Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / UM LÆKNABLAÐIÐ
Álit ad hoc ritstjórnar
Óskar Einarsson, formaður LR
Sigurbjörn Sveinsson, formaður LI
Reykjavík, 18. nóvember 2005
Með bréfi ykkar dagsettu 9. nóvember sl. vorum við undirritaðir
skipaðir í ritnefnd Læknablaðsins til bráðabirgða. Tildrögin
voru deilur sem orðið höfðu vegna greinar Jóhanns Tómassonar
í 9. tölublaði Læknablaðsins 2005. Nefndin komst að eftirfarandi
niðurstöðu:
í grein Jóhanns Tómassonar er gefið í skyn að Kári Stefánsson
stundi lækningar án tilskilinna leyfa. Þetta er rangt eins og með-
fylgjandi bréf Landlæknis sýnir. Nauðsynlegt er að fjarlægja
þessi ummæli tafarlaust og varanlega af vef Læknablaðsins.
Sjálfsagt er að biðja Kára Stefánsson afsökunar á því að þessi
ummæli hafi verið birt. Greinin í heild er til umfjöllunar hjá
siðanefnd LÍ að beiðni stjórnar LÍ og er rétt að bíða úrskurðar
hennar hvort þörf sé frekari aðgerða.
Tillaga að afsökunarbeiðni ril Kára:
„í 9. tölublaði Læknablaðsins á þessu ári birtist grein eftir
Jóhann Tómasson þar sem gefið er í skyn að þú stundir lækningar
án tilskilinna leyfa. Þetta hefur reynst vera rangt. Þú ert beðinn
afsökunar á því að þessi ummæli skuli hafa birst í Læknablaðinu.
Þau verða umsvifalaust fjarlægð úr netútgáfu blaðsins. Greinin í
heild er til umfjöllunar hjá siðanefnd LÍ að beiðni stjórnar LÍ og
mun nefndin skera úr um hvort þörf sé frekari aðgerða."
Viröingarfyllst
Örn Bjarnason, formaöur
Jón Steinar Jónsson
Tryggvi Ásmundsson
Vitnisburdur landlæknis
Tryggvi Ásmundsson læknir
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
Barónsstíg 47,101 Reykjavík
Seltjamamesi, 16. nóvember 2005
Efni: Lœkningaleyfi Kára Siefánssonar lœknis
Vísað er til samtals okkar í dag, 16. nóvember. Samkvæmt
læknaskrá sem birt er á vef Landlæknisembættisins fékk Kári
Stefánsson (lnr. 1168) almennt og ótakmarkað lækningaleyfi
þann 10. júní 1977 og sérfræðileyfi í taugalækningum þann
14. desentber 1984. Kári lauk prófi frá læknadeild Háskóla
Islands árið 1976. Eitt af skilyrðum sérfræðileyfis er að sjálf-
sögðu almennt lækningaleyfi. Aðrar upplýsingar eru ekki hjá
Landlæknisembættinu um leyfisveitingar Kára Stefánssonar.
Hann hefur því fullt og ótakmarkað lækningaleyfi á Islandi.
Með kveöju,
Siguröur Guðmundsson
landlæknir
Eigendur Læknablaðsins hafa orðið við tillögu bráðabirgða-
ritnefndarinnar og sent Kára Stefánssyni lækni afsökunar-
beiðni samhljóða tillögunni.
21/11/2005
Óskar Einarsson
Sigurbjörn Sveinsson
Læknablaðið 2005/91 955