Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2005, Side 41

Læknablaðið - 15.10.2005, Side 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NORRÆNT SAMSTARF / AÐ GEFNU TILEFNI Myndirnar eru teknar í Frognergarðinum i Osló og í baksýn eru styttur Vigelands sem prýða garðinn. Frá vinstri: Brynja Bjarkadóttir Lœknablaðinu, Hanne Mohrfrá danska lœkna- blaðinu, Pentti Alhola frá ftnnska lœknablaðinu, Pia Gelhaar frá sœnska lœkna- blaðinu, Maud Kaino frá Tidsskrift for Den norske lœgeforening og Védís Skarphéðinsdóttir Lœknablaðinu. Fundur auglýsingastjóra norrænu læknablaðanna Allt frá árinu 2002 hafa auglýsingastjórar nor- rænu læknablaðanna hist á fundum til bera saman bækur sínar. Fyrsti fundurinn var haldinn í húsa- kynnum Læknafélags Islands í Kópavogi og í ár var röðin komin að norska læknafélaginu. Skoð- anaskipti af þessum toga eru ófrávíkjanlega holl og styrkja allir stoðir, hvort heldur er innan blaðs eða á samnorrænum grundvelli. Þótt margt sé ólfkt með blöðunum í sjón og raun er samt margfalt flei- ra sem er þeim sameiginlegt enda eru þau sumpart af sama húsi og kynþætti einsog þar stendur. -VS Frá vinstri: Maud Kaino gestgjafinn í ár, Pia Gelhaar frá Lákartidningen, Hanne Mohr frá Ugeskrift for lœger og Pentti Alliola frá Suomen láákárilehti. Að gefnu tilefni Okkur er kunnugt um að það sé stefna ritstjórnar Lækna- blaðsins að blaðið sé opinn vettvangur fyrir lækna til skoð- anaskipta og kynningar á vís- indarannsóknum. Innsendar vísindagreinar fari í ákveðinn farveg þar sem að minnsta kosti tveir ritrýnar fari yfir þær. Varðandi aðrar innsendar greinar hefur ritstjórnin viðhaft ákveðið vinnulag um það hvort þær greinar séu birtar eða ekki og reynt eftir fremsta megni að koma til móts við óskir lækna um birtingu greina að því marki að þær séu ekki meiðandi eða á annan hátt utan siðferðilegra marka. í síðasta tölublaði Lækna- blaðsins birtist innsend grein undir yfirskriftinni „Nýi sloppur keisarans." I þessari grein er meðal annars fjallað um af- leysingastörf læknis á taugadeild Landspítala nú í sumar. Þar sem lögfræðingur Læknafélags Islands hefur tjáð okkur að rit- stjórn Læknablaðsins sé vanhæf til þess að fjalla um þetta mál þá gerum við það sem einstaklingar. Það er okkar skoðun að birting þessarar greinar í Læknablaðinu hafi verið mistök. Hannes Petersen Emil L. Sigurðsson Karl Andersen Ragnheiður I. Bjarnadóttir Læknablaðið 2005/91 757

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.