Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2005, Síða 58

Læknablaðið - 15.12.2005, Síða 58
UMRÆÐA & FRÉTTIR / UM LÆKNABLAÐIÐ Um skipun og störf ad hoc ritstjórnar Læknablaðið er bæði fræðilegt rit um læknisfræði og félagsblað lækna. Ábyrgðarmaður blaðsins tekur ákvarðanir um hvort innsendar greinar sem ekki eru fræðilegs eðlis birtist í blaðinu eða ekki. Pannig var einnig um grein Jóhanns Tómassonar í 9. tölu- blaði blaðsins „Nýi sloppur keisarans“. Með því að leyfa birt- ingu hennar var ábyrgðarmaður ekki að taka afstöðu til sjónar- miða eða fullyrðinga sem Jóhann setti fram í grein sinni. Eftir birtingu greinarinnar urðu deilur í ritstjórninni um hvernig og hvort bregðast skyldi við óskum um að draga greinina til baka og að beðist yrði afsökunar á hennar. Ábyrgðarmaður vildi hvorugt gera. Fjórir ritnefndarmenn gáfu frá sér yfirlýsingu í 10. tölublaði Læknablaðsins undir fyrirsögninni „Að gefnu tilefni“. Peir töldu að birting ofannefndrar greinar Jóhanns Tómssonar hefðu verið mistök. Ritstjórnin var að mati lög- manns Læknafélags íslands, vegna starftengsla einstakra rit- nefndarmanna við Kára Stefánsson, öll vanhæf til að fjalla um málið. Sjónarmiðum sínum um það efni hefur lögmaðurinn komið á framfæri í Föstudagsmola nr. 45 sem birtist þann 30. september síðastliðinn á heimasíðu Læknafélags Islands www. lis.is Um mánaðamótin október/nóvember sagði öll ritstjórnin nema ábyrgðarmaður af sér. Skömmu síðar bárust stjórnum Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur formlegar kröfur frá Kára Stefánssyni í þá veru að grein Jóhanns yrði tekin af vefútgáfu blaðsins og að beðist yrði afsökunar á birt- ingu hennar, en Kári Stefánsson hefur jafnframt kært undir- ritaðan til Siðanefndar Læknafélags íslands fyrir að leyfa birt- ingu ofannefndar greinar Jóhanns Tómassonar. Kunnugt er að stjórnir læknafélaganna hafa vísað kröfum Kára Stefánssonar frá að sinni og stjórn Læknafélags íslands hefur vísað grein Jóhanns Tómassonar til Siðanefndar til umfjöllunar. Hér eru birt bréfaskipti sem urðu í kjölfar þess að stjórnir læknafélaganna afréðu að setja á laggirnar bráðabirgðarit- stjórn til þess að bregðast við kröfum Kára Stefánssonar vegna birtingar greinar Jóhanns Tómassonar. Bréfin eru fjögur: bréf frá formönnum félaganna til þeirra þriggja manna sem skip- uðu bráðabirgðaritstjórnina, bréf til formanna félaganna frá oddamanni umræddrar ritstjórnar, bréf með niðurstöðu þre- menninganna og bréf frá landlækni sem bráðabirgðaritstjórnin kallaði eftir. Vilhjálniur Raf'nsson Skipunarbréf ad hoc ritstjórnar Jón Steinar Jónsson, læknir Tryggvi Ásmundsson, læknir Örn Bjarnason, læknir Kópavogi, 9. nóvember 2005 Á f undi stj órna Læknafélags í slands og Læknafélags Reykjavíkur, sem haldinn var í dag, var samþykkt að fara þess á leit við ykkur að þið takið sæti í „ad hoc“ ritnefnd fyrir Læknablaðið. Örn Bjarnason kalli hópinn saman og sé í for- sæti hans. Tildrögin eru þau, að í 9. tbl. Læknablaðsins 2005 birtist grein eftir Jóhann Tómasson, lækni, undir heitinu „Nýju fötin keisarans" [Nýi sloppur keisarans - leiðr. Læknablaðið]. Upp kom ágreiningur í ritnefnd Læknablaðsins m.a. um hvort rétt hefði verið að birta greinina, hvort hún ætti að vera á vefsíðu blaðsins og hvort biðjast ætti afsökunar á birtingu hennar. í framhaldi deilna um þessi atriði og önnur sagði ritstjórn af sér að ábyrgðarmanni, Vilhjálmi Rafnssyni, undanskildum. Stjórnir læknafélaganna fela ykkur hér með að taka ákvörðun um það hvort umrædd grein Jóhanns Tómassonar skuli tekin af vefnum, ein- stök atriði hennar eða hún öll. tímabundið eða varanlega og hvort biðjast skuli afsökunar í næsta tölublaði á birtingu greinarinnar. Ef svarið við síð- arnefnda atriðinu er jákvætt óska stjórnirnar eftir að sú afsökunarbeiðni verði orðuð af ykkur. Þess er óskað að þið komist að niðurstöðu fyrir 17. þessa mánaðar. Meðfylgjandi eru ljósrit af öllum fyrirliggjandi skjölum málsins. f.h. stjórnar LÍ f.h. stjórnar LR Sigurbjörn Sveinsson Óskar Einarsson formaður LÍ formaður LR Svarbréf ad hoc ritstjórnar Til eigenda og útgefenda Læknablaðsins, Hlíðasmára 8. Kópavogi Reykjavík 17.11.2005 Með bréfi þessu dagsettu 9. nóvember 2005 fóru stjórnir LR og LI þess á leit, að við Jón Steinar Jónsson og Tryggvi Ásmundsson tækjum til bráða- birgða sæti í ritnefnd fyrir Læknablaðið og vísast til málsatvika og erindis, sem rakin eru í því tilskrifi. Við þrír höfum komizt að samhljóða niðurstöðu um málið og fylgir álit okkar með bréfi þessu. Örn Bjarnason læknir Grandavegi 47,107 R. 954 Læknablaðið 2005/91
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.