Læknablaðið - 15.12.2005, Qupperneq 58
UMRÆÐA & FRÉTTIR / UM LÆKNABLAÐIÐ
Um skipun og störf ad hoc ritstjórnar
Læknablaðið er bæði fræðilegt rit um læknisfræði og félagsblað
lækna. Ábyrgðarmaður blaðsins tekur ákvarðanir um hvort
innsendar greinar sem ekki eru fræðilegs eðlis birtist í blaðinu
eða ekki.
Pannig var einnig um grein Jóhanns Tómassonar í 9. tölu-
blaði blaðsins „Nýi sloppur keisarans“. Með því að leyfa birt-
ingu hennar var ábyrgðarmaður ekki að taka afstöðu til sjónar-
miða eða fullyrðinga sem Jóhann setti fram í grein sinni. Eftir
birtingu greinarinnar urðu deilur í ritstjórninni um hvernig og
hvort bregðast skyldi við óskum um að draga greinina til baka
og að beðist yrði afsökunar á hennar. Ábyrgðarmaður vildi
hvorugt gera. Fjórir ritnefndarmenn gáfu frá sér yfirlýsingu
í 10. tölublaði Læknablaðsins undir fyrirsögninni „Að gefnu
tilefni“. Peir töldu að birting ofannefndrar greinar Jóhanns
Tómssonar hefðu verið mistök. Ritstjórnin var að mati lög-
manns Læknafélags íslands, vegna starftengsla einstakra rit-
nefndarmanna við Kára Stefánsson, öll vanhæf til að fjalla um
málið. Sjónarmiðum sínum um það efni hefur lögmaðurinn
komið á framfæri í Föstudagsmola nr. 45 sem birtist þann 30.
september síðastliðinn á heimasíðu Læknafélags Islands www.
lis.is Um mánaðamótin október/nóvember sagði öll ritstjórnin
nema ábyrgðarmaður af sér. Skömmu síðar bárust stjórnum
Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur formlegar
kröfur frá Kára Stefánssyni í þá veru að grein Jóhanns yrði
tekin af vefútgáfu blaðsins og að beðist yrði afsökunar á birt-
ingu hennar, en Kári Stefánsson hefur jafnframt kært undir-
ritaðan til Siðanefndar Læknafélags íslands fyrir að leyfa birt-
ingu ofannefndar greinar Jóhanns Tómassonar. Kunnugt er að
stjórnir læknafélaganna hafa vísað kröfum Kára Stefánssonar
frá að sinni og stjórn Læknafélags íslands hefur vísað grein
Jóhanns Tómassonar til Siðanefndar til umfjöllunar.
Hér eru birt bréfaskipti sem urðu í kjölfar þess að stjórnir
læknafélaganna afréðu að setja á laggirnar bráðabirgðarit-
stjórn til þess að bregðast við kröfum Kára Stefánssonar vegna
birtingar greinar Jóhanns Tómassonar. Bréfin eru fjögur: bréf
frá formönnum félaganna til þeirra þriggja manna sem skip-
uðu bráðabirgðaritstjórnina, bréf til formanna félaganna frá
oddamanni umræddrar ritstjórnar, bréf með niðurstöðu þre-
menninganna og bréf frá landlækni sem bráðabirgðaritstjórnin
kallaði eftir.
Vilhjálniur Raf'nsson
Skipunarbréf ad hoc ritstjórnar
Jón Steinar Jónsson, læknir
Tryggvi Ásmundsson, læknir
Örn Bjarnason, læknir
Kópavogi, 9. nóvember 2005
Á f undi stj órna Læknafélags í slands og Læknafélags
Reykjavíkur, sem haldinn var í dag, var samþykkt
að fara þess á leit við ykkur að þið takið sæti í „ad
hoc“ ritnefnd fyrir Læknablaðið.
Örn Bjarnason kalli hópinn saman og sé í for-
sæti hans.
Tildrögin eru þau, að í 9. tbl. Læknablaðsins
2005 birtist grein eftir Jóhann Tómasson, lækni,
undir heitinu „Nýju fötin keisarans" [Nýi sloppur
keisarans - leiðr. Læknablaðið].
Upp kom ágreiningur í ritnefnd Læknablaðsins
m.a. um hvort rétt hefði verið að birta greinina,
hvort hún ætti að vera á vefsíðu blaðsins og hvort
biðjast ætti afsökunar á birtingu hennar.
í framhaldi deilna um þessi atriði og önnur
sagði ritstjórn af sér að ábyrgðarmanni, Vilhjálmi
Rafnssyni, undanskildum.
Stjórnir læknafélaganna fela ykkur hér með
að taka ákvörðun um það hvort umrædd grein
Jóhanns Tómassonar skuli tekin af vefnum, ein-
stök atriði hennar eða hún öll. tímabundið eða
varanlega og hvort biðjast skuli afsökunar í næsta
tölublaði á birtingu greinarinnar. Ef svarið við síð-
arnefnda atriðinu er jákvætt óska stjórnirnar eftir
að sú afsökunarbeiðni verði orðuð af ykkur.
Þess er óskað að þið komist að niðurstöðu fyrir
17. þessa mánaðar.
Meðfylgjandi eru ljósrit af öllum fyrirliggjandi
skjölum málsins.
f.h. stjórnar LÍ f.h. stjórnar LR
Sigurbjörn Sveinsson Óskar Einarsson
formaður LÍ formaður LR
Svarbréf ad hoc ritstjórnar
Til eigenda og útgefenda Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8. Kópavogi
Reykjavík 17.11.2005
Með bréfi þessu dagsettu 9. nóvember 2005 fóru
stjórnir LR og LI þess á leit, að við Jón Steinar
Jónsson og Tryggvi Ásmundsson tækjum til bráða-
birgða sæti í ritnefnd fyrir Læknablaðið og vísast til
málsatvika og erindis, sem rakin eru í því tilskrifi.
Við þrír höfum komizt að samhljóða niðurstöðu
um málið og fylgir álit okkar með bréfi þessu.
Örn Bjarnason læknir
Grandavegi 47,107 R.
954 Læknablaðið 2005/91