vinn með. Staðfestu þær að þetta ráðslag væri orðið almennt, en voru sömu skoðunar og ég að um misnotkun á veikinda- rétti og fæðingarorlofi væri að ræða. Til þess að staðreyna þessa fullyrðingu að „þetta gerðu allar konur“ leitaði ég í gagnabanka um fæðingarorlof og veikindi hjá stóru fyrirtæki hér í borg, þar sem almenningi er veitt þjónusta en lítið um erfiðisvinnu. Á tilteknu tímabili höfðu 54 konur sem unnu hjá fyrirtækinu fengið fæð- ingarorlof. Af þessum hópi höfðu 49 konur lagt fram læknisvottorð um veikindi fyrir fæðinguna. Veikindin runnu saman við fæðingarorlofið sem þá hófst með fæðingunni. í mörgum tilvikum hófust veikindin með skertri vinnugetu sem síðan endaði með fullkominni óvinnufærni. Einungis fimm konur af 54 voru við eðlilega heilsu á meðgöngunni og fóru beint úr starfi í fæðingarorlof. Það geta allir verið sammála um að réttindi af þessu tagi á vinnumark- aði, sem samið hefur verið um eða komið hefur verið á með lögum, eru ákaflega mikilvæg launþegunum og vert að hafast ekki neitt það að sem getur spillt þeim. Því miður eru of mörg dæmi þess að réttindabætur hafi verið útþynntar undir þrýstingi misnotkunar og annarrar óráðsíu. Það er min skoðun að hér sé fólk á rangri leið með þátttöku lækna. Ef vanfærar konur vilja fá orlof fyrir fæðingu ætti reglan að jafnaði að vera sú, að það sé tekið senr hluti af fæðingarorlofinu. Ef sú skoðun hefur fylgi að full þörf sé fyrir að konur fái allan þann tíma með barninu sem núverandi fæðingarorlof gerir ráð fyrir, þá verður að lengja fæðingarorlofið og binda lenginguna því skilyrði að hún sé tekin út fyrir fæðingu barnsins. Það er ekki rétt að læknisvottorð um veikindi séu notuð til að miðla fé- lagslegum gæðum sem samfélagið hefur ekki tekið ákvörðun um að í boði séu. Læknablaðið 2005/91 763
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.