Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NORRÆNT SAMSTARF / AÐ GEFNU TILEFNI
Myndirnar eru teknar í
Frognergarðinum i Osló
og í baksýn eru styttur
Vigelands sem prýða
garðinn. Frá vinstri:
Brynja Bjarkadóttir
Lœknablaðinu, Hanne
Mohrfrá danska lœkna-
blaðinu, Pentti Alhola frá
ftnnska lœknablaðinu, Pia
Gelhaar frá sœnska lœkna-
blaðinu, Maud Kaino
frá Tidsskrift for Den
norske lœgeforening og
Védís Skarphéðinsdóttir
Lœknablaðinu.
Fundur auglýsingastjóra norrænu
læknablaðanna
Allt frá árinu 2002 hafa auglýsingastjórar nor-
rænu læknablaðanna hist á fundum til bera saman
bækur sínar. Fyrsti fundurinn var haldinn í húsa-
kynnum Læknafélags Islands í Kópavogi og í ár
var röðin komin að norska læknafélaginu. Skoð-
anaskipti af þessum toga eru ófrávíkjanlega holl
og styrkja allir stoðir, hvort heldur er innan blaðs
eða á samnorrænum grundvelli. Þótt margt sé ólfkt
með blöðunum í sjón og raun er samt margfalt flei-
ra sem er þeim sameiginlegt enda eru þau sumpart
af sama húsi og kynþætti einsog þar stendur.
-VS
Frá vinstri: Maud Kaino gestgjafinn í ár, Pia Gelhaar frá Lákartidningen, Hanne Mohr
frá Ugeskrift for lœger og Pentti Alliola frá Suomen láákárilehti.
Að gefnu tilefni
Okkur er kunnugt um að það
sé stefna ritstjórnar Lækna-
blaðsins að blaðið sé opinn
vettvangur fyrir lækna til skoð-
anaskipta og kynningar á vís-
indarannsóknum. Innsendar
vísindagreinar fari í ákveðinn
farveg þar sem að minnsta
kosti tveir ritrýnar fari yfir
þær. Varðandi aðrar innsendar
greinar hefur ritstjórnin viðhaft
ákveðið vinnulag um það hvort
þær greinar séu birtar eða ekki
og reynt eftir fremsta megni að
koma til móts við óskir lækna
um birtingu greina að því marki
að þær séu ekki meiðandi eða
á annan hátt utan siðferðilegra
marka.
í síðasta tölublaði Lækna-
blaðsins birtist innsend grein
undir yfirskriftinni „Nýi sloppur
keisarans." I þessari grein er
meðal annars fjallað um af-
leysingastörf læknis á taugadeild
Landspítala nú í sumar. Þar
sem lögfræðingur Læknafélags
Islands hefur tjáð okkur að rit-
stjórn Læknablaðsins sé vanhæf
til þess að fjalla um þetta mál þá
gerum við það sem einstaklingar.
Það er okkar skoðun að birting
þessarar greinar í Læknablaðinu
hafi verið mistök.
Hannes Petersen
Emil L. Sigurðsson
Karl Andersen
Ragnheiður I. Bjarnadóttir
Læknablaðið 2005/91 757