Læknablaðið - 15.12.2005, Qupperneq 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BRÉF TIL BLAÐSINS OG SVAR
þegar ekki er notuð rétt aðferð við úrvinnslu.
Læknablaðið hefur hækkað birtingarþröskuld
greina síðan þessi grein birtist. Ekki hafa borist
fregnir af hliðstæðum umbótaaðgerðum í til dæmis
læknadeild eða í yfirstjórn LSH.
Lokaorð
Höfundar framangreindrar Don Kíkóta-greinar
eru hvattir til að tjá sig frekar um rannsóknir sínar
í „scientometrics“, en almennt væri mönnum ráð-
legra að leita eftir ráðgjöf fagmanna í tölfræði um
þessar erfiðu kannanir áður en þeir birta ályktanir
í tímaritum eða dagblöðum. I þremur tilvitnuðum
greinum og athugasemdum (1, 6, 7) hefur þeim
ekki tekist að bregða neinu ljósi á íslenska rann-
sóknarstarfsemi undanfarinna ára, hvorki raun-
verulegt ástand hennar, árangur eða horfur, hvað
þá tengsl þessara þátta við viðleitni og markmið.
Getur það verið góður mælikvarði á rannsókna-
starfsemi á Islandi að nota til þess greinar þar sem
einn höfundur af 10 eða 100 er skráður við stofnun
hér á landi? Talnaleikur höfunda með illa skýrðar
tölur úr ISI gagnabankanum er villandi og hættu-
legur vísindavinnu og kennslu á LSH vegna þess
að skilningur á iðkun þeirra og eðli hefur breyst
í öfugu hlutfalli við aukin pólitísk afskipti. Fjöldi
tilvitnana í jarðfræðigreinar þar sem ísland er
nefnt (1) hjálpar ekki málstað höfunda enda ólíku
saman jafnað.
Heimildir
1. Þjóðleifsson B, Sveinbjörnsdóttir S. Er Don Kíkóti uppvakinn
á íslandi? Læknablaðið 2005; 91: 865-9.
2. Kjeld M. „Vísindi á vordögum“. Læknablaðið 2005; 91: 766-9.
3. Pedersen Tr, Kjekshus J, Berg K, et al. Randomized trial of
cholesterol lowering in 4444 patients with coronary-heart-
disease - The Scandinavian Simvastatin Survival Study (4s).
Lancet 1994; 344:1383-9. (376 höfundar frá 5 löndum; 15. sept.
05,4089 tilvitnanir).
4. Ford D, Easton DF, Bishop DT, Narod SA, Goldgar DE.
Risks of cancer in BRCAl-mutation carriers. Breast Cancer
Linkage Consortium. Lancet 1994; 343: 692-5. (38 höfundar;
15. sept. 05,784 tilvitnanir).
5. Wooster R, Bignell G, Lancaster J, Swift S, Seal S, Mangion
J, et al. Identification of the breast cancer susceptibility gene
BRCA2. Nature 1995; 378: 789-92. (41 höfundur; 15. sept. 05,
1136 tilvitnanir).
6. Sveinbjömsdóttir S, Guðnadóttir AS, Þjóðleifsson B. Vísinda-
störf á Landspítala. Alþjóðlegur og íslenskur samanburður.
Læknablaðið 2004; 90: 839-45.
7. Sveinbjörnsdóttir S, Guðnadóttir AS, Þjóðleifsson B. Svar við
athugasemd Arnar Ólafssonar. Læknablaðið 2005; 91:183.
8. Ólafsson Ö. Tvær athugasemdir vegna greinarinnar „Vísinda-
störf á Landspítala“ í desemberhefti Læknablaðsins 2004.
Læknablaðið 2005; 91:182-3.
Rökræða eða stílæfingar?
Rökræða?
I þessu tölublaði Læknablaðsins svarar Matthías
Kjeld grein okkar úr seinasta blaði (1), sem var
aftur andsvar við grein Matthíasar úr fyrra blaði
(2). Hann ber sig illa yfir skorti á rökræðu og finnst
okkur það nokkuð skondið þar sem öllum aðalat-
riðum sem hann fann að í upphaflegri grein okkar
var svarað málefnalega og „röksemdir“ hans hrakt-
ar. Hann ber sig einnig illa yfir „fúkyrðum" sem
hann telur að við höfum beitt en ekkert slíkt kom
fyrir í svari okkar. Matthías setti hins vegar sjálfur
stíl og reglur um þessa ritdeilu í grein sinni þar
sem hann fór á flengreið yfir ritvöllinn. Pað skyldi
þó aldrei vera að honum líkaði ekki þegar svipuð-
um aðferðum er beitt
á hann sjálfan? í nýju
svari Matthíasar hefur
flengreiðinni reyndar
heldur linnt en hann
hefur þá líka tapað skop-
skyninu. Fyrsti kaflinn í
svari Matthíasar ber fyr-
irsögnina rökræða? Við
höfum sjálf þessar sömu
efasemdir. Okkur líður
eins og kennara með Sigurlaug
tregan nemanda í stíl- Sveinbjörnsdóttir
Bjarni
Þjóðleifsson
Læknablaðid 2005/91 941