Læknablaðið - 15.12.2005, Qupperneq 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HUGÐAREFNI
Námahvammur og Brennisteinsfjöll
Á árunum 1981-1983 fór ég að sumarlagi ásamt
félaga mínum, Ottari Kjartanssyni kerfisfræð-
ingi, nokkrar ferðir í Námahvamminn norðan og
austan Brennisteinsfjalla og í sjálfar námurnar
sem eru í hrauninu sunnan við hvamminn. Þar
hafði þá síðast verið unninn brennisteinn með
ærnu erfiði um hundrað árum áður og hann
verið fluttur með ekki minna erfiði á hestum til
Hafnarfjarðar. Þar er um Kerlingarskarð að fara
og ógreiðfært með hesta. Kerlingarskarð er um
475 m yfir sjó og þar getur rekið á með þoku nær
fyrirvaralaust. Myndin hér fyrir neðan er tekin í
þokusudda við Kerlingarpoll, lítið vatnsstæði ofan
Kerlingarskarðs. I Námahvamminum og í námun-
um eru mannvirkjaleifar sem kanna þarf nánar.
Við birtum um þessar ferðir ítarlega grein (8).
Ég get að lokum ekki látið hjá líða að minnast á
Ferð að Fjallabaki (9), ekki síst vegna upplýsinga
sem þar eru og geta komið óvönum ferðamönnum
að notum.
Þakkir
Óttar Kjartansson kerfisfræðingur gerði tölvu-
myndir og eru honum færðar þakkir fyrir.
Heimildir
t. Jóhannessoní’.KjartanssonÓ.ElliðavatnsheiðiogHólmar.fjór-
ar leiðir í Gjáarrétt, Elliðavatnshringur, suður fyrir Elliðavatn,
úr Glaðheimum í Mygludali. í: Áfangar. Ferðahandbók hesta-
manna. Safnrit ferðanefndar Landssambands hestamannafé-
laga. Reykjavík 1986:183-272.
2. Þórðarson ÞH. Theódórs Á, Jóhannesson Þ. Magaspeglun
hrossa. Eiðfaxi 1993; 4: 42-4.
3. Ásmundsson T, Jóhannesson Þ, Gunnarsson E. Öndunartíðni
hrossa. Eiðfaxi 1981; 9:14-5.
4. Kristinsson J, Thordarson TH, Jóhannesson T. Pharmacokine-
tics of lidocaine in Icelandic horses after infiltration anaest-
hesia. Veterinary Rec 1996; 138:111-2.
5. Kjartansson Ó. Hestaferð um Strandir 1977. I: Gustur í Glað-
heimum. Hestamannafélagið Gustur í Kópavogi 1965-2000.
Útg. Kjartansson Ó, Sigurðsson B, Halldórsson K. Hesta-
mannafélagið Gustur, Kópavogi 2000: 93-6.
6. Jóhannesson Þ. Fornar frægðarreiðir. Ferðir Flosa á Þríhym-
ingshálsa og í fjallið Þríhyrning eftir Njálsbrennu. Goðasteinn.
Héraðsrit Rangæinga 1997; 33 (8.árg. nýs flokks): 170-87.
7. Friðjónsson JÁ. Af beislabátum og unnarjónum. Járning hesta
og samgöngubylting á miðöldum. Saga 2005; XLIII: 1:43-80.
8. Jóhannesson Þ, Kjartansson Ó. Landnám Ingólfs. Nýtt safn til
sögu þess. Félagið Ingólfur gaf út. 1985; 2:7-35.
9. Kjartansson Ó, Jóhannesson Þ. Ferð að Fjallabaki. Hesturinn
okkar 1982; 1:19-30.
Gangvari (1977-2001) var
keyptur 1981 og hafður til
reiðar í ein 19 ár. Hann var
kostamikill og glœsilegur
reiðhestur. í móðurœtt
var Gangvari œttaðurfrá
Kirkjubœ og hann var son-
arsonur Núpakots-Blesa.
Myndin er afmálverki í
eigu RLE HÍ sem gert var
eftir Ijósmynd og tekin
var við sumarbústaðinn
í Litla-Odda sumarið
1993. (Ljósm.: Þorkell
Þorkelsson.)
Myndin er tekin við
Kerlingarpoll ofan
Grindaskarða á heim-
leið á hestum úr Náma-
hvamminum norðan og
austan við brennisteins-
námurnar. Kerlingarpollur
er lítið vatnsstæði með
graskraga í kring og kjör-
inn áningarstaður á þessari
berangursleið. Höfundur
erfyrir miðri mynd, en
Kári Sigurjónsson, fylgd-
armaður okkar Óttars, er
til hœgri. (Ljósm.: Óttar
Kjartansson.)
Læknablaðið 2005/91 953