Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 14
FRÆÐIGREINAR / SYKURSÝKI TEGUND 2
Tafla 1. Tíðni GADAb, meöalaldur, holdastuðull og blóðþrýstingur þátttakenda. Blóðþrýst- ingur eingöngu sýndur fýrir þá sem ekki voru á lyfjameðferð vegna þess en háþrýstingur var skilgreindur sem >140/90 mmHg eöa lyfjameöferö.
GADAb* GADAb p-gildi
Fjöldi (%) 94(9,9) 856
Karlar (%) 55 (10,1) 491 ns
Konur(%) 37 (9,3) 360
Meðalaldur; ár(SD) 67,1(10,7) 68,0 (11,3) ns
Holdastuðull; kg/m2 (95% Cl) 28,2 (27,2-29,2) 29,7 (29,3-30,1) 0,02
Slagbilsþrýstingur; mmHg (95% Cl) 143 (138-148) 146 (145-148) ns*
Hlébilsþrýstingur; mmHg (95% Cl) 81(79-83) 82 (81-83) ns
Háþrýstingur; % hlutfall (95% Cl) 68 (58-78) 72 (68-76) ns
Efnaskiptavilla; % hlutfall (95% Cl) 47 (38-56) 60 (56-64) 0,02
ns = tölfræöilega ómarktækt. * = p gildi einnig ómarktækt eftir leióréttingu fýrir áhrifum holdastuóuls og aldurs.
Inngangur
Insúlín er lífsnauðsynlegt hormón sem seytt er af
6-frumum Langerhanseyja brissins. Gallar í seytun
og virkni insúlíns valda sykursýki. Um 90% sykur-
sýkisjúklinga eru með tegund 2 sykursýki (SS2)
sem stafar af samspili insúlínónæmis og skertrar
6-frumu virkni (1). í sykursýki af tegund 1 (SSl) er
sjálfsofnæmissvar talið leiða til eyðileggingar á 6-
frumum og 85-90% nýgreindra eru með greinanleg
mótefni gegn GAD (glutamic acid decarboxylase)
og eyjafrumum (islet cell antibodies, ICA) (2,3).
Latent Autoimmune Diabetes in Adults
(LADA) er skilgreind sem sykursýki hjá þeim sem
eru með dæmigerð mótefni SSl, það er að segja
GADAb eða ICA, eru greindir eldri en 35 ára
og þarfnast ekki insúlíns við sjúkdómsgreiningu
(4). Pessa tegund sykursýki mætti á íslensku kalla
mótefnatengda sykursýki af tegund 2 (MTSS2).
Rannsóknir hafa leitt í ljós að 10% evrópskra
sjúklinga sem greindir eru með SS2 eru í raun með
MTSS2. Þessir sjúklingar hafa hagstæðari sam-
setningu blóðfita, lægri holdastuðul (body mass
index, BMI) og lægri blóðþrýsting heldur en aðrir
sjúklingar með SS2 (4, 5). Einnig virðist verða
hraðari eyðing á 6-frumum hjá þeim en öðrum
SS2 sjúklingum því 10 árum frá greiningu eru 50%
GADAb+ með hlutfallslegan insúlínskort saman-
borið við aðeins 3% þeirra sem eru GADAb' (4).
Tilgangur rannsóknarinnar var að ákvarða algengi
MTSS2 meðal Islendinga. Jafnframt að bera saman
GADAb+ og GADAb sjúklinga hvað varðar holda-
stuðul, blóðþrýsting, blóðfitur, tíðni efnaskiptavillu
(Metabolic Syndrome), 6-frumu virkni, insúlínþol
(insulin resistance) og innbyrðis skyldleika.
Efniviður og aðferðir
Þýði
Rannsóknin var samþykkt af Persónuvernd og
Vísindasiðanefnd. Upplýsts samþykkis var aflað.
Búinn var til listi SS2 sjúklinga úr sjúkraskrám
Sjúkrahúss Reykjavíkur og Reykjavíkurrannsókn
Hjartaverndar. Ættfræðigagnagrunnur íslenskrar
erfðagreiningar „Islendingabók“ var síðan notuð
til að finna alla sem skyldir voru þessum sjúkling-
um í sex ættliði (6). Heildarþýðið er því um það
bil fjórðungur íslenskra með SS2. Skilgreiningin
á sykursýki var áður þekkt sykursýki samkvæmt
spurningakveri eða fastandi glúkósa í bláaæða-
sermi s 7,0 mmól/1, mælt í tvígang. Hluti einstak-
linganna voru ógreindir (einkennalausir) fyrir
ofangreinda kembileit (skimun). GAD mótefni
var mælt hjá öllum SS2 sjúklingum sem tóku þátt í
rannsókninni.
Mœlingar
ELISA mótefnamæling var notuð til að mæla styrk
GADAb í plasma með aðferð frá Roche, Basel.
Sviss. Niðurstöður eru í ng/ml og gildi lægri en 32
ng/ml voru lesin sem neikvæð. Næmi prófsins er
69% en sértækni 98%. Hitachi 912 efnagreiningar-
tæki og hvarfefni frá Roche Diagnostics GmHb,
Mannheim, Þýskalandi var notað til mælinga á
fastandi blóðsykri og blóðfitum. Fastandi insúlín
var mælt með ECL (electrochemiluminescence)
mótefnamælingum, aðferð frá Roche Diagnostics
GmHb, Mannheim, Þýskalandi.
Skyldleiki
í þessum hluta rannsóknarinnar var reiknaður
út skyldleikastuðull (kinship coefficient) til að
meta innbyrðis skyldleika einstaklinga (7). Þessi
stuðull er skilgreindur sem líkurnar á því að ein
samsæta (allele) sem valin er af handahófi frá
tveimur einstaklingum komi frá sameiginlegum
forföður. Þannig er skyldleikastuðullinn V4 fyrir
systkini, fyrir þremenninga og svo framvegis.
Skyldleikastuðullinn fyrir hóp er síðan fenginn
með því að reikna út meðalskyldleikastuðul fyrir
hvert einasta par sem hægt er að mynda innan
hópsins. Skyldleikastuðullinn fyrir GADAb+ hóp-
inn var fundinn (n=94) og borinn saman við
meðalskyldleikastuðulinn fyrir fimm hundruð 94
manna slembiúrtök úr SS2 sjúklingahópnum. P-
gildið (empirical one-sided p-value) var ákvarðað
sem hlutfallslegur fjöldi þeirra slembiúrtaka þar
sem skyldleikastuðullinn var jafn eða hærri en
skyldleikastuðull GADAb+ hópsins.
Tölfrœði og útreikningar
Fyrir samfelldar breytur var reiknað meðaltal,
staðalfrávik (standard deviation) og 95% öryggis-
mörk (confidence interval; CI) eftir atvikum. Fyrir
hlutföll voru reiknuð út 95% öryggismörk. Notað
var Mann-Whitney U-próf við samanburð á meðal-
tölum þar sem breyturnar voru ekki normaldreifð-
910 Læknablaðið 2005/91