Læknablaðið - 15.12.2005, Side 7
RITSTJÓRNARGREINAR
Mikilvægi skráningar Læknablaðsins
í Medline
Fyrr á þessu ári var sagt frá því að Læknablaðið
hefði verið samþykkt til skráningar í Medline
sem er gagnabanki alríkislæknisfræðibókasafns
Bandaríkjanna (National Library of Medicine,
NLM). Pegar þetta er skrifað er búið að skrá í
Medline nánast allt það sem birst hefur í Lækna-
blaðinu það sem af er árinu. Vilyrði hefur fengist
fyrir því að allt efni sem birst hefur í Læknablaðinu
frá og með árinu 2000 geti fengist skráð í Medline,
en það er allur sá tími sem Læknablaðið hefur
verið til á rafrænu formi á netinu. Tæknilega er
þessi skráning enn að mótast en frumrannsókn-
argreinum verður gert hæst undir höfði og verða
höfundar, titlar, ártal, árgangur, blaðsíðutal og
útdráttur skráð í Medline og verður hægt að leita
að öllum þessum þátturn. Það sama verður skráð
vegna sjúkratilfella og yfirlitsgreina. Leiðarar,
fræðileg bréf til ritstjórnar, fræðileg innlegg og
klínískar leiðbeiningar verða titlar og höfundar
ásamt ártali, árgangi og blaðsíðutali skráð. Öll
þessi skráning á efni Læknablaðsins í Medline er á
ensku en þess getið að skrifin séu á íslensku. Þegar
búið verður að leysa úr tæknilegum málum verður
í framtíðinni hægt að fara beint inn á rafræna út-
gáfu Læknablaðsins af Medline.
Skráning Læknablaðsins í Medline hefur mikla
þýðingu. Læknablaðið telst nú til sérflokks lækna-
blaða á heimsvísu þar sem það er nú skráð í einn
virtasta gagnagrunn heimsins fyrir tímarit um líf-
og læknisfræði. Læknablaðið var tekið til skrán-
ingar í Medline vegna þess að það stendur undir
þeim gæðakröfum sem strangastar eru gerðar til
læknablaða. Þetta á bæði við um útlit og fram-
leiðslu en þó einkum hvað varðar ritrýnisferilinn
og hvernig vandað er til fræðilegs efnis. Það hefur
þegar verið tekið eftir því í nágrannalöndum okkar
að Læknablaðið er komið í Medline og okkur
hafa borist fyrirspurnir frá ritstjórn læknablaðs
um það hvernig okkur gekk að fá skráningu í
Medline. Virðing og hróður blaðsins hefur aukist
við þessa viðurkenningu. Segja má að dreifing
blaðsins hafi orðið víðfeðmari og það er því eft-
irsóknarverðara fyrir höfunda að birta greinar
í Læknablaðinu. Fyrir eigendurna Læknafélag
íslands og Læknafélag Reykjavíkur þýðir þetta að
Læknablaðið er nú verðmætara en áður. Þá hefur
gildi blaðsins sem huglægrar eignar aukist. Þessi
vegsemd Læknablaðsins gerir frekari kröfur til rit-
stjórnar og starfsfólks blaðsins um að slaka hvergi
á gæðum í framleiðslu og ritrýnisferli og er hvatn-
ing um að fylgjast með auknum kröfum í þessum
málum í framtíðinni.
Fræðigreinar sem birtast í Læknablaðinu eftir
skráningu í Medline hafa meira akademískt vægi
en áður. I Háskóla íslands var fræðigrein sem
skrifuð var í Læknablaðið áður fyrr talin gefa um
tvo þriðju af þeim stigum sem samsvarandi fræði-
grein hefði fengið ef hún væri birt í ritrýndu blaði
sem skráð væri í Medline. Þannig var fræðigrein í
Læknablaðinu hæst gefin 10 stig en ef greinin hefði
birst í tímariti sem skráð var í Medline hefði hún
getað fengið 15 stig. Þetta var mat og vinnuregla
Háskóla íslands á akademískum stigum fræðigreina
sem til dæmis var beitt þegar læknar sóttu um stöð-
ur við háskólann og metin var hæfni umsækjenda
eftir stigum. Þetta mun nú breytast og hefur mikla
þýðingu fyrir höfunda sem skrifa í Læknablaðið.
Fræðigreinar í Læknablaðinu voru einnig metnar
eftir sömu reglu þegar rannsóknastig voru talin hjá
Kjaranefnd en kennarar og fræðimenn við lækna-
deild skila yfirlitum til Kjaranefndar á hverju ári
sem aftur greiðir þeim umbun eftir fjölda stiga
sem þeir hafa áunnið sér. Skráning Læknablaðsins
í Medline hefur því fjárhagslega þýðingu fyrir há-
skólakennara. Hér hefur verið bent á akademískt
gildi fræðigreina í Læknablaðinu frá íslenskum
vettvangi en svipuð breyting verður á gildi greina í
Læknablaðinu alþjóðlega. Þegar fram líða stundir
mun Læknablaðið verða metið með þeim kvörð-
um sem tíðkast á alþjóða vettvangi.
Medline gagnagrunnurinn er á ensku og skrán-
ing fræðigreina Læknablaðsins er því á ensku.
Einhverjum kann að sýnast að þetta sé enn einn
ósigur íslenskunnar í baráttunni við enskuna.
Undirritaður vill halda því fram að skráning
Læknablaðsins í Medline muni þvert á móti efla
íslenskt mál, nú er eftirsóknarverðara en áður
fyrir höfunda að skrifa um læknisfræði á íslensku
og því verður meira skrifað. Erlendis verður tekið
eftir því að skrifað er um læknisfræði á íslensku
og að þau skrif eru verðug skráningar í Medline.
Skráning Læknablaðsins í Medline er því óbein
viðurkenning á íslensku máli sem fræðimáli í lækn-
ingum. Það er því viðeigandi að lýsa eftir íslensku
heiti á gagnagrunninum Medline.
Vilhjálmur
Rafnsson
Höfundur er prófessor
í heilbrigðisfræði við
læknadeild Háskóla
íslands og ábyrgðarmaður
Læknablaðsins.
Læknablaðið 2005/91 903