Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / STOFNFRUMURANNSÓKNIR
Stofnfrumurannsóknir enn á dagskrá
Mikil umræða víða um heim en hér á landi er hún svæfð með þingtæknilegum aðferðum
Þröstur
Haraldsson
Umræðan um stofnfrumurannsóknir hefur ekki
farið sérlega hátt hér á landi undanfarin misseri en
hún verður æ háværari víða erlendis. Fyrir því eru
ýmsar ástæður, meðal annars þær að spurningin
um hvort rétt sé að heimila notkun stofnfrumna úr
fósturvísum sem verða afgangs við tæknifrjóvgun
hefur verið til umfjöllunar í stofnunum á borð við
Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusambandið og banda-
ríska þingið.
Staðan er sú að í Evrópu hafa tvær þjóðir, Svíar
og Bretar, leyft rannsóknir og það sem kallast ein-
ræktun í nreðferðarskyni á stofnfrumum úr fóst-
urvísum. Spánverjar, Svisslendingar og Frakkar
hafa einnig fetað fyrstu skrefin inn á sömu braut
og víða í Evrópu er umræðan um að leyfa þessar
rannsóknir í fullum gangi.
A hinn bóginn eru þjóðir sem hafna þessari leið
algerlega. Það á við um lönd þar sem kaþólska
kirkjan hefur sterka stöðu, svo ekki sé minnst á
lönd múslima. Stjórn repúblikana í Bandaríkjunum
hefur líka fetað þessa slóð og Bush forseti hefur
lagt bann við því að stofnfrumurannsóknir njóti
styrkja úr sjóðum alríkisins.
Bush-stjórnin beitti sér einnig fyrir því að alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti álykt-
un þar sem hvatt er til þess að allar tilraunir til
einræktunar séu bannaðar. Þessi ályktun var sam-
þykkt með 84 atkvæðum gegn 34 en 37 ríki sátu
hjá. Flest Evrópuríki greiddu atkvæði gegn þessari
ályktun, að frátöldu írlandi, Ítalíu og Austurríki.
Kaþólskan og nasisminn
I leiðara danska læknablaðsins (1) var fjallað um
þessa ályktun í sumar. Þar sagði greinarhöfundar
að nær hefði verið fyrir Sameinuðu þjóðirnar að
samþykkja tillögu Belga sent gekk út á að setja
bann við einræktun í æxlunarskyni inn í sáttmála
samtakanna en með því móti yrði bannið bindandi
fyrir aðildarríkin. Þess í stað var samþykkt ályktun
sem engan bindur en sendir afar loðin skilaboð til
heimsbyggðarinnar.
Á vettvangi Evrópusambandsins hefur fram-
kvæmdastjórnin gefið til kynna að hún sjái ekkert
athugavert við stofnfrumurannsóknir úr fóstur-
vísum. Á hinn bóginn hefur sambandið verið ákaf-
legt tregt til að veita styrki til slfkra rannsókna.
Fyrir því er sú ástæða að innan sambandsins eru
skoðanir um þessar rannsóknir ákaflega skiptar.
Páfinn í Róm, bæði sá nýi og forveri hans, er harð-
ur andstæðingur stofnfrumurannsókna og hann
gefur tóninn fyrir margar kaþólskar þjóðir í sunn-
anverðri álfunni.
Kaþólikkar og fleiri trúarhópar eru þeirrar
skoðunar að lífið hefjist við getnað og því sé öll
tilraunastarfsemi á fósturvísum atlaga að lífinu.
Á móti þessu segja þeir sem hlynntir eru rann-
sóknunum að það sé beinlínis siðlaust að banna
rannsóknir sem geta leitt af sér nýja meðferð við
sjúkdómum sem nú eru ill- eða óviðráðanlegir og
kosta margt fólk ómældar þjáningar.
I annarri grein í danska læknablaðinu (2) er
greint frá gangi umræðunnar í Þýskalandi þar sem
sporin frá tímum nasista hræða en eins og kunnugt
er stóðu þeir fyrir rannsóknum sem fóru langt út
fyrir öll siðalögmál. Þar í landi voru allar rann-
sóknir á stofnfrumum bannaðar fram til ársins
2002 þegar örlítið var slakað á banninu og leyft að
stunda rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum
sem fluttar voru inn frá öðrum löndum fyrir árs-
byrjun 2002. Það má hins vegar ekki þróa nýjar
stofnfrumulínur og það er líka bannað að nota
þýskar stofnfrumur.
Arnold ögrar Bush
En þótt Bush forseti hafi getað beitt sér fyrir sam-
þykkt ályktunar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
á hann í töluverðu basli heimafyrir. Fulltrúadeild
Bandaríkjaþings samþykkti síðasta vor að aflétta
banni sem forsetinn setti árið 2001 við því að rann-
sóknir á stofnfrumum njóti styrkja úr opinberum
sjóðum. Málið er nú til umfjöllunar í öldunga-
deildinni en Bush hefur sagt að hann muni beita
neitunarvaldi verði niðurstaðan þar sú sama.
Á sama tíma og þetta gerist er ríkisstjórn Kali-
forníu að reyna á þanþol sambandsríkisins með því
að veita styrki til stofnfrumurannsókna að upphæð
40 milljónir dala (3). Óvíst er þó hvenær styrkirnir
verða reiddir af hendi þar sem mál hefur verið
höfðað til þess að koma í veg fyrir að Kaliforníuríki
geti aflað fjár með skuldabréfaútboði. Sú aðferð var
hins vegar samþykkt í allsherjaratkvæðagreiðslu
sem frarn fór í fylkinu í fyrrahaust.
762 Læknablaðið 2005/91