Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 33
FRÆÐIGREINAR / BLÓÐÞURRÐ í GANGLIM
Samanburður á táar-handleggs-hlutfalli
(THH) og ökkla-handleggs-hlutfalli (ÖHH)
við mat á alvarleika blóðþurrðar í ganglim
Jón Örn
Friðriksson1
Læknanemi
Jón
Guðmundsson2
SÉRFRÆÐINGUR í
MYNDGREININGU
Karl Logason3
SÉRFRÆÐINGUR í
ÆÐASKURÐLÆKNINGUM
Listi yfir skammstafanir:
ÖHH = Ökkla-handleggs
hlutfall
THH = Táar-handleggs
hlutfall
Ágrip
Inngangur: Stig blóðþurrðar í ganglim er að
jafnaði metið með mælingu á blóðþrýstingi við
ökkla. Mæling þessi er einföld en getur gefið
villandi niðurstöður hjá sjúklingum með mjög
stífar æðar. Mæling á blóðþrýstingi í stóru tá er
þá talin gefa áreiðanlegri niðurstöður. Markmið
rannsóknarinnar var að bera saman niðurstöður
táþrýstingsmælinga annars vegar við niðurstöður
ökklaþrýstingsmælinga, klínískt stig blóðþurrðar
og niðurstöður æðamyndatöku hins vegar og
þannig leggja mat á gagnsemi táþrýstingsmælinga
við mat á blóðþurrð í ganglimum.
Efniviður og aðferðir: Allir sjúklingar (n=30)
sem komu til slagæðamyndatöku af ganglimum á
Landspítala á tímabilinu 1. janúar til 9. mars 2004
vegna gruns um blóðþurrð í ganglimum. Mældur
var ökklaþrýstingur og táþrýstingur í samtals 58
ganglimum. Gerð var almenn læknisskoðun og
klínísk einkenni sjúklinga metin.
Niðurstöður: Fylgni var á milli þrýstingsmælinga
og klínískrar flokkunar blóðþurrðar, og þrýstings-
mælinga og niðurstöðu slagæðamyndatöku. Ekki
var marktækur munur á fylgnistuðlum við ökkla-
þrýstingsmælingu annars vegar og táþrýstingsmæl-
ingu hins vegar. í tveimur tilvikum var unnt að
mæla táþrýsting en ekki ökklaþrýsting.
Ályktanir: Bæði tá- og ökklaþrýstingsmæling er gagn-
leg við mat á blóðþurrð í ganglim. Ökklaþrýsting er
einfaldara að mæla en táþrýsting. í vissum tilfellum
er ökklaþrýstingur illmælanlegur og getur táþrýst-
ingsmæling þá komið að góðum notum.
'Læknadeild Háskóla íslands,
2Röntgendeild Landspítala
Fossvogi, 3Æöaskurðdeild
Landspítala Fossvogi.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Karl Logason, æðaskurðdeild
Landspítala Fossvogi,
108 Reykjavík,
sími 543 1000.
karll@landspitali. is
Lykilorð: blóðþurrð íganglim-
um, táþrýstingur, ökklaþrýst-
ingur, klínísk einkenni.
Inngangur
Klínísk einkenni blóðþurrðar í ganglimum fara
eftir alvarleika sjúkdómsins. Algengt er að vægur
sjúkdómur gefi ekki einkenni (1-4). Ónógt blóð-
flæði til vöðva við áreynslu veldur heltiköstum
(claudication). Þegar blóðflæði nægir ekki til að
uppfylla lágmarksblóðþörf vefja í hvfld kallast
ástandið tvísýn blóðþurrð (critical ischemia).
Einkenni eru þá tvenns konar, annars vegar end-
urteknir hvfldarverkir og hins vegar sár eða drep
(3). Hjá sjúklingum með væga blóðþurrð er útlit
ganglima oft eðlilegt. Svæsnari blóðþurrð getur
valdið roða, bjúg, sári og drepi (3,5).
ENGLISH SUMMARY
Friðriksson JÖ, Guðmundsson J, Logason K
The correlation between toe- and ankle
pressure, clinical symptoms and angiography
in patients with leg ischemia
Læknablaðið 2005; 91: 749-53
Objective: The severity of leg ischemia is usually
evaluated by measuring ankle pressure. This is a
simple measurement but can be misleading in patients
with severe sclerosis in ankle arteries in which case toe
pressure is believed to be more reliable. The purpose
of this study was to compare toe pressure with ankle
pressure, clinical symptoms and angiography and
thus evaluate the usefulness of toe pressure in the
assessment of leg ischemia.
Material and methods: In total of 58 legs from 30
patients that came to Landspítali University Hospital
because of leg ischemia we measured toe- and
ankle pressure and assessed the clinical stage of leg
ischemia. All patients also had an angiography of their
leg arteries.
Results: There was a correlation between pressure
measurements and the clinical stage of leg ischemia
and also between pressure measurements and results
from angiography of ieg arteries. There was not a
significant difference between the correlation for toe-
and ankle pressure respectively. In two cases it was
impossible to measure ankle pressure but in both
cases it was possible to measure toe pressure.
Conclusions: Toe- and ankle pressure measurements
are equally useful in the evaluation of leg ischemia.
Ankle pressure is a more simple measurement than toe
pressure but can be impossible to perform when the
ankle arteries are very sclerotic. When that is the case
toe pressure can often be measured instead.
Keywords: leg ischemia, toe pressure, ankle pressure, clinical
symptoms.
Correspondance: Karl Logason, karll@landspitali.is
Ýmsar rannsóknaraðferðir eru notaðar til að
rneta stig blóðþurrðar í ganglim. Slagæðamynda-
taka (angiography), tölvusneiðmyndar-slagæða-
myndataka (CT-angiography), segulómunar-slag-
æðamyndataka (MRI-angiography) og tvíþátta-
mæling (duplex) gefa fyrst og fremst anatómískar
upplýsingar en takmarkaðar upplýsingar um
blóðflæði (3, 6). Þannig er til dæmis algengt að
heildarblóðflæði sé eðlilegt þrátt fyrir lokun á
Læknablaðið 2005/91 749