Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 27
FRÆÐIGREINAR / BULIMIA PRÓF
Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar gerðar
Bulimia Test-Revised (BULIT-R) prófsins
Sigurlaug María
Jónsdóttir1
SÁLFRÆÐINGUIt
Guðlaug
Þorsteinsdóttir2
GEÐLÆKNIR
Jakob Smári1
PRÓFESSOR í SÁLFRÆÐI
‘Sálfræðiskor Háskóla íslands,
2geðsvið Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Jakob Smári, sálfræðiskor
Háskóla íslands,
101 Reykjavík.
jakobsm@hi.is
Lykilorð: Bulimia Test-
Revised (BULIT-R), próf-
frœðilegir eiginleikar, átrask-
anir, sjálfsmatskvarði.
Ágrip
Tilgangur: Próffræðilegir eiginleikar íslensku út-
gáfunnar af Bulimia Test-Revised (BULIT-R)
spurningalistanum voru kannaðir. Bulimia Test-
Revised er sjálfsmatskvarði fyrir einkenni átrösk-
unar, einkum lotugræðgi.
Efniviður og aðferðir: BulimiaTest-Revised listinn
var lagður fyrir 66 sjúklinga á göngudeild geðsviðs.
Sjúklingarnir voru annars vegar konur í meðferð
vegna átraskana og hins vegar konur í meðferð
vegna annarra geðraskana, aðallega þunglyndis og
kvíða. Konurnar tóku þátt í rannsókninni af fúsum
og frjálsum vilja. Auk Bulimia Test-Revised list-
ans voru þrír aðrir spurningalistar lagðir fyrir, það
er Eating Disorder Diagnostic Scale (EDDS) list-
inn sem einnig metur einkenni átröskunar, áráttu-
og þráhyggjukvarðinn Obsessive-Compulsive
Inventory-Revised (OCI-R) og þunglyndisprófið
Beck Depression Inventory-II (BDI-II). Þetta var
gert til þess að kanna samleitni- og aðgreiningar-
réttmæti Bulimia Test-Revised.
Niðurstöður: í Ijós kom að innri áreiðanleiki
Bulimia Test-Revised listans var góður eða
0,96 (Cronbachs alfa). Bulimia Test-Revised og
Eating Disorder Diagnostic Scale sýndu hærri
fylgni sín í milli en fylgni þessara mælitækja var
við Obsessive-Compulsive Inventory-Revised og
Beck Depression Inventory-II. Einnig kom í ljós
að Bulimia Test-Revised greindi með viðunandi
hætti á milli hóps sjúklinga með og án átraskana.
Rannsóknin rennir stoðum undir réttmæti Bulimia
Test-Revised listans.
Ályktun: íslenska útgáfan af Bulimia Test-Revised
listanum virðist vera áreiðanlegt og réttmætt mats-
tæki fyrir átraskanir, einkum lotugræðgi. Hingað
til hefur verið skortur á mælitækjum fyrir einkenni
átraskana hér á landi og því ætti Bulimia Test-
Revised sjálfsmatskvarðinn að hafa notagildi hér-
lendis bæði í klínískri vinnu og rannsóknum.
Inngangur
Umfangsmiklar vísindarannsóknir hafa verið
gerðar á átröskunum undanfarin 30 ár. Meginflokk-
ar átraskana eru lystarstol (anorexia nervosa),
lotugræðgi (bulimia nervosa) og önnur blönduð
afbrigði tengd þeim (eating disorders not other-
wise specified; EDNOS). Á íslandi hefur sjónum í
ENGLISH SUMMARY
Jónsdóttir SM, Þorsteinsdóttir G, Smári J
Reliability and validity of the lcelandic version
of the Bulimia Test-Revised (BULIT-R)
Læknablaðið 2005; 91: 923-8
Objective: The psychometric properties of the
lcelandic version of the Bulimia Test-Revised (BULIT-
R) were investigated. The BULIT-R is a self-report
instrument designed to assess a broad range of
eating-disordered behaviour, particularly bulimic
symptomatology.
Material and methods: The BULIT-R was administered
to 66 female patients receiving outpatient psychiatric
treatment. Almost half of the patients (n=32) sought
treatment for disturbed eating behaviours and 34
women were in treatment for depression or anxiety.
In addition, three other self-report measures were
administered to the women, the Eating Disorder
Diagnostic Scale (EDDS), the Beck Depression
Inventory-ll (BDI-II) and the Obsessive-Compulsive
Inventory-Revised (OCI-R), in order to assess
convergent and divergent validity.
Results: The study estimated the reliability and
construct validity of the BULIT-R. The internal reliability
was high (Cronbach’s coefficient alpha = 0,96). The
BULIT-R correlated highly with EDDS, a brief self-report
measure for diagnosing anorexia nervosa, bulimia
nervosa and binge eating disorder, and it correlated
lower with BDI-II and OCI-R. The BULIT-R differentiated
between patients with and without eating-disordered
symptomatology.
Conclusions: These results indicate that the lcelandic
version of the BULIT-R is a reliable and valid measure
to assess eating disordered behaviour, particularly
bulimic behaviour among female outpatients.
Key words: Bulimia Test-Revised (BULIT-R), psychometric
properties, eating disorders.
Correspondance: Jakob Smári, jakobsm@hi.is
síauknum mæli verið beint að þessurn röskunum,
en nauðsy nlegt er að læknar og heilbrigðisstarfsfólk
geti greint þær og þekki til aðaleinkenna þeirra.
Ótal mælitæki, spurningalistar og greiningarviðtöl
hafa verið sett saman erlendis til að hjálpa til við
greiningu á átröskunum, meta alvarleika þeirra eða
persónuleikaþætti tengda þeim. Slík mælitæki eru
mörg hver einföld og auðveld í notkun og má nota
þau jafnt á sjúkrastofnunum sem og í heilsugæslu
Læknablaðið 2005/91 923